16.04.1926
Neðri deild: 55. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2269 í B-deild Alþingistíðinda. (1813)
15. mál, útsvör
Sveinn Ólafsson:
Jeg tók fram við 2. umr., að jeg mundi tæplega geta fylgt þessu frv. út úr deildinni, ef það tæki ekki verulegum breytingum. Við þá umr. lágu fyrir brtt. frá hv. þm. Mýr. (PÞ), sem hann tók aftur, en jeg skildi það svo, að þær ættu að koma í breyttri mynd við þessa umr. Það hefir ekki orðið. En þær lutu einmitt að því, sem jeg tel mest um vert að breyta í frv. Jeg kannast við, að nauðsyn sje á að draga úr þeim eltingaleik, sem hafður hefir verið í frammi við aðkomandi atvinnurekendur í sumum veiðistöðvum. En það má líka ganga of langt í því að svifta þessar veiðistöðvar rjetti til tekna. Það er víst, að sumar veiðistöðvar eru hreint og beint fótaskinn þessara aðkomumanna. Þeir þrengja svo að þeim, sem fyrir eru, að atvinna þeirra bíður mikinn hnekki af. Jeg skal t. d. benda á þá staði, þar sem að meira eða minna leyti er notaður kræklingur til beitu. Þar gera aðkomumenn oft svo mikinn usla, að heimamenn hafa lítil not þessarar fjörubeitu, og líkt er um notkun netlaga o. fl. Yfirleitt fylgja slíkum vermönnum oft kvaðir og átroðningur. Því ber að vísu ekki að neita, að nokkurt hagræði fyrir heimamenn fylgir einnig stundum aðkomumönnunum, t. d. hagnaður af viðskiftum þeirra, en þau hlunnindi falla aðallega í skaut verslandi mönnum, og því aðeins óbeint og að litlu leyti atvinnusveit til stuðnings.
Jeg hafði hugsað mjer að bera fram rökstudda dagskrá þess efnis, að málinu yrði frestað til næsta þings og frv. borið undir sýslunefndir og hreppsnefndir, og er jeg um þessa aðferð sammála hv. þm. A.-Sk. (ÞorlJ). En nú get jeg ekki borið dagskrána fram, fyrir þá skuld, að hjer liggja fyrir margar brtt., sem sumar eru til bóta. Búningur frv. mundi batna, ef þær næðu samþykki, en þá gæti dagskráin ekki komist undir atkv. samkv. þingsköpunum, er gengin væru atkv. um brtt., eftir venjulegum skilningi á 42. gr. þingskapa. Hinsvegar geri jeg ekki ráð fyrir því, að deildin geti gengið að dagskrá áður en brtt. koma undir atkv., enda fengi frv. þá umbætur þær, sem felast í bestu till.
Mjer fyrir mitt leyti finst vanta í frv. þau öryggisákvæði, sem best hefði fyrirbygt eltingaleik um útsvör. Mjer virðist ráðið einfalt og þó einhlítt, það, að láta atvinnusveitina hafa áfram rjett til álagningar, en binda þann rjett við lágt hundraðsgjald af tekjum eða kaupi gjaldenda. Með því móti ættu gjaldendur að vera trygðir gegn ásælni, en af ótta við hana hefir þetta skriffinskubákn um skifti útsvars milli hreppa verið sett í frv.
Jeg býst við, að jeg verði neyddur til að greiða atkv. á móti frv. í heild, þó að jeg geti stutt margar af brtt. Verði frv. samþ., sem jeg býst við, verð jeg að byggja á þeirri von, að hv. Ed. láti það ekki verða að lögum fyr en hjeraðsstjórnir hafa látið í ljós álit sitt.