14.05.1926
Neðri deild: 79. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2075 í B-deild Alþingistíðinda. (1738)
125. mál, seðlaútgáfa
Fjármálaráðherra (JÞ):
Jeg vil aðeins taka það fram, að það er heldur ofmælt, að þetta sje borið fram í samræmi við stjórn Landsbankans. Frv. er samið í floti og hefi jeg aðeins borið mig saman við einn bankastjóranna. Auðvitað má segja, að þetta sje allri bankastjórninni kunnugt, þó að hún hafi ekki beinlínis tekið afstöðu til þess.