14.05.1926
Neðri deild: 78. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2071 í B-deild Alþingistíðinda. (1732)

125. mál, seðlaútgáfa

Klemens Jónsson:

Mjer finst sjálfsagt um slíkt mál sem þetta að vísa því til fjhn., og þess vegna greip jeg fram í fyrir hæstv. fjrh. Hinsvegar álít jeg það sjálfsagt, að nefndin þurfi ekki að skila prentuðu áliti, heldur nægilegt að hún gefi munnlegt álit. Mjer hefir nýlega borist erindi, sem gerir það nauðsynlegt, að fjhn. komi á fundi í dag, svo að það er ekkert ómak fyrir nefndina að taka þá þetta mál til umræðu.