10.04.1926
Neðri deild: 50. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 622 í B-deild Alþingistíðinda. (161)
1. mál, fjárlög 1927
Fjármálaráðherra (JÞ):
Það er alger misskilningur hjá hv. 3. landsk., að nokkur breyting hafi orðið á tilhneigingu minni til þess að áætla tekjurnar varlega. Jeg hefi bent á það áður og vil endurtaka það við þetta tækifæri, að reynsla undanfarinna ára er sú, að þegar öll gjöld eru talin, það, sem umfram þarf að borga lögmæltar greiðslur í fjárl., það, sem borga verður á fjáraukalögum, og það, sem borga verður samkvæmt nýjum lögum, þá hefir útkoman orðið upp og ofan sú, að útgjöldin hafa orðið 15% hærri en þau voru upphaflega áætluð, og ef tekjuáætlunin er ekki höfð svo varleg, að það, sem innborgast umfram áætlun, nægi til að greiða þennan halla, þá kemur óhjákvæmilega tekjuhalli á LR með skuldasöfnun þeirri, sem af honum leiðir. Svona held jeg, að þetta verði meðan fjárlög eru sett svona löngu áður en þau ganga í gildi.