17.04.1926
Neðri deild: 56. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1842 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)
96. mál, sérleyfi til virkjunar Dynjandisár
Klemens Jónsson:
Af því að jeg hefi haft nokkur afskifti af þessum málum undanfarið, þá finst mjer það eiga ekki illa við fyrir mig að leggja fáein orð í belg. Jeg get ekki annað en furðað mig á þeim ummælum frá hv. þm., að meðferð þessa máls við 1. umr. hafi verið undarleg eða óviðeigandi. Jeg veit ekki betur en að hv. frsm. fjhn. í málinu hafi verið reiðubúinn að flytja ræðu, en eftir ósk deildarmanna, sem þá voru orðnir þreyttir á löngum ræðum, hætti hann við. Jeg sje ekkert undarlegt við það, þó að hann yrði við ósk deildarmanna, og því síður sem hann hafði farið fram á að skifta 2. umr. í tvent. Þetta kemur í sama stað niður, eru í raun og veru tvær umræður, og í síðari parti umr. má ræða einstök atriði, enda munu þá fyrir liggja brtt. frá fjhn.
Jeg verð að segja, að eftir að fossamálið og sjerleyfislagafrumvarpið hafði verið svo lengi á döfinni, ein 6–7 ár, og þá í fjölmennri nefnd, sem víða hafði farið, og þegar loks mál þetta var á enda kljáð á síðasta þingi, þá þótti mjer í rauninni ver farið, að lögin skyldu endanlega verða samþ. í þeirri mynd, er þau fengu hjer í deildinni. Frv. hafði þá náð samþykki hv. Ed. í mjög svo viðunandi formi, hvort sem litið var til ríkisins hagsmuna eða til væntanlegra sjerleyfishafa. En hvað gerði svo Nd. á síðasta þingi? Hún stórskemdi þetta frv. Einkanlega að því leyti, að hún færði sjerleyfistímann í 50 ár úr 75 árum. Það er alkunnngt, að engir ráðast í stórkostlegt áhættufyrirtæki, nema þeir sjeu nokkurnveginn vissir um, að þeir geti fengið arð af sínum peningum. Það er enginn svo heimskur, að hann fari blátt áfram að kasta peningum sínum í sjóinn. En skilyrðið fyrir nokkurri von um arð af peningum í slíkum fvrirtækjum er það, að leyfistíminn sje æðilangur. Og það var rjettilega tekið fram hjá hæstv. atvrh. (MG), að fyrstu sjerleyfin, sem veitt eru, væru altaf lengri og með betri kjörum en þau, sem síðar eru veitt. Það er vegna þess, að þegar reynslan er komin, þá vita menn nákvæmlega, hvað mikið fje þarf til fyrirtækisins og á hvað löngum tíma það getur borgað sig. Hjer er engri slíkri reynslu til að dreifa, svo að menn verða að renna nokkuð blint í sjóinn. Og við getum ekki haft dæmi Norðmanna til að byggja á, svo ólíkt hagar til hjer og þar að því er þetta snertir. En þau sjerleyfi, sem veitt voru upphaflega í Noregi, voru veitt til lengri tíma en hjer er farið fram á. Jeg verð þess vegna að segja, að þegar búið var að samþykkja þetta frv. um sjerleyfi á síðasta þingi, þá bjóst jeg við, að enginn yrði til þess að nota það, þar sem sett eru svo hörð og þröng skilyrði, að fádæmum sætir. Samt sem áður hefir orðið sú reyndin, að fjelag útlendra manna, öflugt eftir því, sem mjer er sagt, hefir snúið sjer til ríkisstjórnarinnar og fjhn. með frv. í þá átt, sem hjer liggur fyrir. Jeg verð að segja, að það gladdi mig mjög mikið, þegar jeg frjetti, að frv. þetta væri á döfinni. Jeg fór að fá von um, að nú færi að rætast úr þessu, nú myndum við fá reynslu til að byggja á, sem yrði til þess, að fleiri sigldu í kjölfarið, svo að innan skamms gætum við átt von á að sjá fleiri vatnsföll virkjuð til ómetanlegra framfara í landinu. En jeg varð strax fyrir vonbrigðum, því að jeg verð að taka undir með hæstv. atvrh. (MG) í því, að þeir, tveir hv. þm., sem talað hafa, hafi andað heldur kalt á móti frv. Þótt þeir hafi komið hógværlega fram, þá verður því ekki neitað, að það er andúð, og hún ekki lítil, frá þeirra hálfu í þessu efni.
