23.04.1926
Efri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1903 í B-deild Alþingistíðinda. (1624)

31. mál, happdrætti fyrir Ísland

Sigurður Eggerz:

Mjer virðist satt að segja, að þetta sje eitt af þeim málum, sem koma ættu frá hæstv. stjórn. Það hefir nú gengið í gegnum háttv. Nd. og verið þar í fjhn., sem klofnaði um málið. Nál. meiri hl. nefndarinnar er svo ófullkomið, að á því er ekkert að byggja. Þar er lítið farið út í málið sjálft og ekkert vikið að því, sem gerst hefir í þessu, eða svipuðu máli, á undanförnum þingum. Ekki minst einu orði á lotterífrv. fræga á þinginu 1912. Jeg verð að segja eins og er, að jeg held jeg hafi aldrei sjeð ljelegra nál. á Alþingi heldur en þetta álit hv. meiri hl. fjhn. Nd. En háttv. minni hl. hefir ekki komið með neitt nál., sem stafar af því, að málinu var ýtt svo áfram, að minni hl. sá sjer ekki fært að semja eins rækilegt nál. og skyldi.

Mjer er ekki kunnugt um, að í hv. Nd. hafi verið gerðir neinir útreikningar um það, hver niðurstaðan mundi verða, yrði frv. þetta að lögum, eða hvað leyfishöfunum mundi áskotnast af happdrættinu. Þetta þarf þó að athuga, ef horfið verður að því ráði að veita þetta einkaleyfi. Eftir frv. virðist mega ætla, þegar tekið er til, hvað mest megi selja, að ágóði leyfishafanna gæti skift mörgum hundruðum þúsunda á ári. En sem sagt, engin rannsókn hefir farið fram á neinum af þessum atriðum, sem byggja megi á.

Sem sagt sje jeg ekki betur en að málið sje í alla staði illa undirbúið og því flaustrað í gegnum hv. Nd. án þess að nokkur hafi getað glöggvað sig á því. Mjer virðist þó að hjer sje um það stórmál að ræða, sem heimta verði, að fái svo góðan undirbúning sem kostur er.

Ef hjer á að stofna „lotterí“ með líku sniði og tíðkast í öðrum löndum, yrði það til þess að æsa spilafýsn manna, en það getur ekki talist heillavænlegt fyrir þjóðina. Þess vegna held jeg, að menn ættu að hugsa sig tvisvar um áður en þeir ganga til atkvæða um að setja slík lög.

Mjer skilst, eftir frv. að dæma, þó að gert sje ráð fyrir, að happdrættismiðar eigi að seljast hjer á landi, þá sje þó ætlast til, að aðalsala þeirra fari fram erlendis. Gæti þá hugsast, að sala þeirra lenti í höndum slíkra manna, hvort sem þeir væru fleiri eða færri í fjelagi, að landið hefði lítinn sóma af að vera nefnt í sambandi við þá verslun.

Það, sem á að hvetja menn sjerstaklega til þess að draga í þessu „lotteríi“, er hagnaðarvon ríkissjóðs. En til þess að slíkt verði, þarf að vekja spilafýsn einstakra manna, svo að þeir leggi fram fje úr sínum vasa til miðakaupanna. Og þá er spurning, hvort sje betra, að landið verði af hagnaðinum eða að þjóðin æsist til spilafýsnar.

Hinsvegar lít jeg svo á, að ef stofna á slíkt happdrætti, sem hjer er um að ræða, þá sje rjettara að reka það sem ríkisfyrirtæki heldur en að veita einstökum mönnum einkaleyfi til þess.

Jeg legg aðaláherslu á undirbúningsleysi málsins, eins og jeg hefi vikið að hjer að framan. Efast um, að ýmsir háttv. þm. í Nd. hafi vitað, hvað þeir voru að samþykkja.

Samkvæmt þeim ummælum mínum legg jeg til, að málinu sje þegar á þessu stigi vísað til stjórnarinnar.