08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2312 í B-deild Alþingistíðinda. (1829)

15. mál, útsvör

Frsm. minni hl. (Guðmundur Ólafsson):

Það er nú að mestu leyti tekið fram í nál. á þskj. 523, sem jeg þarf að segja um þetta mál alment. Þess er getið í nál., að fleiri breytingar hefði þurft á frv. en jeg hefi treyst mjer til að koma með við þessa umræðu. Jeg hefi fært þau rök fyrir því, að það hefir verið of naumur tími til þess að athuga þetta vandasama mál svo vel sje. Jeg leit því svo á, að þótt jeg sæi mjer ekki fært að koma fram með svo gagngerðar breytingar, sem jeg hefði talið nauðsynlegt, þá væri þó betra en ekki að koma fram með nokkrar. Vænti jeg, að háttv. deild sjái, að þær breytingar, sem jeg hefi komið með, sjeu til bóta. Jeg hefði t. d. gjarnan viljað, að því hefði verið haldið að hafa fardagaárið fyrir reikningsár í hreppum, í stað almanaksársins, og hefi jeg fært gild rök fyrir því í nál., að slíkt sje að öllu leyti hentugra fyrir sveitirnar. Mjer finst jeg og hafa fært nokkuð gild rök fyrir því, að höfundar frv. hafi meira haft fyrir augum kaupstaðina en hreppana, er þeir sömdu frv. Hv. frsm. meiri hl. vildi láta það líta svo út, sem hæstv. atvrh. væri aðalhöfundur þessa frv. En eftir því sem jeg þekki til hæstv. atvrh., þá kannast jeg lítið við hans fingraför á því. Jeg gæti því best trúað, að hann hefði mjög lítið að því komið. Orðalag frv. er víða mjög klaufalegt og ósmekklegt. Nægir í því efni að benda á 3. tölul. 4. gr. Þar er verið að gefa gjaldendum leiðbeiningar eða reglur um, hvernig þeir eigi að láta hreppsnefndir eða bæjarstjórnir vita um ástæður sínar. Vil jeg, með leyfi hæstv. forseta, lesa upp kafla úr greininni. Þar stendur svo, að til greina skuli taka:

„Ástæður aðilja að öðru leyti, svo sem fjölskyldu hans, heilsufar hans eða þeirra, sem á vegum hans eru, höpp eða óhöpp, sem hann hefir orðið fyrir, svo sem slys. dauðsföll, fjárskaða af sjó“ — og fleira, sem þar er talið. Það er ekki hægt að skilja þetta á annan veg en að fyrstu höppin, sem að höndum geti borið, sjeu slys, dauðsföll og fjárskaðar af sjó! Jeg á bágt með að trúa því, að slíkt orðalag sem þetta sje verk hæstv. atvrh., og þótt jeg tryði því, að hann hefði samið það, þá gæti jeg ekki verið sá hræsnari að lofa það. Þar sem hv. frsm. meiri hl. gat þess, að jeg hefði verið fyrirfram ákveðinn í því að koma fram með brtt. við frv. Þá má eins segja um hann og hv. meiri hl., að hann hafi verið fyrirfram ákveðinn í því að samþykkja frv. óbreytt. hvernig sem það væri. Hv. frsm. meiri hl. byrjaði á því að skýra frá prentvillu, sem stæði í nál. meiri hl. Jeg vil í þess stað benda á, að það eru að minsta kosti tvær prentvillur í sjálfu frv. Á bls. 4 í niðurlagi 7. gr. er orðfæri, sem jeg felli mig ekki við og veit ekki til, að sje móðins, og hygg því, að hljóti að vera prentvilla. Mjer finst vera ofaukið a. Þar stendur „þessa árs“ í stað „þess árs“. Þá er á bls. 5 í upphafi 9. gr. Þar stendur „útvarið“, á að vera „útsvarið“. Jeg vona, að jeg móðgi hæstv. ráðherra ekki með þessu, en jeg man eftir því, að hann tók það illa upp fyrir mjer í öðru máli, er jeg mintist á prentvillur, og kallaði það útúrsnúninga. Jeg er ekki með þessu að gera mikið úr því, þótt prentvillur komi fyrir, en mjer finst rjett að vekja athygli á þeim, fremur ef þær standa í frv. en þótt þær standi í nál.

