14.05.1926
Efri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1917 í B-deild Alþingistíðinda. (1637)
31. mál, happdrætti fyrir Ísland
Frsm. minni hl. (Ingvar Pálmason):
Við 2. umr. þessa máls gat jeg ekki verið sökum veikinda, en mjer var sagt, að frv. hefði verið afgreitt með nokkrum meiri hl. atkvæði. Jeg hefi að vísu í nál. minni hl. á þskj. 569 gert grein fyrir afstöðu minni til þessa máls, og get jeg að miklu leyti látið nægja að vísa til þess, sem þar er sagt, en jeg kann ekki við annað en að láta frv. fylgja nokkur orð, þar sem jeg var í nefndinni, sem hafði það til athugunar.
Flm. frv. í hv. Nd. telja í greinargerð þess aðalástæðuna fyrir því, að þeir flytja frv., vera þá, að þeir líta svo á, að hjer sje handhæg leið til þess að afla ríkissjóði tekna. Og í niðurlagi greinargerðarinnar benda þeir á, að þessum tekjum sje hagkvæmast varið þannig, að þær renni í ræktunarsjóðinn og landhelgissjóðinn. Fyrir þeim hefir aðeins vakað það, að afla ríkissjóði tekna, og er það út af fyrir sig gott og blessað. En hitt er annað mál, á hvern hátt það er gert. Og það hlýtur að orka tvímælis, hvort gott sje eða jafnvel sæmilegt að gera það á þennan hátt. Jeg vil taka það fram strax, að — eins og sjá má af nál. — jeg álít þetta vont mál. Þetta frv. er eitt af tveimur frv., sem hjer liggja fyrir til úrlausnar í dag um einkasölu, sem á máli þeirra, sem eru fylgismenn frjálsrar verslunar, heitir einokun. Hjá þeim, sem altaf hafa skaðsemi einokunarinnar fyrir augum, ætti þetta ekki að vera meðmæli með frv. En fyrir mjer er þetta ekkert aðalatriði, heldur hitt, að hjer er gengið inn á þá braut að afla ríkissjóði tekna á ósæmilegan hátt. Með frv. gengur ríkissjóður inn á að veita útlendum fjáraflamönnum einkaleyfi til þess að reka hjer þá verslun, sem flestar siðaðar þjóðir telja óalandi. Þess vegna hafa nágrannaþjóðirnar leitt í lög að banna slíka verslun. En frv. gerir ráð fyrir, að í skjóli lagaverndar hins íslenska ríkis sje útlendingum veittur þessi rjettur, og að í skjóli þessa rjettar bjóði þeir þessa seðla út um heiminn, þar sem það er leyfilegt, og jafnvel líka þar, sem það er bannað. Eina skilyrðið, sem sett er, er það, að ríkissjóður fái tekjur. Jeg verð að líta svo á, að þetta sje tæplega samboðið hinu háa Alþingi, og síst á því sama þingi, sem samþykt eru lög um að banna útlendingum alla slíka verslun hjer. Af ýmsum er svo talið, að Alþingi sje spegill þjóðarinnar, en jeg mótmæli því, að hjer sje brugðið upp rjettum spegli og í honum sýndur hinn sanni þroski þjóðarinnar. Enn er meiri hluti hennar á svo háu þroskastigi, að hann álítur, að ekki sje sama, á hvern hátt fjárins er aflað. Hann vill vinna fje úr skauti náttúrunnar á eðlilegan hátt, enda er það hið eina, sem gildi hefir í þessu efni. Mörgum kann að sýnast, að ekki sje ástæða til að tala hátt um þetta, þar sem hið íslenska ríki hefir nú allverulegan hluta tekna sinna af sölu áfengra drykkja, og má segja, að það sje engan veginn viðeigandi. En þess ber að gæta, að hjer er dálítil afsökun fyrir hendi, þar sem þetta er neyðarástand, sem fjarskyld þjóð hefir knúið fram. Engin slík afsökun liggur til grundvallar fyrir þessu frv. Það má segja, að með þessu frv. sje lögverndað athæfi, sem íslenska þjóðin, eða að minsta kosti Alþingi, hefir talið að væri böl, sem ætti að sporna við, og jeg hygg, að það böl hafi Alþingi talið að lægi í aukinni spilafýsn hjá þjóðinni, einkum yngri hluta hennar, sem hættara er að rasa fyrir ráð fram.
Ef gengið er inn á þá braut að afla ríkissjóði tekna hvernig sem hægt er, þá er ástæða til að spyrja, hvað langt verði gengið í því. Þessu frv. fylgir engin trygging fyrir, að hjer verði staðar numið. Það væri hugsanlegt, að næsta stigið yrði opinber spilabanki og þar næsta stigið einkaleyfi fyrir útlendinga til að reka hjer pútnahús, kannske í hverjum kaupstað, ef aðeins það skilyrði er uppfylt, að ríkissjóður fái tekjur. Jeg verð að segja, að mjer finst engin fjarstæða að láta sjer detta slíkt í hug. Lotterí er spilabanki upp á vissan máta, og að þetta gæti þróast svo, að svo langt yrði gengið, er ekkert ósennilegt; að minsta kosti er engin trygging fyrir því, að það geti ekki orðið. Jeg minnist þess, að fyrir 30–40 árum las jeg í blaði, sem þá var gefið út hjer í Reykjavík, grein, þar sem talað var um, að það væri athugavert, hvort ekki væri rjett að setja hjer á fót stofnun líka þessari, sem jeg nefndi síðast, svo að menn sjá, að þessi hugmynd er ekki ný. Jeg hefi ekki búið hana til. (Forseti: Þetta kemur ekki málefninu við). Jeg skal ekki fara langt út í þetta, en mjer finst engin fjarstæða, þó að manni detti slíkt í hug, þegar maður hefir þetta frv. fyrir framan sig. Jeg verð að líta svo á, að bæði mjer og öðrum sje heimilt að bera það traust til Alþingis, að það afgreiði ekki þetta mál, og þá sjerstaklega til Ed., sem af þjóðinni er álitin vera kjarni þingsins. Það skal játað, að mistök hafa orðið um einstök mál á þessu þingi, en þrátt fyrir það þarf ekki að fara svo um þetta mál. Jeg vænti þess fastlega, að hv. deild ljái ekki þessu frv. fylgi sitt. Jeg hefi bent á, að jeg get ekki komið auga á neitt það, sem geti orsakað fylgi við þetta frv., nema tekjuvonina fyrir ríkissjóð. Hve mikil hún er, get jeg ekki um dæmt, enda hirði jeg ekki um hana. Um einstök atriði frv. hirði jeg ekki að ræða. Hjer er um stefnumun að ræða, og þá koma einstök atriði ekki til greina. Ef svo eru þrotin öll ráð með tekjur ríkissjóðs, að grípa verði til þessa, verð jeg að telja, að illa sje farið.