14.05.1926
Efri deild: 76. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2060 í B-deild Alþingistíðinda. (1708)

110. mál, sala á síld o. fl.

Ingibjörg H. Bjarnason:

Jeg skal ekki tefja hv. deild með langri ræðu, en þar sem jeg tók fram við 2. umr., að jeg greiddi frv. atkv. til 3. umr., þykir mjer hlýða að gera nokkra grein fyrir atkvæði mínu nú. Jeg vil lýsa yfir því, að jeg er yfirleitt á móti einkasölu eftir sem áður, en mjer virðist, að fyrir þessu frv. sjeu svo góðar og gildar ástæður færðar, að jeg og aðrir liðsmenn frjálsrar verslunar geti samþykt það með góðri samvisku, og það því fremur, sem það á aðeins að gilda í 5 ár. Mun jeg því greiða atkv. með frv.