Þá sagði háttv. frsm., að meiri hlutinn hefði ekki haft neitt verulegt að athuga við frv., vegna hinna mörgu kosta, sem prýddu það. Mjer hefði nú fundist viðkunnanlegra, að hann hefði bent á einhvern þessara mörgu kosta. (EP: Jeg talaði um samræmið). Jú, hann nefndi samræmið. Það er gott að samræma þar, sem það er hægt, en frv. sýnir, að hjer hefir verið færst meira í fang en fært er. Þetta frv. er að mínu viti mjög óglögt og þvælingslegt. Meiri hluti þess eru undantekningar. Það er oft, að aðalreglan í greinunum er ein lína, en svo geta greinarnar verið nokkuð langar, en alt, sem á eftir kemur, eru undantekningar. Eftir frv. er ein af breytingum þeim, sem það gerir á fyrirkomulagi þessara mála, að yfirskattanefnd er ætlað að úrskurða útsvarskærur. Jeg býst nú kannske við, að sú breyting stafi af þessari breytingu með reikningsárið, því að kærurnar verða orðnar ársgamlar, ef ætti að úrskurða þær á venjulegum sýslufundartíma, og sjerstaklega af því, að niðurjöfnun á að fara fram á öðrum tíma en nú. Jeg skal ekkert segja um það, hvort yfirskattanefnd er ekki fult eins vel fær um þetta, en jeg er viss um að meiri kostnaður fylgir því, að það verður að halda sjerstakan aukafund í yfirskattanefnd, og þeir geta meira að segja, ef einhver hreppur vill nota sjer þessa nýju rjettarbót, orðið einir fjórir á ári, og getur það orðið nokkur kostnaður fyrir sýslusjóði, því að þeir munu eiga að borga. Jeg vona, að hæstv. ráðh. (MG) leiðrjetti mig, ef jeg fer ekki rjett með. Þetta er í mínum augum enginn kostur, og vil jeg ekki fullyrða, að þessu væri öðruvísi betur fyrir komið. Það má vel vera, að yfirskattanefnd sje alt eins vel fær til að gera það, en þarna er auðsjáanlega stofnað til nýs kostnaðar, og tel jeg það ekki neinn kost, því að þar, sem jeg þekki til, hafa sýslusjóðirnir nóg að borga án þess.

Þá kann jeg ekki við ákvæðið í 26. gr., þar sem um úrskurði er sagt, að hvorki yfirskattanefnd eða atvinnumálaráðuneytið megi breyta útsvari, nema þessi stjórnarvöld sjeu viss um, að það hafi verið að minsta kosti l0% of hátt eða of lágt. Þetta þykir mjer ekki mikill kostur, því að hvorki yfirskattanefnd nje ráðuneytið hefir þá vald til að breyta útsvari, nema það væri þá svona hæfilega vitlaust; það getur þó munað nokkru, að minsta kosti á háum útsvörum, þó að það sje ekki nema 10% of hátt eða lágt, og ekki er þetta betra en í sveitarstjórnarlögunum nú því að þar er þó ekki verið að setja nein takmörk um það, hve mikið þurfi að vera skakt til þess að megi leiðrjetta það.

