16.04.1926
Neðri deild: 55. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2259 í B-deild Alþingistíðinda. (1809)
15. mál, útsvör
Bernharð Stefánsson:
Jeg á nokkrar brtt. við þetta frv. á þskj. 226. Eru þessar brtt. mínar í samræmi við þá skoðun, sem jeg hefi áður látið í ljós um þetta mál, og get jeg því að miklu leyti vísað til þess, sem jeg sagði um það við 2. umr. Jeg hefi haldið því fram, að frv. gangi of langt í því að skerða rjett atvinnusveitar. Jeg hefi að vísu viðurkent þörfina á því að takmarka hann að einhverju leyti og samræma ákvæðin um útsvarsskyldu, en mjer hefir samt þótt fulllangt gengið í þessu, bæði frá hendi hæstv. stjórnar og eins og málið liggur nú fyrir.
Þessar brtt., sem jeg ber fram, miða að því að fara gætilegar í þessu efni en til er stofnað í frv. Fyrsta brtt., við 8. gr., er í tveimur stafliðum; a.-liðurinn er við b.-lið 8. gr., sem jeg vil breyta þannig, að á eftir orðinu „laxveiði“ komi: selveiði. Laxveiðin var sett í b.-lið 8. gr. samkvæmt tillögum hv. allshn., því að í fyrstu var þetta atriði í 9. gr. En ástæðurnar til þessarar till. voru þær, að laxveiði sjeu hlunnindi, sem metin sjeu til verðs í fasteignamati. Svo er líka um selveiði, sem rekin er í ám og frá landi. Hinsvegar skal jeg viðurkenni, að rjett sje að undanskilja selveiði rekna á skipi, og var það eiginlega af vangá, að jeg aðgreindi ekki þetta eða kom með sjerstakt ákvæði um það. En um selveiði frá landi gildir hið sama og um laxveiði, og á því þetta tvent að fylgjast að. B.-liður 1. brtt. minnar er um það, að á eftir b.-lið 8. gr. komi nýr liður, sem er um það að færa efni 1. liðs 9. gr. að mestu í 8. gr., þó með þeirri breytingu, að jeg hefi bætt inn í ákvæði um verslun. Jeg sje, að hv. nefnd hefir tekið þetta atriði till. upp, svo að jeg fjölyrði ekki meira um það. Sömuleiðis hefi jeg bætt inn í frvgr. nánara ákvæði um síldaratvinnurekstur, því að hann er rekinn með fleira móti en fram er tekið í frv. Auk þess er það nýmæli í till. minni, að leggja megi á síldarafla, þótt veiðin hafi verið stunduð skemur en 4 vikur. Síldveiðunum er þannig varið, að mikil uppgrip geta verið á tiltölulega stuttum tíma, en jeg tel rjettara að miða útsvarið fremur við það, hve miklar tekjur eru af atvinnunni, heldur en við hitt, hve lengi hún er rekin. En tekjur af síldveiði geta verið eins miklar á 3 vikum eins og af annari veiði á 3 mánuðum.
Jeg vjek að því við 2. umræðu þessa máls, að skiftingu útsvaranna samkv. 9. gr. verði erfitt að framkvæma. Þessi till. mín dregur úr þessum erfiðleikum, þar sem hún leggur til, að þeim útsvörum, sem skifta á milli sveita, verði fækkað.
Mjer virðist það vera af handahófi, hvernig ákvæðunum um útsvarsskyldu er skift á milli 8. og 9. gr. í frv., eins og t. d. það, sem jeg hefi áður bent á, að laxveiði er höfð í 8. gr., en selveiði í 9. gr. Og margt fleira mætti nefna. En samkvæmt till. mínum kæmist allur atvinnurekstur undir 8. gr., en atvinnustundun undir 9. gr. Þetta finst mjer fastari og eðlilegri grundvöllur heldur en það handahóf, sem nú er í frv. í því efni.
Þá kem jeg að 2. brtt. minni, sem er við 9. gr. Þar er fyrst farið fram á, að 1. liðurinn falli burt. Er það aðeins afleiðing af till. við 8. gr., og þarf því ekki skýringar við.
