27.04.1926
Efri deild: 60. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 685 í B-deild Alþingistíðinda. (173)
1. mál, fjárlög 1927
Sigurður Eggerz:
Jeg sneri mjer til hv. fjvn. og fór þess á leit, að hún tæki upp tillögu um að veita skáldkonunni Kristínu Sigfúsdóttur 1200 kr. styrk í 18. gr. fjárlaganna. Hv. nefnd hefir lækkað upphæðina lítið eitt og sett 1000 kr. í staðinn fyrir 1200 kr. Jeg er hv. nefnd þakklátur fyrir undirtektir hennar. Jeg verð að líta svo á, að þessi kona sje einkennilegt fyrirbrigði í okkar andlega lífi. Hún hefir enga mentun fengið nema þá, sem hún hefir aflað sjer sjálf. Hún og maður hennar eru einyrkjar og hafa alla tíð barist við fátækt en í frístundum sínum hefir konan skrifað merkileg skáldrit, sem bera vott um óvenjugóða hæfileika. Frá bókum hennar andar hollum og hlýjum blæ yfir alt okkar þjóðlíf, og vil jeg lýsa ánægju minni yfir skilningi hv. fjvn. á þessu máli. Vona jeg, að þessi kona geti nú helgað líf sitt meira listinni en hingað til. Jeg vona, að þessi hv. deild samþykki till. um Kristínu Sigfúsdóttur skáldkonu og að enginn ágreiningur verði um það, að hún sje þessa makleg. Jeg hefi ekki með meiri ánægju mælt með neinni viðurkenningu, og jeg treysti því, að hv. Nd. fallist á hana.
Þá kem jeg að 10. brtt., um ferju á Hrosshyl. Það er þýðingarlítið atriði að vissu leyti, því að víða eru ferjur ekki í því ástandi, sem þær ættu að vera. En hjer er um svo litla upphæð að ræða, aðeins 300 kr., svo að ekki getur þetta talist sparnaðartill. Aftur á móti er hjer um samgöngubót að ræða, og vona jeg, að hv. deild felli brtt.
Þá kem jeg að 16. brtt., sem er við 14. gr., um að fella niður styrk til Helga Hjörvars. Mjer finst umr. lýsa kulda til málsins, en hjer á árunum þótti sjálfsagt að veita slíka styrki, enda er það vel farið, því að þeir menn gegna einhverju þýðingarmesta starfi hjer á landi, að sjá um uppeldismálin. Þessi maður ætlar nú að fara utan til þess að kynna sjer þar samstarf milli heimila og skóla, og jeg álít, að hann sje mjög vel fallinn til þess að setja sig inn í slík vandamál. Hann er líka skáld og hefir gefið út bók eftir sig, sem mikið þykir til koma. En skáld hafa meira hugmyndaflug en aðrir menn og eru fljótari til að skilja og kynna sjer ýmsa hluti. Jeg vildi, að árlega væri tekinn upp í fjárlögin utanfararstyrkur til kennara, svo að þeir, sem eiga að móta hið viðkvæma sálarlíf barnanna, hafi sem best skilyrði til þess. Og þegar þess er gætt, að stórfje er árlega varið úr ríkissjóði til barnafræðslu, þá er það hreint og beint nauðsynlegt, að kennurum sje gefinn kostur á að kynnast sem flestu, er að því lýtur að gera barnafræðsluna betri en áður. Vona jeg því, að þessi brtt. verði feld.
Svo er brtt. 20. um að í stað útgáfu á „Lögum Íslands“ komi: Lagasafni handa alþýðu. Jeg held nú, að þetta sje ekki heppileg breyting. Í Lagasafni alþýðu er margt úrelt, sem almenningur er ekki fær um að dæma um. Jeg tel því miklu rjettara að gefa út „Lög Íslands, öll þau er nú gilda“, og legg þess vegna til, að brtt verði feld.
Jeg leyfi mjer að taka í sama strenginn og hæstv. forsrh. (JM) um kaup á listaverkum. Það er hin besta viðurkenning fyrir listamenn, að verk þeirra sjeu keypt.
29. brtt. er um það að færa niður styrk til frú Guðrúnar Indriðadóttur. Jeg veit ekki til þess, að þessi ágæta leikkona hafi fengið styrk áður. Hún ætlar nú að kynna sjer þjóðdansa, t. d. í Noregi, og jafnframt leiklist. Jeg vil minnast hjer á það, hve snildarlega hún ljek í „John Storm“ og „Fjalla-Eyvindi“. Jóhann Sigurjónsson skáld dáðist að leik hennar, og hafði hann þó sjeð frú Dybvad leika Höllu. Mjer finst því hart að fara að skera þennan litla styrk við neglur sjer og vona, að brtt. fjvn. nái ekki fram að ganga.
Þá er 45. brtt. um að veita Boga Brynjólfssyni sýslumanni lán til þess að koma upp embættisbústað. Hv. deild ætti að vita það, að sýslumenn eiga við erfið kjör að búa, en þrátt fyrir það hafa þeir orðið að greiða allmikinn skrifstofukostnað af launum sínum. Jeg skal ekki fjölyrða um þetta nú, en mun leyfa mjer við 3. umr. fjárlaganna að bera fram till. um að skrifstofukostnaðurinn sje hækkaður, svo hægt sje að fullnægja lögunum. Og mjer finst ekki óeðlilegt, að ríkissjóður hlaupi undir bagga með þeim, þá er þeir þurfa að koma sjer upp bústað, því að sje ekki ljett undir með þeim, hefnir það sín með árum. En að þessu skal jeg koma betur við 3. umr.
Jeg vil mæla með styrk til bifreiðaferða suður með sjó, sem hv. 1. þm. G.-K. (BK) ber fram, því að hann er ekki kröfuharður. Að öðru leyti mun jeg við atkvgr. sýna afstöðu mína til hinna ýmsu brtt.