Jeg veit nú ekki, hvort hv. frsm. meiri hl. telur þetta alt kosti, sem jer hefi bent á í frv., en ef svo er, þá lít jeg alt öðrum augum á það. — Þá sagðist hv. frsm. meiri hl. ekki hafa mikið vit á sveitarstjórnarmálum; jeg skal nú náttúrlega ekki segja um þetta, þótt mjer satt að segja þyki það ekki vel trúlegt um mann, sem búið hefir í sveit svo tugum ára skiftir, og því líklega ekki sloppið hjá að vera í hreppsnefnd og kannske oddviti. Það er ekki vanalegt, að menn sjeu svona af hjarta auðmjúkir og lítillátir, og að minsta kosti óvanalegt, að menn byrji á framsöguræðu sinni með því að lýsa yfir því hátíðlega, að þeir hafi ekkert vit á málinu, en aðeins treysta á þann ágæta mann, hv. þm. Seyðf. (JóhJóh), sem hafi verið sýslunefndaroddviti og hafi því svo gott vit á því. Þykir mjer undarlegt, ef hv. þm. (EP) getur þannig gengið undir hönd hv. meðnefndarmanns síns með skoðun sína á málinu, og skal jeg ekki trúa því nema hv. þm. endurtaki það, en jeg tók þetta svo, að hv. þm. væri að þagga niður samvisku sína um það, að það gerði ekkert til hvað það snerti, hvernig notaður hefði verið tíminn af allshn. til þess að athuga málið, því að það skiftir auðvitað ekki máli, hvort haldnir eru margir fundir eða fáir, ef maður slær því föstu með sjálfum sjer í byrjun, að maður hafi ekkert vit á málinu. Þá sagði háttv. frsm. meiri hl. að komið hefðu margar brtt. við þetta frv. í hv. Nd., sem ekki hefðu náð samþykki, og taldi það benda á að þeirra hefði ekki verið þörf frv. hefði verið svo gott frá stjórnarinnar hendi og hv. deild sjeð, að það hefði ekki verið nema til þess að spilla frv. að hleypa þeim að. Þó munu vera nokkrar undantekningar á þessu, því að eitthvað var samþykt af þeim, og að brtt. komu frá mörgum þm. sýnir, að margir eru óánægðir með frv. En það er rjett hjá hv. frsm. meiri hl., að margt af þeim var felt, en ætli það geti ekki farið líkt hjer, því að mjer finst, að ef meiri hl. þessarar hv. deildar væri líkur meiri hl. hv. allshn., að þykjast ekki þurfa að athuga málið og þykja nóg að samþykkja það, þá myndu mínar brtt. feldar, enda hefir hv. meiri hl. lýst yfir því í nál. sínu að hann ætli ekki að samþ. neinar brtt., sem fram komi, og þá ekki heldur þær, sem honum þættu til bóta. Og þótt ekki væri nema annar nefndarmaðurinn, sem lítið eða ekkert vit hefði á málinu, þykir mjer það samt hreystilega sagt að gefa þá yfirlýsingu, að hann að sjálfsögðu yrði á móti öllum brtt., því að hv. þm. (EP) gæti þó hugsað sjer, að einhverjar af þeim væru til bóta, þótt hann náttúrlega skilji ekkert í þeim. En það er nú svo, að háttv. þm. eru nú orðnir svo ringlaðir í höfðinu hjer í þessari háttv. deild, af því að komið er svo nærri þingslitum, þá er sama þótt háttv. deild hafi ekkert athugað málið; það er samt sjálfsagt að drífa það fram, og menn varðar þá ekki svo mikið um það, hvort fleiri eða færri stórir agnúar eru á því, og það er þá líka besta atvinnuvon fyrir næsta þing að sitja þá mánuðum saman við að lagfæra þessi lög og önnur líkt vönduð. Það verða ekki ómyndarlegri Alþingistíðindin