19.04.1926
Neðri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1899 í B-deild Alþingistíðinda. (1618)

31. mál, happdrætti fyrir Ísland

Frsm. meiri hl. (Halldór Stefánsson):

Hv. flm. brtt., sem nú eru fram komnar við frv., hafa nú hver mælt fyrir sinni. Þær eru allar þess eðlis, að vart geta orðið um þær miklar deilur.

Fyrst skal jeg minnast á brtt. hv. þm. Ak. (BL), um það, að leyfið skuli ekki veitt á nafn. Þetta var til umræðu í nefndinni, og gat hún ekki orðið sammála um það. Þótti meiri hlutanum ekki ástæða til að fella niður þetta ákvæði, úr því að frv. má teljast bygt á tilboði þessara manna. Það segir sig sjálft, að dragi mennirnir sig til baka eða deyi, þá verður happdrættið ekki stofnað í bili.

Þá er brtt. hv. þm. V.-Sk. (JK), að fella niður sektarákvæðin. Það kom til tals í nefndinni, að þessi málsgr. væri ef til vill óþörf, vegna ákvæðanna í hinum almennu lögum um happdrætti og hlutaveltur. En þó vildi nefndin ekki fella þetta niður, sakir þess, að frv. ber að skoða sem einskonar samning við þessa menn. Það er ljóst, að ekki er næg trygging fyrir mennina að hafa ákvæði um þetta í almennum lögum, því að þeim má altaf breyta. — Hvað því viðkemur, að ósamræmi sje í sektarákvæðunum, þá þarf það alls ekki að saka. Það þýðir aðeins það, að sektarákvæðum almennu laganna má breyta niður að lágmarkssektum þessa frv., en ekki setja þau lægri. En ef menn vilja samrýma þetta strax, þá má það mín vegna.

Þá er brtt. hv. þm. N.-Ísf. (JAJ), að lágmarkságóði ríkissjóðs af happdrættinu renni til ellistyrktarsjóðsins í 10 ár. Jeg hefi minst á þetta við 2. umr. og er því persónulega fylgjandi. Jeg hefi og áður skýrt frá ástæðum nefndarinnar fyrir hennar till. Sje jeg ekki ástæðu til að endurtaka það við þessa umr.