11.05.1926
Efri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1914 í B-deild Alþingistíðinda. (1632)
31. mál, happdrætti fyrir Ísland
Sigurður Eggerz:
Jeg vil benda háttv. frsm. meiri hl. fjhn., sem er svo glöggur fjármálamaður, á það, að erfitt verður að búa svo um samningana, að ekki sje hægt að misbrúka þá. Jeg er ekki í neinum vafa um, að vel sje gengið frá samningum við Koloniallotteríið, en þegar gróðafíknin er öðrumegin, þá er erfitt að hafa, hömlur á mönnum. Það getur vel verið, að þeir hafi ekki brotið samninginn, en þó hefir sala þeirra getað valdið mikilli óánægju erlendis, eins og t. d. í Frakklandi. Og á „Politiken“ má sjá, að lotteríið þykist hafa fullnægt öllum samningum.
Þó að jeg mintist á ríkishappdrætti, þá er það ekki af því, að jeg vilji neitt happdrætti, en ef það á að fara að gefa einstöku fjelagi þannig lagað einkaleyfi, þá álít jeg, að ilt af illu sje þó skárra, að ríkið taki það sjálft.
Það má vera, að erfitt sje að segja um gróðann nema menn hafi kynt sjer happdrætti annarsstaðar. en þau eru þó víst flest stórgróðafyrirtæki.
Jeg býst ekki við því að tala oftar í þessu máli, en að loknum umr. vil jeg, að frv. verði vísað til hæstv. stjórnar, og geri það að till. minni.