eða Stjórnartíðindin fyrir það. Jeg hugsaði satt að segja ekki, að svona fáránleg yfirlýsing hefði yfir höfuð getað komið frá þessum tveim háttv. meðnefndarmönnum mínum, ef þetta hefði ekki fyrir þeim vakað, en jeg hefi aldrei álitið, að það borgaði sig að gera mikilsverð frv. að lögum á seinustu dögum þingsins, aðeins til þess að hafa afgreitt mörg lög, og jeg held, að þingið hefði verið í eins miklu áliti og að maklegleikum, þótt það sum árin hefði afgreitt færri lögin og þótt minna hefði þurft að leiðrjetta af nýjum lögum heldur en venjan hefir verið. Þá gat hv. frsm. meiri hl. um einhverja glettni hjá mjer í nál. til hv. meðnefndarmanna minna. Mjer þykir leitt að heyra það, því að jeg ætlaði ekki að móðga þá, en mjer finst, að jeg hafi fulla ástæðu til að segja þetta um þá hvað þetta mál snertir, því að mjer finst það vera hvað á móti öðru hjá þeim, að telja það ekki of langan tíma fyrir hv. Nd. að hafa þetta mál í því nær 10 vikur, en þessa deild ekki nema hálfan mánuð, og geta þó ekki sint málinu nema helminginn af þeim tíma vegna fjárlaganna, og jeg verð að gera miklu minna úr þessu starfi allshn. við frv. heldur en hv. frsm. gerði, sem sagði, að við hefðum borið frv. nákvæmlega saman við núgildandi lög um þetta efni, því að jeg fullyrði, að við höfum aldrei lokið við þann samanburð. Við höfðum fjóra fundi, mjög stutta í málinu. Þá sagði hv. frsm., að það væri eðlilegt að það þyrfti meiri vinnu við málin í hv. Nd. Það getur náttúrlega verið, að það sje eðlilegt, en meira fer það þó eftir því, fyrir hvaða deild málið er lagt fyrst. Jeg get játað, að líklega þurfi minni vinnu í málinu fyrir þá deild, sem seinna fær það til athugunar. Jeg vil taka það upp aftur, að það er hreint ekki rjett, að allshn. þessarar hv. deildar hafi lagt venjulega vinnu í þetta frv., samanborið við önnur frv., sem hún hefir haft til meðferðar; jeg hugsa t. d., að hv. frsm. meiri hl. vilji ekki ábyrgjast það, eftir þá vinnu, sem hann hefir lagt í frv., hvort það er rjett, að allar þær lagagreinar, sem taldar eru upp í enda frv., falli burt. Við bárum þær aldrei saman; líklega hefir hv. Nd. gert það, eða jeg get að minsta kosti hugsað mjer það, en skekkja kom fram hvað það snerti í frv. um kosningar í málefnum sveita og kaupstaða. Þá sagði hv. frsm., að það þýddi ekki að koma með brtt. hjer því að þær myndu fara eins og í háttv. Nd. Jeg vil nú ekki fara eftir því, hvort það þýðir mikið eða lítið að koma með brtt., heldur eftir því, hvort jeg álít það rjett eða ekki. En að hinu leytinu furðaði hv. frsm. meiri hl. á því, að minni hl. skyldi ekki koma með fleiri brtt. heldur en orðið hefði. Jeg væri nú kannske hissa á því líka, ef ekki hefði staðið svo á, eins og jeg tók fram, að jeg, hafði ekki nægilegan tíma til þess; það var hert á mjer með nál. og jeg athugaði frv. ekki lengur en hv. meðnefndarmenn mínir, á fjórum stuttum fundum, og jeg hefi líka tekið það fram, að þó að jeg hafi ekki komið með fleiri brtt. en þetta, þá er það ekki af því, að jeg ekki teldi æskilegt, að fleiri hefðu verið gerðar.

