16.04.1926
Neðri deild: 55. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2248 í B-deild Alþingistíðinda. (1807)
15. mál, útsvör
Hákon Kristófersson:
Jeg gat þess við 2. umr. þessa máls, að jeg mundi leitast við að koma fram með brtt. við 3. umr. Jeg skal taka það fram, að mjer var það þegar ljóst, að þótt jeg vildi koma með ítarlegar brtt. við frv., þá er aðstaða mín svo ólík aðstöðu háttv. nefndar, sem haft hefir málið til meðferðar langan tíma og þar af leiðandi þrauthugsað tillögur sínar, að mínar brtt. gætu aldrei orðið eins mikils grundvallarlegs eðlis og jeg hefði viljað. T. d. hefði jeg viljað fella niður þá ákvörðun frv., er jeg tel einna versta, að reikningsár sveita skuli vera almanaksárið. Jeg verð því að sætta mig við það, þótt svo verði sagt, að færri rök hafi verið færð fram fyrir brtt. mínum og ekki svo vandað til þeirra sem skyldi. Þær miða þó allar í þá átt að gera frv. auðveldara í meðförum og framkvæmd.
Brtt. mínar eru á 2 skjölum, 334. og 352. Jeg hafði fyrst samið brtt. á þskj. 334, en við nánari athugun og með ráðum góðra manna komst jeg að þeirri niðurstöðu, að samræmis vegna þyrfti einnig brtt. við 9. og 10. gr.
Að gefnu tilefni skal jeg geta þess, að það var af gleymsku eða athugaleysi, að jeg legg til á þskj. 334, að 24. gr. frv. falli niður. Sú í till. var feld hjer við 2. umr., og mun því efasamt, hvort hún getur komið til atkv. Því vil jeg samt skjóta til úrskurðar hæstv. forseta. Falli úrskurður hans í þá átt, að brtt. þessi geti ekki þingskapa vegna komist að, neyðist jeg til að taka hana aftur.
Þá skal jeg snúa mjer að brtt. við 3. gr., þar sem eru þau ákvæði, að útsvör megi aldrei nema meira en meðaltali útsvara í sveitinni 3 síðustu árin, nema „sýslunefnd veiti hreppsnefndum til þess samþykki sitt, en atvinnumálaráðherra bæjarstjórnum.“ Þetta ákvæði er gamalt, og mætti ef til vill segja, að það hefði mátt sætta sig við það. En óhætt mun að fullyrða það, að slík ákvæði sem þessi voru ef til vill nauðsynlegri fyrir rúmum 20 árum en nú, ef það hefir þá nokkurntíma verið nauðsynlegt, sem jeg tel líklegast. Hreppsnefndir eru nú orðnar svo vanar sveitarstjórnarmálum, að það segir sig sjálft, að þær leggja engin aukagjöld á, nema brýn nauðsyn krefji. Jeg legg því til, að þessu ákvæði verði breytt þannig að í stað sýslunefnda og bæjarstjórna verði lögmætir borgarafundir að samþykkja slíka hækkun útsvara. Fæ jeg ekki betur sjeð en fullkomin sanngirni mæli með samþ. þessarar tillögu, hvernig sem á er litið. Jeg skal ekki deila neitt um þetta atriði; það er öllum svo ljóst, að óþarfi er að skýra það frekar.
Þá er b.-liður brtt., að í stað „stjórnarvalda“ komi „aðilja“. Það er aðeins nauðsynleg leiðrjetting, ef a.-liðurinn verður samþyktur.
Þá er 2. brtt., við 5. gr., sem jeg legg til, að falli niður. Eins og jeg hefi áður bent á, er greinin algerlega óþörf. Um það efni, sem greinin ræðir um, hefir aldrei nein óánægja átt sjer stað. Og mjer vitanlega hafa hvergi komið fram óskir um sjerstök framtöl til útsvarsálagningar, enda mundu slík lagaboð, þó samþ. verði, aðeins verða pappírslög. Þessi grein gæti átt við um framtal til skatts, en um framtal til útsvars er hún alveg óþörf. Jeg býst og við því, að hv. þdm. viti, að framtal er svo á reiki, að því er í rauninni ekkert græðandi; það er enginn grundvöllur til þess að byggja á. En þeir, sem hafa óbifanlega trú á slíkum skýrslum, geta látið sjer það nægja, að trygging fyrir rjettri upptalningu er komin eða á að vera komin í skattskýrslunum.
