11.05.1926
Efri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1908 í B-deild Alþingistíðinda. (1629)

31. mál, happdrætti fyrir Ísland

Jónas Jónsson:

Þar sem frsm. minni hlutans. hv. 2. þm. S.-M. (IP) er ekki við, ætla jeg að gera grein fyrir afstöðu minni hlutans til þessa máls.

Það hafa verið gerðar ítrekaðar tilraunir undanfarin ár til þess að koma hjer á lotteríi, en hingað til hafa þær mishepnast, af því að hjer á þingi hafa verið ýmsir menn, sem hafa haft hina megnustu óbeit á þessu. Þó að jeg sje stjórnarandstæðingur, finst mjer ekki rjett eða sanngjarnt að þrýsta upp á stjórnina leyfi eins og þessu, þegar hún af siðferðilegum ástæðum mótmælir. Hæstv. fjrh. (JÞ) hefir talað á móti þessu máli í fjhn. og borið fram svipaðar kenningar og við minnihlutamenn höldum fram í nál. okkar. Mjer finst, að þar sem hæstv. fjrh., sem oft lítur á peningana, ekki fellur fyrir þeirri freistingu nú, þá muni vera full ástæða til þess. Jeg veit því ekki, hvað þessum fylgismönnum hæstv. stjórnar gengur til með því að vilja samþykkja þetta frv., og sýnist það vera mjög tilgangslaust, þar sem búast má við því, að hæstv. fjrh. vilji ekki nota heimildina. Alt er málið ógnarlega loðið og lítilfjörlegt. Áður hafa nokkrir Íslendingar beðið um þetta leyfi, en nú eru þau nöfn horfin, og alt í einu kemur símskeyti frá Kaupmannahöfn um að peningarnir sjeu til. Hjer er eitthvert baktjaldamakk á ferðinni, og yrði kallaður lítill „forretnings“bragur á þessu, ef um annað væri að ræða. Við hv. 2. þm. S.-M. höfum haldið því fram, að okkar þjóð sje ekki sæmandi að byrja á þessum hernaði á hendur útlendum mönnum. Víða er þetta bannað og mjer er sagt, að danska stjórnin hafi þráfaldlega verið í mestu vandræðum með þetta lotterí, af því að henni hafa borist kvartanir frá útlöndum. En meirihlutamennirnir segja, að ekki sje hætta á ólöglegri sölu, af því að þessi maður í Kaupmannahöfn segir það. Þetta er alveg það sama eins og ef símað væri til „sprútt“salanna hjer og þeir spurðir, hvort sala þeirra væri ólögleg. Þeir mundu auðvitað segja nei. Hæstv. fjrh. (JÞ), sem væntanlega tekur til máls, sagði í fjhn., að þetta væri ekki landsmönnum boðlegt. Það væri illa sjeð og svo kæmu kvartanir og vandræði út úr öllu saman og stjórnin hlyti að hafa bölvun af þessu. Við hv. 2. þm. S.-M. lítum á þetta eins og hæstv. ráðherra. Það er landinu til skammar og alls ekki tilvinnandi, þó að eitthvað fáist í aðra hönd.

Þó að ekki sje gert ráð fyrir, að hjer mundu seljast hlutir svo um munaði, verður þó selt það, sem hægt er, og með því reynt að örva spilafíkn manna. Og þó að menn geti verið sammála um, að ekki sje hægt að ráða með lagaboðum öllu, sem gert er, þá er þetta þó reynt, og einkum þótti mjer undarlegt, þegar háttv. frsm. meiri hl. (BK) nefndi bannlögin í þessu sambandi; veit jeg ekki betur en að hann hafi staðið með þeim. Viðvíkjandi þeirri ástæðu, að gott sje að fá fje frá útlöndum, verð jeg að segja, að það eru til menn, sem ekki vilja gera alt fyrir fje.

Hv. frsm. (BK) sagði, að allir atvinnuvegir okkar væru happdrætti, einkum þó sjávarútvegurinn. Jeg vil biðja hv. þm. Vestm. (JJós) að veita þessum orðum eftirtekt, því að hann fordæmdi mig fyrir að segja, að sjávarútvegurinn væri „spekulation“. Jeg fjekk þarna óvæntan stuðning frá flokksbróður hv. þm. Vestm.

Jeg get sem sagt lýst því yfir, að jeg er alveg samdóma hæstv. fjrh. í þessu máli og vil styðja hans skoðun, og jeg vil skora á hæstv. ráðh., ef þessi ófögnuður gengur fram, að nota ekki leyfið. Mun það ekki flýta fyrir vantrausti frá mjer.