20.03.1926
Neðri deild: 36. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2218 í B-deild Alþingistíðinda. (1796)

15. mál, útsvör

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg skal vera mjög stuttorður, því jeg veit, að mönnum eru farnar að leiðast hinar löngu umræður um þetta mál. Mjer er það gleðiefni, — og svo er um fleiri, sem hafa svipaðar skoðanir og jeg, — að frv. þetta fer í rjetta átt. Það ætlast ekki til, að framvegis verði verið að elta menn með útsvarsálagningar, þó þeir snúi sjer eitthvað við í atvinnurekstri sínum. Jeg ætla ekki að tala um frv. alment, en víkja nokkrum orðum að einstaka brtt. frá nokkrum hv. þm.

Er þá fyrst brtt. á þskj. 156. frá hv. 1. þm. N.-M. (HStef). Hann vill fella úr frv. ákvæði um, að atvinnumálaráðh. hafi vald til að hindra það, að útsvar fari fram úr tilteknum hundraðshluta af meðaltali tekna fyrirfarandi þriggja ára. Jeg álít, að þetta sje mjög nauðsynlegt ákvæði, og miklu fremur nú og framvegis en verið hefir til þessa. Það er of kunnugt til þess, að þurfi að minna á það, að Alþingi hefir veitt ýmsum sveitum lán og ábyrgðir til ýmsra framkvæmda, svo hundruðum þús. kr. nemur, og búast má við, að enn meira verði um þessar lánveitingar og ábyrgðir framvegis, er rafvirkjunum fer að fjölga. Því er það ekki nema eðlilegt, að ríkisstjórnin hafi eftirlit með því að sveitar og bæjarstjórnir hagi fjármálum sínum með skynsemd og ráðist ekki í framkvæmdir, sem sýnilega geta stofnað fjárhagslegu sjálfstæði þeirra í tvísýnu eða voða, og þar með veikt eða eyðilagt þá tryggingu, sem ríkissjóður hafði fyrir láni sínu eða ábyrgð. Jeg álít því ekki áhorfsmál að fella þessa brtt.

Hv. þm. (HStef) hefir nú að vísu tekið aftur til 3. umr. 4–6. brtt. sína á þskj. 156, en viðvíkjandi 6. brtt., sem hv. allshn. ætlar að athuga til 3. umr., vil jeg benda hv. nefnd á að ef brtt. verður samþykt, er þar með spilt þeim grundvelli sem frv. er bygt á, — að leggja skuli útsvar á menn eða fjelög þar sem þeir eða þau eru til heimilis, en brtt. þessi leggur útsvarsskyldu á erlend tryggingarfjelög þar, sem umboðsmenn — aðal- eða undirumboðsmenn — eru búsettir. Jeg tel sjálfsagt að leggja þar útsvar á þessi fjelög, sem aðalumboðsmenn þeirra eru búsettir. Úti um land er heldur ekki um neinar tekjur að ræða af erlendum tryggingarfjelögum. Það mætti kannske í hæsta lagi ná af þeim 20–30 kr. í útsvar í stærstu kaupstöðunum. en það ber að athuga, að það er mjög erfitt að leggja á tryggingarfjelög, því þau geta vel tapað á einu ári upphæðum, sem þau hafa verið um 20 ár að draga saman í iðgjöldum. Niðurjöfnun á slík fjelög getur því aðeins orðið sanngjörn, að hægt sje að hafa til hliðsjónar yfirlit yfir allar tekjur, sem hvert fjelag hefir á öllu landinu. Að fara að taka þessa starfsemi eina undan, nær ekki neinni átt.

Þá kem jeg að fyrstu brtt. á þskj. 134.

Það má kannske segja, að nú sem stendur sje svo ástatt í flestum hreppum landsins, að allur fjöldinn greiði hærra útsvar en 30–40 kr.; en við það er það að athuga, að ef peningarnir færast aftur í sama eða svipað horf að verðgildi og þeir höfðu áður, fer svo, að allur þorri manna ber hægri útsvör en hjer er gert ráð fyrir. Sveitarþyngsli eru víða ekki meiri en svo, að meiri hluti gjaldenda greiðir lægri útsvör en þetta. Jeg þekki t. d. hreppa í Norður-Ísafjarðarsýslu, þar sem útsvörin voru svo lág um eða fyrir aldamótin síðustu, að aðeins 3 eða 4 menn höfðu hærri útsvör en 30 krónur. Væri þá vit í því, að svo fáir gjaldendur bæru alla aukabyrðina. Hv. þdm. verða að gæta þess, að hjer er verið að semja lög, sem helst ættu að standa áratugi.

Hv. 2. þm. Eyf. (BSt) andmælti brtt. hv. þm. Borgf. (PO) (þskj. 125), um undanþágu útsvarsskyldu skipa, sem koma inn til afgreiðslu utan heimilissveitar, og má auðvitað ýmislegt um þetta segja. Það getur vel átt sjer stað, eins og hv. þm. (BSt) benti á, að ætti sjer stað með Siglufjörð, að atvinnusveit þurfi að fá tekjur af þessum atvinnuleitendum, en þá ber einnig að líta á hitt, hvort útgerðin eða aðrar slíkar verklegar framkvæmdir í landinu þola þessar álögur á mörgum stöðum í senn. Það er vel hægt að sjá, að það er ekki til að ýta undir framtakssemi manna, ef þeir geta átt von á að verða að greiða útsvör á 2–3 stöðum á landinu á hverju ári. Við skulum taka sem dæmi útgerðarfjelag með heimilisfangi í Hnífsdal við Ísafjarðardjúp. Það hefir útibú í Álftafirði við Ísafjarðardjúp, stundar veiðar á vetrarvertíð við Faxaflóa (í Miðnessjó), seinni hluta er farið til Vestmannaeyja og þar stundaðar netaveiðar, og að sumrinu stundaðar síldveiðar á Siglufirði. Fjelag þetta verður því að gjalda útsvar af skipum sínum á stöðum á landinu. Mjer finst því vera öllu nær að taka til athugunar brtt. hv. þm. Borgf. og íhuga, hvort yfir höfuð eigi að gera útsvarsskyldu á hendur þessum mönnum. En ef það á að vera heimilt að leggja á þá víðar en á einum stað, er sjálfsagt og skylt að tryggja hagsmuni heimilissveitarinnar og fela henni álagningu, því hún þekkir best allar átæður atvinnurekandans. Atvinnusveitin þekkir aftur á móti venjulegast ekkert til efnahags útgerðarmanns, veit aðeins, að báturinn, eða bátarnir, hafa aflað vel eða sýnilega. — og leggur útsvarið á samkvæmt þessu.