Í öðru lagi legg jeg til, að í stað „3 mánuði“ komi „2 mánuði“ í 2. lið 9. gr. og einnig að í staðinn fyrir „3000 kr.“ komi: 1000 kr. Er þetta hvorttveggja bygt á því sama, að draga úr tekjumissi atvinnusveitar. Ef þessi ákvæði verða samþykt óbreytt eins og þau eru í frv. þá útilokar það t. d. alveg, að sveitirnar geti fengið útsvar frá kaupamönnum, sem dvelja þar allan hábjargræðistímann og vinna fyrir kaupi. Frekar munda verstöðvarnar geta náð útsvari frá vermönnum, er þar dvelja, en þetta útilokar alveg, að landssveitirnar nái því. Jeg vona því, að hv. þm. Borgf. sjái á þessu, að jeg er hjer engu síður að sjá fyrir hagsmunum Öxnadals og annara landbúnaðarsveita en Siglufjarðar. Og þó Siglufjörður njóti ekki náðar hv. þm. Borgf., þá er honum óhætt að fallast á þessar till., vegna þess, að Siglufjörður hefir ekki meira gagn af því en t. d. Borgarfjörður. Annars skal jeg geta þess, að brtt. við 9. gr. skifta í rauninni minna máli en brtt. við 8. gr., og legg jeg því ekki eins mikla áherslu á þær.
Þá er 3. brtt. mín, sem er við 13. gr., um að fyrri málsgr. falli burt. Er hjer um frekar lítilfjörlega breytingu að ræða og held jeg henni því ekki fast fram. En jeg tel nægileg ákvæðin í síðari málsgr. 13. gr., þar sem svo er kveðið á, að ef upphæð sú, sem greiða á af útsvari, nemur ekki 5 kr., fellur útsvarið óskift til heimilissveitar gjaldþegns. Skiftir till. því ekki miklu máli.
Hvað snertir aðrar brtt., er hjer liggja fyrir frá nefndinni og hv. deildarmönnum, þá mun jeg sýna með atkvæði mínu, hvernig jeg lít á þær, þegar að því kemur. Þó get jeg ekki annað en minst lítilsháttar á brtt. á þskj. 288, frá hv. þm. Borgf. og fleiri þm. Till. gengur í sömu átt og till. frá þm. Borgf., er kom fram við 2. umr. og var þá feld. Annars vildi jeg spyrja hv. flm., hvað átt sje við með þessu: „4 vikur samfleytt af gjaldárinu.“ Það gæti hæglega orkað tvímælis, hvað hjer sje átt við. Við skulum hugsa okkur bát, sem gerður er út frá Sandgerði eða einhverri annari verstöð á Reykjanesinu, og legði þar upp aflann. Ef báturinn yrði nú einhverntíma að leita til Vestmannaeyja, eins og nýlega hefir komið fyrir, og seldi svo aflann þar í það sinn, — verður það þá ekki einmitt til þess að tíminn slitnar? (PO: Nei, því að hann leitaði þangað af ósjálfráðum ástæðum). Það getur vel verið, enda var þetta aðeins spurning.
Mjer finst frv. þetta ganga nógu langt í því að bera fyrir borð rjett atvinnusveitanna, þó ekki sje gengið þar feti framar. En það gerir einmitt þessi till., og liggur því í hlutarins eðli, að jeg get ekki greitt henni atkvæði. Hv. þm. Borgf. sagði, að hjer væri aðeins verið að færa út ákvæði gildandi laga. Það kann nú að vera rjett að nokkru leyti, þar sem svo er fyrir mælt, að skip sjeu laus við útsvar í atvinnusveit, ef þau eru úr sömu sýslu eða frá sama firði eða flóa. En jeg verð að segja það, að jeg fyrir mitt leyti vil heldur hafa ákvæði núgildandi laga en að samþ. þessa brtt. Skal jeg svo ekki hafa fleiri orð hjer um að svo stöddu.