Þá er 3. brtt.. við 6. gr., og miðar hún að því að fella niður 5 króna útsvarslágmark, en láta það vera komið undir dómi niðurjöfnunarnefndar, hvaða útsvör hún álítur menn færa um að greiða.
Vitanlega getur mjer ekki verið það neitt kappsmál, hvort þessi tillaga verður samþ. eða ekki, en mjer þykir gaman að vita, hvort menn geta mælt í móti því af sanngirni, að enginn megi bera t. d. 4 kr. útsvar, þó ekki væri sanngjarnt að leggja á hann 5 kr. Atriði þetta er þess eðlis, að það er engin grundvallarröskun á frv., og er þetta svo auðskilið, að jeg skal ekki fara frekar út í það. Umkvartanir um, að hreppanefndir rjeðu því sjálfar, hvaða menn þær telja færa um að bera útsvar, hafa ekki átt sjer stað. Óánægjan um útsvörin er um alt annað efni. En tökum t. d. fátækan hrepp. Þar geta verið 10–20 menn, sem eru færir um að bera 4–4,50 kr. útsvar, en þau útsvör gætu fallið undan eftir frv., og hreppnum orðið að því talsvert óhagræði.
Þá er 4. brtt. mín, við 8. gr. stafl. b. Þar legg jeg til, að í staðinn fyrir „laxveiði“ komi: „eignarrjettur yfir laxám“. Það má vera, að þetta sje ekki nóga ljóst orðið, og skal jeg því reyna að skýra, hvað fyrir mjer vakir. Jeg álít, að með því fyrirkomulagi, sem nú er, megi skilja frv. svo, að ef t. d. einhver labbar upp í Elliðaár og veiðir þar með leyfi, sem hann hefir borgað fyrir, þá megi leggja á hann útsvar í þeirri sveit, þar sem áin er. En þetta getur orðið tafsamt og erfitt, jafnvel ómögulegt að ná útsvari hjá þeim mönnum, jafnvel samkv. frv. Fyrir mjer vakir það, að hægt sje að leggja útsvar á þá, sem eiga veiðirjett í ám eða vötnum, þótt ekki eigi þeir eignarrjett á jörðum í þeirri sveit. Það er sama að segja um þessa brtt. eins og hinar, að jeg legg það undir dómgreind háttv. þdm., hvort þeir vilja fallast á hana.
Þá eru 2 smávægilegar brtt. við 9. gr., önnur á þskj. 334. en hin á þskj. 352. Fyrri brtt., um að á eftir orðinu „selveiði“ komi „á þilskipi“, kemur til af því, að jeg vil ekki, að það misskiljist, hvað við er átt. Jeg býst við því, að hjer sje átt við Íshafsselveiði, og ef þessum orðum er bætt inn í greinina, þá leiðir það af líkum, að ekki getur verið átt við nótaveiði, sem heyrir undir leiguliðaafnot. Býst jeg við, að þessi skilningur minn sje rjettur, enda byggi jeg það á umsögn eins virðulegs manns úr allshn.
Þá eru brtt. á þskj. 352, sem eiga við 9. og 10. gr., og er seinni liðurinn aðeins til samræmis, ef hinn fyrri skyldi vera samþ. Þar miða báðar að því að koma í veg fyrir að hægt sje að leggja tvisvar sinnum sama árið á mann, sem flyst búferlum, eða að reglurnar, sem gilt hafa um þetta, gildi áfram. Jeg hefi mikinn vilja á því að samrýma mínar skoðanir við skoðanir annara hv. þdm., en jeg get ekki sjeð, að það styðjist við neinn rjett að breyta fyrra fyrirkomulagi í þessu efni. Við skulum taka t. d., að lagt sje á mann í febrúar hæfilegt útsvar, miðað við þörf sveitarinnar og gjaldþol mannsins. Svo flyst hann í aðra sveit í júní. Ef jeg skil nú frv. rjett, þá má leggja á manninn í þeirri sveit líka, ef þar eru meiri sveitarþyngsli en í hinni sveitinni. Eins færi, ef hann flyttist í sveit, þar sem minni sveitarþyngsli væru, þá mætti hann búast við endurgreiðslu frá burtfararsveitinni. Er þá vafasamt, á hvaða grundvelli er bygt. Áður en hreppsnefndir fara að jafna niður útsvörum, gera þær altaf áætlun um allar tekjur og gjöld hreppsins yfir næsta reikningsár, og í flestum hreppum mun gjaldþol manna teygt og togað eins og framast má verða. Þetta hefir þó ekki valdið ágreiningi áður, og er betra að láta það atriði standa óhreyft, því að skiftingin verður altaf til erfiðleika.
