29.04.1926
Neðri deild: 65. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 1947 í B-deild Alþingistíðinda. (1651)
110. mál, sala á síld o. fl.
Tryggvi Þórhallsson:
Aðeins örfá orð. Jeg ætla mjer ekki að hætta mjer inn á að tala alment um það mál, sem hjer liggur fyrir. Jeg játa, að til þess er jeg ekki nógu kunnugur þessum atvinnurekstri. Mjer er það ljóst, að hjer er verið að taka upp nýja stefnu og mjög sveigt í einkasöluáttina, og það af mönnum, sem áður hafa mjög tjáð sig andvíga öllu slíku. Jeg segi þetta þessum mönnum til hróss, að þeir hafa látið sannfærast af reynslunni. Og eftir því, sem mjer virðist, þá er stefna frv. alveg rjett frá sjónarmiði íslenskra framleiðenda. En jeg vil ekki láta hjá líða að benda á það, að málið hefir aðra hlið, sem snýr út á við, og jeg vona, að hæstv. stjórn gæti þess, að við verðum ekki fyrir neinum óþægindum út á við sökum afgreiðslu þessa máls. Sú hlið snýr aðallega að þeim, sem síldina kaupa, en það eru Svíar. En Norðmenn, sem stunda þessa veiði allmikið, koma hjer líka til greina. Jeg hygg, að ekki geti hjer orðið um alvarlegan árekstur að ræða. En jeg vil beina því mjög alvarlega til háttvirtrar sjávarútvegsnefndar og hæstv. stjórnar, að það sje vel athugað, að við fáum ekki nein óþægindi vegna þessa máls, einkum frá Norðmönnum. Jeg vil leggja áherslu á það, að þetta komi ekki á neinn hátt í bág við þann samning, sem við höfum gert við þessa þjóð vegna aðalútflutningsvöru landbúnaðarins.