16.04.1926
Neðri deild: 55. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2294 í B-deild Alþingistíðinda. (1817)

15. mál, útsvör

Halldór Stefánsson:

Jeg ætla ekki að fara að karpa um brtt. mínar. enda ekki von, að menn geti gert upp öll ágreiningsatriði sín við umr., svo um þær verður að fara við atkvgr. eins og verkast vill.

En jeg ætla að minnast nánar á 2. brtt. mína, c.-liðinn. Hv. frsm. sagði, að slitið væri sambandið milli fyrri stafliða og síðasta stafliðs, og á hið sama hefir hæstv. atvrh. bent mjer. Við nánari athugun get jeg fallist á, að svo sje, og ætla því að bera fram skriflega brtt. til þess að bæta úr þessu, sem jeg vona, að hæstv. forseti taki til greina. Undanþágan frá höfuðreglunni er bundin því skilyrði, að atvinnan sje rekin utan heimilissveitar. Þetta kemur fram í a.- og b.-lið, en er ekki tekið fram í c.-lið. Þess vegna vil jeg skjóta inn á milli orðanna .,verið“ og „selveiði“ (í 1. línu c.-liðs) orðunum „utan heimilissveitar“. Vona jeg, að hv. þdm. geti fallist á, að þetta nægi, og sömuleiðis að aftan við liðinn bætist „en 4 vikur“.

Að lokum skal jeg taka það fram, sem jeg gleymdi áður, að ef brtt. l. a. og b. á þskj. 226, frá hv. 2. þm. Eyf. (BSt). verða samþ., þá er mín brtt. óþörf, og tel jeg, að hún þurfi þá ekki að koma til atkvæða. Brtt. á þskj. 226 fer fram á að færa þetta alt undir 8. gr. Því fylgdi jeg við 2. umr., og geri eins nú. Þess vegna mæli jeg með því, að það nái fram að ganga.

Um 3. brtt. mína þarf jeg ekkert að tala, því ekkert hefir komið fram henni til andmæla.

Þá er það 4. brtt. og síðasta, að í stað komi ½, þegar skifta á útsvari milli heimilissveitar og atvinnusveitar. Háttv. frsm. sagði, að þetta gæti orðið órjettlátt í einstaka tilfellum, t. d. ef stunduð væri atvinna alt árið, þá væri lítið, að atvinnusveitin fengi ekki nema helming útsvarsins. En jeg held, að jafnvel í slíkum tilfellum sje þetta ekki ósanngjarnt, því að eins og oft hefir verið tekið fram, eru skyldurnar við gjaldþegn almennast bundnar við heimilissveitina — og þó að ekki fari saman framfærslusveit og heimilissveit, þá á heimilissveitin að gæta hinna árlegu skyldna við gjaldþegninn, svo sem um barnafræðslukostnað og fleira. Og þar sem atvinnusveitin nýtur hins beina og óbeina hagnaðar af vinnu hvers manns, er stundar þar atvinnu um lengri eða skemri tíma, sem kemur fram í aukinni framleiðslu og útsvarsálagningu á hana, þá virðist 1/3 hluti útsvarsins nóg í hennar hlut, svo mjer virðist langt frá því, að hlutur atvinnusveitar sje fyrir borð borinn, þó að mín brtt. sje samþ. Jeg fyrir mitt leyti gæti vel gengið lengra í þessa átt.