6. brtt., við 12. gr., er í samræmi við þetta, að í staðinn fyrir niðurlag 1. málsgr. komi: „Sömu meðferð skal hafa, ef gjaldþegn á lögheimili víðar en í einni sveit.“
Þá er 7. brtt., við 16. gr., sem jeg vil breyta svo, að í staðinn fyrir „sýslunefnd“ komi hreppsfundir, sem boðað hefir verið til á löglegan hátt. Þessa heimild, að ákveða þóknun fyrir niðurjöfnunarstörf, vil jeg fela sveitafundum, en ekki sýslunefnd. Þetta er einkamál hverrar sveitar, eins og sjest á því, að þessari heimild verður ekki beitt nema eftir ósk úr hverjum hreppi. Jeg mintist á það við 2. umr., að jeg teldi borgun óþarfa, því að þessi kvöð hefir nú verið á mönnum áður endurgjaldslaust, og jeg álít, að minst af starfi hreppsnefnda fari í niðurjöfnun. heldur meira í annað. Og það er óþarft að launa menn bara fyrir það að sitja á niðurjöfnunarfundi, því að það tekur ekki marga daga.
Þá er 8. brtt., við 78. gr. Vil jeg, að síðasta málsgr. hennar orðist svo;
„Niðurjöfnunarnefndarmönnum er bannað, að viðlagðri ábyrgð eftir ákvæðum almennra hegningarlaga um embættis- og sýslunarmenn, að skýra óviðkomandi mönnum frá því, er þeir komast að sökum starfa síns um efnahag gjaldþegna.“
Jeg tek þarna upp orðrjett grein úr gildandi skattalöggjöf. Ef frv. verður samþykt, eiga niðurjöfnunarnefndir að komast að hinu sama um efnahag manna og skattanefndir, og eiga því að vera bundnar sömu þagnarskyldu og þær. Vona jeg, að hæstv. atvrh., allshn. og háttv. deild fallist á, að það sje rökrjett hugsun í brtt. Hinsvegar skiftir mig það engu, þótt hún sje feld. Jeg hefi gert skyldu mína, að reyna að færa þetta til betri samrýmingar.
Þá er 9. brtt., við 21. gr. Hún er lítils virði, að efni og skýrir sig sjálf. Jeg legg það til, að aðalniðurjöfnun fari fram á tímabilinu janúar-maí, í stað þess, að í frv. stendur febrúar-maí. Um hana má hið sama segja og aðrar brtt. mínar, að hún er þess eðlis, að hún raskar ekki rjettargrundvelli frv., þótt hún verði samþ.
Þá kemur 10. brtt., við 22. gr., og er hún í tveim liðum. Í a.-lið legg jeg til, að orðin „eða nefndin hafi í hyggju .... borið sig saman við hann“ í fyrstu málsgrein falli burt. Þessi ákvæði eiga að falla niður. Þau eru óþörf og ótæk og eiga ekki í frv. að vera. Það getur verið háð dutlungum hverrar hreppsnefndar eða niðurjöfnunarnefndar, hvað hún eltir einn mann með álögum, svo framarlega sem þessi ákvæði frv. verða látin standa óbreytt. Við skulum taka dæmi Nú er lagt á einhvern gjaldanda, og þegar komið er að því, að kærufrestur er úti, kemst nefndin að þeirri niðurstöðu, að hækka beri á honum, en þegar hann fær að vita það, er komið alveg að því, að kærufrestur sje útrunninn, eða ef til vill liðinn, og getur hann þá ekki borið sig saman við aðra í sveitinni.
Jeg held, eins og jeg hefi tekið fram, að engar umkvartanir hafi komið fram út af gildandi löggjöf hvað þetta snertir. Það er ekki nema eðlileg afleiðing, ef a.-liðurinn verður samþ., að jeg legg til í b.-lið, að 3. málsgr. falli niður.