Háttv. 1. þm. S.-M. (SvÓ) sagði, að þetta mál væri ekki rjettilega borið fram í þinginu. Að mínu áliti er það einmitt borið fram í rjettu formi. Það er varla hægt að bera það fram í öðru formi; það verður að skilja 7. gr. sjerleyfislaganna svo, þar sem stendur blátt áfram, að mál þessi sæti sömu meðferð og lagafrv. Og þá verður að bera málið fram í lagafrumvarpsformi.
Þá var það hv. þm. Str. (TrÞ), sem spurði um það, hvort nefndin hefði haft nægan tíma til þess að athuga og undirbúa þetta mál. Nefndin hefir rætt þetta mál á nokkrum fundum og hún hefir athugað það eins vel og hún hefir haft best vit á. Og þess ber líka að gæta að því er snertir undirbúning málsins, að fjhn. veit ekki betur en að sá maður hafi búið þetta frv. til, sem talinn er einn af glöggustu og bestu lögfræðingum þessa lands. Jeg veit, að þessi sami maður hefir samið ýms frumvörp og reglugerðir og annað fyrir stjórnina. Jeg verð að segja það fyrir mína parta, að jeg verð að treysta því, að þessi maður, sem þar að auki var sjerstaklega viðriðinn fossamálið hjá fossanefndinni, sje svo vel að sjer í þessari löggjöf, að þetta frv. sje fullkomlega sæmilega af hendi leyst. Frá því sjónarmiði get jeg ekki annað sjeð en að alveg óhætt sje að samþykkja það.
Þá eru nokkur atriði, sem hv. þm. Str. bar fram, sem jeg vildi minnast á. Jeg skal strax taka fram, að jeg var sammála honum í tveimur atriðum, fyrst og fremst að það yrði að vera einhver trygging fyrir því, að byrjað væri á verkinu, og að það fjelag, sem veitt væri sjerleyfið, hefði nægileg peningaráð. Hæstv. atvrh. svaraði því á þann veg, að það væri kunnugt, að fjelagið hefði þegar lagt fje í rannsóknir. Það er vitanlegt. En þó er ekki í því næg trygging fyrir, að fjelagið byrji á sjálfu fyrirtækinu. Mjer finst rjett að heimta eitthvað meiri tryggingu.
Þá er jeg sammála hv. þm. Str. í því atriði, að nærliggjandi hjeruð ættu að hafa fullkomna tryggingu fyrir því að geta fengið rafmagn með góðum kjörum, og um það var sjerstaklega rætt í nefndinni. En jeg geri ráð fyrir, að um slíkt mundi verða sjeð í reglugerð, sem bygð yrði á þessum lögum. Það er miklu fremur reglugerðarákvæði en lagaákvæði.
Hv. þm. Str. kom annars með ýms atriði, sem ekki koma beint þessu máli við. Hann kvaðst ekki kunna við, að Alþingi væri að bjóða eins og út í loftið ýms fríðindi. Tiltók þann sjerstaklega, að hann vildi ekki bjóða mönnum fram ýms sjerrjettindi til þess að stofna banka. Ef þörf er á banka, — ef þörf er á peningum í landið, til þess að efla atvinnuvegina, — ef þingið er ásátt um, að brýn nauðsyn sje á slíku, þá sje jeg ekki annað en það sje beinlínis skylda þess að rjetta fram höndina og bjóða peningana velkomna inn í landið. Það er ekki von, að peningamenn sjeu að trana peningum fram við okkur og segi: Þið getið fengið nóga peninga hjá okkur, gerið þið bara svo vel. Nei, við verðum sannarlega að sækjast sjálfir eftir þeim. En til þess verðum við að bjóða mönnum að minsta kosti þau kjör, sem bankar geta fengið annarsstaðar. Þetta eitt hefir verið gert á þessu þingi og ekkert annað, og jeg get ekki sjeð, að við höfum farið skör framar en rjett er. Jeg vil sjerstaklega taka það fram, að jeg álít, að við höfum svo mikla þörf fyrir það á þessum tímum að fá meiri peninga inn í landið, að við þyrftum nauðsynlega að fá nýjan banka; engu síður en fyrir aldamótin, þegar verið var að koma á fót Íslandsbanka. Það hepnaðist svo vel, að síðan er það einmitt Íslandsbanki, sem hefir alt fram á þennan dag verið lyftistöng allra framfara á þessu landi, og sjerstaklega borið uppi sjávarútveginn.