Jeg skal þá fara nokkrum orðum um þessar brtt. mínar. Fyrsta brtt. mín er, eins og hv. deildarmenn munu hafa sjeð, við 3. gr. frv. Þar legg jeg til, að í staðinn fyrir sýslunefnd komi sýslumaður, ef sveitarstjórn þarf að sækja til sýslunefndar um leyfi til þess að hækka útsvörin. Jeg álít, að það sje heppilegra og það er að minsta kosti í meira samræmi við það, sem samþykt var viðvíkjandi kosningum í málefnum sveita og kaupstaða. Jeg álít, að það sje nægilegt að snúa sjer til sýslunefndaroddvita, því að það getur sparað kostnaðinn við aukasýslunefndarfund, en mjer þykir sá kostnaður óþarfi, því að sýslufund er ekki hægt að halda öðruvísi en svo, að það kosti sýsluna þó dálítið.

Jeg hefi áður tekið fram, hvað mjer þótti óhæfilega orðaður 3. liðurinn í 4. gr., en samt kom jeg nú ekki með brtt. við hann, en aftur á móti með brtt. um að fella nokkuð út 1. lið þeirrar greinar. Nú hljóðar hann svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Útsvar skal leggja á eftir efnum og ástæðum. Skal þá til greina taka:

1. Eignir aðilja, hverjar þær eru og hversu verðmætar, hversu miklar skuldir hvíla á aðilja og hversu miklar eignir hann á afgangs skuldum ....“.

Jeg kann nú ekki við þetta, því að jeg býst ekki við, að hvorki nokkur hreppsnefnd eða bæjarstjórn geti nú ekki sjeð það með ljettu móti, hve mikið verður afgangs skuldum, þegar hún veit bæði um eignir og skuldir gjaldþegns, eða að minsta kosti eru henni ætlaðir erfiðari útreikningar hjer síðar í frv., svo að hún ætti hæglega að geta reiknað þetta.

Þá legg jeg til, að viðbót komi aftan við 9. gr., 1. b., að aftan við liðinn bætist: enda láti útgerðarmaður fullverka aflann á staðnum. Eftir þessum lið getur skip orðið útsvarsskylt, sem leggur upp afla sinn utan heimilissveitar útgerðarmanns að minsta kosti samtals 4 vikur af gjaldárinu, og vil jeg þá láta þetta koma aftan við. Mjer finst nefnilega, að þessi atvinnurekstur, eins og hann er tilfærður í frv., sje svo lítilfjörlegur, að varla sje vert að gera skip útsvarsskylt, ef það fylgir ekki með, að þarna eigi að verka aflann. Sumir hafa líka haldið því fram sem kosti á þessu frv., að það vildi draga úr eltingaleiknum með útsvarsálagningar utan heimilissveitar, en þetta atriði frv. miðar jafnvel til þess að auka eltingaleikinn við þessa menn. Eins er það líka í núgildandi lögum, að menn verða ekki útsvarsskyldir, þótt þeir stundi bátfiski og leggi upp afla í öðrum hreppi, ef það er innan sýslunnar eða við sama fjörð eða flóa. Þarna er útsvarsskyldan því aukin við það, sem nú er. Jeg hefi því miður ekki haft megilegan tíma til að kynna mjer þetta, frekar en margt annað í frv., en heyrt hefi jeg það sagt, að einmitt allmikil harðdrægni sje oft viðhöfð í svona tilfellum.

Þá kemur nú stærsta brtt. Það er sú, að jeg legg til, að 12. gr. falli niður. Jeg býst nú við, að hv. deildarmenn að minsta kosti hafi frv. fyrir framan sig og hafi jafnvel lesið það yfir, flestir þeirra, og jeg skil varla, að þeir að minsta kosti sjái það ekki fljótt, að þessi grein er þó nokkuð margbrotin, og eftir þeirri fyrirhöfn, sem hún bakar, mun þurfa að fá eitthvað í aðra hönd. Það er nefnilega í þessari grein reglan fyrir því, hvernig á að skifta niður útsvörum á milli heimilissveitar gjaldþegns og atvinnusveitar. Það er nokkuð margbrotið og á líka sitt við í hverju tilfelli, nefnilega eftir því, hvort það eru meiri sveitarþyngsli í atvinnusveitinni eða heimilisveitinni. Jeg vildi, með leyfi hæstv. forseta, mega lesa upp niðurlag hennar, því að hún er svo löng og leiðinleg, að jeg býst ekki við, að nokkur forseti vildi leyfa mjer að lesa hana alla. Niðurlagið er þannig:

„Finna skal, hvort útsvör verði talin hlutfallslega hærri eða lægri í einni sveit en annari, með því að leggja saman í hvorri sveit eða hverri hlutfallið milli skuldlausra eigna gjaldþegna sveitarinnar eftir síðasta skattframtali og útsvara þar, hlutfallið milli skattskyldra tekna þeirra og útsvara og hlutfallið milli gjaldendatölu sveitarinnar og útsvara, og deila síðan með 3. Skera þær tölur, er þá koma fram, úr því, í hvorri sveit eða hverri sje hlutfallslega hærra eða hæst útsvar.“

Þetta skilja nú allir; það er aðeins tekið meðaltal og alveg rjett, að það er hægt að sjá mismun sveitarþyngsla af þessu. En svo kemur rúsínan:

„Atvinnumálaráðuneytið getur sett reglur til leiðbeiningar um þetta atriði, og er heimilt, ef það kemur í ljós, að fyrstnefnda hlutfallsins gætir of mikið, að draga úr gildi þess með því að deila eignum samkvæmt skattframtali með tölu, er telst hæfileg, þó ekki hærri en 10.“

Jeg gæti nú hugsað mjer, að hann mætti vera nokkur ár í hreppsnefnd eða yfirskattanefnd, hv. frsm. meiri hl., til þess að hann yrði flinkur í þessu verki, eftir þeim vitnisburði, sem hv. þm. (EP) gefur sjálfum sjer um þekkingu í útsvarsmálum, auk þess sem jeg veit, að í hv. Nd. urðu þó nokkrar deilur um þessa 10, sem átti að nota seinast svona eftir tilfinningu, og sumum háttv. þm. í Nd. þótti hæfilegra að hafa hámarkið 7. Það mun hafa verið háttv. þm. Mýr. (PÞ), sem hjelt því fram í háttv. Nd., að 7% myndi hæfilegt og hæstv. atvrh. hefir enn ekki getað sagt, hvort 10% væri hæfileg tala. Hinsvegar hefir hann vafið þetta og flækt í ræðu sinni, án þess nokkuð verulegt væri upp úr því að hafa.

Þegar nú þess er gætt, að nokkuð af útsvarinu þarf heimilissveit að greiða atvinnusveit, þá þarf hún að fá skýrslur þar að lútandi, sem skifting útsvarsins miðast við, svo slíkt getur vel farið fram með einföldum hætti, ef 12. gr. fellur niður, milli hreppsnefndanna, og ekki sýnt, að þess rjettlætis verði ver gætt, sem mest er talað um, að frv. eigi að skapa. Mjer virðist rjettara, að jafnað sje niður eftir þörfum heimilissveitarinnar og atvinnusveit borgað samkvæmt því, og þó að það kæmi á daginn, að það yrði vitund ónákvæmara í stöku tilfelli en þeir menn gera ráð fyrir að verði, sem halda fram þessari skiftingu samkv. 12. gr., þá væri það vel til vinnandi, til þess að vera laus við allar þær flækjur og vafninga, sem verða mundu í framkvæmd hennar. Enda næst með þessari skiftingu, eins og greinin er orðuð, ekki það rjettlæti, sem af er gumað, eins og jeg er margbúinn að sýna fram á.

Annars held jeg, að þeir háu herrar, er þessa 12. gr. hafa samið hafi lagst of djúpt og ekki gert sjer ljóst, hvað þeir voru að fara, enda er hún með því versta í frv., og sú aðferð, sem þar er ætlast til að nota, miklu lakari en það, sem nú tíðkast. Að minsta kosti virðist mjer við nánari athugun, að með gömlu aðferðinni náist meira rjettæti. Eftir henni munar það þó aldrei meira en þessum 10%, sem ranglega má leggja á samkv. frv.