Þá kemur 11. brtt., við 23. gr. frv. Þetta er grundvallarbreyting á frvgr. og grundvallast á því, að jeg vil, að í stað skattanefnda komi sýslunefndir. Þó verð jeg að viðurkenna, að talsverðir agnúar eru á því að fela þetta sýslunefndum; tel jeg það þó betra en að fela það skattanefndum, því að mínu áliti mælir flest á móti þeim. Þær þurfa að koma saman sjerstaklega til að úrskurða um útsvarskærur. Þær þurfa að fá borgun fyrir ómak sitt, og verða það tugir króna og eykur það útgjöld á sýslusjóðum, og þar sem sýslunefndir koma saman árlega, geta þær firt þessum kostnaði. Ef slá má því föstu, að betur sjái engu en auga, þá er síður hætt við ónákvæmni hjá þeim en hjá mönnum, eins og eru vanalega í skattanefnd. Auk þess gerir þessi grein hreppsnefndum erfiðara fyrir, eykur skriffinsku, enda virðist sá mælir aldrei verða of fullur, því að eftir greininni er skylt að láta í tje skrá yfir útsvörin.
Jeg hefi ennfremur lagt til, að úrskurði sýslunefnda verði ekki áfrýjað og að í stað sýslunefnda komi í kaupstöðum bæjarstjórnir. Jeg hefi heyrt það borið á móti till. minni, að bæjarstjórnir sjeu frekar hlutdrægar en skattanefndir, en valinkunnir menn býst jeg við, að sjeu valdir í bæjarstjórnir engu síður en skattanefndir, og þess vegna þetta atriði í brtt. óhæft. Jeg held nú, að ef slíkt getur komið fyrir, geti það alveg eins átt sjer stað með skattanefndir, og jeg sje ekki, að rökin á móti till. minni geti orðið veigameiri en það, sem mælir með henni. Jeg sleppi að sinni fleiri orðum um þessa brtt. Hún skýrir sig sjálf, og læt jeg háttv. deild um það, hvað um hana verður. Vitanlega hefi jeg ekkert vald um það.
Þá er loks 13. brtt., við 26. gr., um það, að jeg vil, að orðin „ekki má yfirskattanefnd“ til enda greinarinnar falli burt. Í greininni stendur: Ekki má yfirskattanefnd eða atvinnumálaráðuneyti heldur breyta útsvari, nema svo reynst, að það hafi verið a. m. k. 10% of hátt eða of lágt.
Jeg tel þetta ákvæði óhafandi og eigi að falla niður, og eins, að kærum, sem koma eftir kærufrest, verði ekki sint. Þá býst jeg t. d. við, að það sje svo í lögum, að mismunandi refsing sje lögð við hinum ýmsu brotum, en jeg býst ekki við því, að brotið þurfi að vera svo eða svo mikið til þess að það skuli tekið til meðferðar. Og ef maður hefir fengið 2000 kr. útsvar, þá er ekki rjett að meina skattanefnd að færa útsvarið niður, ef hún álítur, að útsvarið eigi að lækka um minna en 200 kr.
Jeg vil taka það fram, að jeg hefði viljað fara ítarlegar út í að koma fram með brtt. við frv., og einkum hvað snertir fardagaárið og gjalddagann. Jeg hygg að þar mætist röksemdirnar og jeg held, að það sje bara verra að hafa gjalddagana tvo, og jeg þori að fullyrða, að reynsla mín í þessu efni sje fult eins trygg og dómar þeirra manna, sem hafa styttri æfingu en jeg í útsvarsálagningu og innheimtu á sveitargjöldum. En jeg get ekki verið að eltast við að koma með fleiri brtt. Bæði var það, að mig brast nægilegan tíma til þess og svo hitt, að jeg taldi líklegt sökum þverúður ýmsra hv. deildarmanna, að óhugsandi væri, að neinar grundvallarbreytingar á frv. yrðu samþyktar.
Hvað viðkemur nefndinni, þá býst jeg við því, að hún hafi ráðið það við sig að ljá ekki brtt. mínum liðsyrði, og það er ekki í mínu valdi að ráða við það. En eins og gefur að skilja, þá hefi jeg ekki farið ómildum orðum um þá, sem á móti þeim hafa talað. Jeg hefi stilt orðum mínum í hóf, til þess að hv. andmælendum mínum mislíkaði ekki.
Jeg býst við að enn komi fram andmæli frá þeim, og get jeg þá látið staðarnumið að sinni, en jeg mun þá ef til vill gera frekar grein fyrir brtt. mínum um leið og jeg svara þeim, sem jeg býst við, að eigi eftir að tala á móti mjer.