Hv. þm. Str. vildi líka álíta, að það mundi ekki verða greitt neitt gjald fyr en öllum mannvirkjum væri lokið, og bjóst ekki við, að það yrði innan 7 ára frá því að sjerleyfið er dagsett. Það er auðvitað að sjerleyfishafi byrjar á því eins fljótt og mögulegt er að notfæra sjer raforkuna. Jeg hygg þeir geti bygt alt sem þarf á 2–3 árum, og geti svo að segja strax farið að hagnýta sjer raforku. Og þá kemur gjaldið til ríkissjóðsins. Gjaldið fylgir notkuninni, og því er nauðsynlegt að byrja sem fyrst á hagnýtingunni.
Þá er eitt atriði í þessu máli, viðkvæmasta atriðið af öllum vafaatriðum að þessu lútandi. Það er, hvað mikið á að flytja inn af útlendu fólki. Sá innflutningur hefir altaf verið sú grýla, sem alt hefir strandað á. Undir eins og á þetta hefir verið minst, segja menn: Nú á að fara að flytja inn fimm þúsund, tíu þúsund eða hver veit hvað, af útlendum lýð! Jeg get nú ekki með vissu sagt, hvað mikinn útlendan vinnukraft muni þurfa við þessar framkvæmdir. En eftir því sem jeg hefi komist næst, þá mun alls ekki þörf fyrir svo mikinn vinnukraft, að nein hætta sje af því búin okkar þjóðerni. Yfir höfuð hefi jeg aldrei getað skilið, að þó við fengjum fimm hundruð eða jafnvel eitt þúsund útlendra manna á einhvern blett á landinu, til dæmis í Flóann, þá mundi það útrýma öllu þjóðerni jafnt í fjarlægum landsfjórðungum sem í nánd við iðjuverið. Það getur verið, að eitthvað smitaðist í næstu sveitum, en það næði aldrei langt. Að það gæti eyðilagt alt þjóðerni landsins — um það ætla jeg ekki að eyða orðum. Nei, það myndi áreiðanlega fara svo hjer eins og annarsstaðar, að í þriðja lið myndi alt þetta fólk vera orðið íslenskt fólk. Auðvitað lærðu börnin íslensku í íslenskum skólum, og í sjerleyfinu yrðu settar allar nauðsynlegar tryggingar fyrir því, að tungu vorri væri hvergi misboðið. Hitt er náttúrlega annað mál, hvort það hefði góð áhrif að blandast útlendum þjóðum. En jeg fyrir mitt leyti hygg að það sje engin vanþörf á því, að við fengjum eitthvert nýtt blóð annarsstaðar frá.
Jeg minnist þess líka, þó að í smærri stíl væri, að fyrir 30–40 árum höfðu Norðmenn hvalveiðastöðvar á Vestfjörðum. Höfðu þeir talsvert af útlendum vinnukrafti. Ekki veit jeg til, að nokkur skaði hafi orðið að því. Hitt veit jeg, að þar var líka mikið af innlendum mönnum, sem kom vel að fá þessa atvinnu. Eins myndi fara nú, að margir þeir, sem nú ganga iðjulausir, myndu fá atvinnu og hana sennilega sæmilega góða.
Jeg get nú lokið máli mínu að sinni. Það gefst síðar tækifæri til að ganga inn á einstaka liði málsins við síðari part umr., ef þörf er á. En jeg get ekki annað en lýst furðu minni yfir því, að hv. 1. þm. S.-M. skuli standa upp og lýsa yfir, að hann sje ekki viðbúinn að taka endanlega ákvörðun um þetta mál. Þá spyr jeg: Hvenær verður hann viðbúinn? Hv. þm. hefir setið í fossanefndinni mörg ár og hefir átt mestan þátt í umræðum um þetta mál í þinginu í 4–5 ár. Fáir eru jafngagnkunnugir þessu máli og hann af þeim, sem á þingbekkjum sitja. Hvenær ætlar hann að verða tilbúinn að segja sitt síðasta í þessu máli? Jeg get vitnað í ummæli hæstv. atvrh.: Hvað megum við hinir segja? Jeg held við margir hverjir þekkjum miklu minna í þessu máli, en þó erum við ekkert vanbúnir að láta uppi álit okkar og greiða atkv. um þetta frv.