Þá kem jeg að næstu brtt. minni, við 16. gr. Jeg held það sje rjett hjá mjer, að það hafi komist inn í frv. í hv. Nd., að þeir, sem sæti eiga í niðurjöfnunarnefnd í hreppum, skuli taka borgun fyrir starf sitt úr hreppssjóði. Þetta er nýmæli, því fyrir það er engin þóknun ákveðin í lögum nú. Hinsvegar virðist mjer, ef það á að dragast fram á slátt, að nefndarmennirnir þurfi að svara útsvarskærum, sjeu þeir ekki of sælir af því, þó að þeir fengju 5 kr. á dag fyrir þá vinnu, en til þess vil jeg ekki láta koma, enda engin borgun ákveðin í því augnamiði. Felli jeg mig því best við, að frv. hafi engin ákvæði að geyma í þessu efni, og legg því til, að seinni hluti greinarinnar falli niður. Þeir, sem vita, hvað útgjöldin eru orðin há, sem jafna þarf árlega niður í hreppunum, munu tæplega telja nauðsynlegt að ætla niðurjöfnunarnefnd dagkaup. Allur fundahaldakostnaður vegna niðurjöfnunar er líka greiddur nú úr hreppssjóði, svo að frá sjálfum sjer leggja nefndarmenn ekki annað til en tíma þann, sem starfið tekur.

Þá er það næst brtt. mín við 17. gr., um að fella niður, að konur geti skorast undan því að taka sæti í niðurjöfnunarnefnd.

Þessi brtt. er í samræmi við það, sem jeg og fleiri hv. þm. hafa haldið fram. Hæstv. atvrh. mæltist til, að brtt. þessi biði til 3. umr., og get jeg eftir atvikum fallist á það, þótt jeg hinsvegar megi ætla, að hv. deild sje sama sinnis um þetta efni og áður.

Þá kem jeg að þeirri brtt. minni, sem er við 21. gr. og fer fram á að fella bæði framan og aftan af þeim tíma, sem jafna megi niður útsvörum á.

Í frv. er ætlast til, að niðurjöfnun byrji með febrúarmánuði. En þar sem mjer skilst, að bæði hreppsnefndum og bæjarstjórnum sje ætlað að hafa aðgang að skattaframtali gjaldenda til hliðsjónar við niðurjöfnunina, þá virðist mjer illa til fallið að taka febrúarmánuð með, þar sem vitanlegt er, að skattaframtalsskýrslum þarf ekki að skila fyr en í febrúarmánaðarlok. (Atvrh. MG: Í Reykjavík). Nei, í Reykjavík þurfa sumir gjaldendur ekki að skila framtalsskýrslu fyr en í lok marsmánaðar, að mig minnir, svo það er út í loftið og ekki á neinum rökum bygt að reikna með febrúarmánuði einnig hvað Reykjavík snertir. Annars vil jeg í sambandi við það, sem hæstv. atrvh. greip fram í fyrir mjer, benda á, að það meðal annars sannar þetta, sem jeg og fleiri hafa haldið fram, að þeir, sem lagt hafa hönd að samning þessa frv., hafa fremur haft kaupstaðina fyrir augum, en tekið minna til athugunar, hvernig hagar til úti um sveitir. (Atvrh. MG: Þetta er útúrsnúningur !). Hann um það, hæstv. atvrh., hvort hann kallar það útúrsnúning eða ekki, en jeg skýt því til þeirra hv. þm., sem eitthvað þekkja til í sveitum, hvort það sje ekki rjett hjá mjer, að ekki sje ætlast til, að skattaframtalsskýrslur liggi frammi til notkunar fyr en í febrúarmánaðarlok.

Jeg fer líka fram á að stytta tímabilið aftan frá. Mjer þykir óþarft, að niðurjöfnunin dragist langt fram á vor. Þess vegna legg jeg til með brtt. minni, að tímabilið, sem jafna má niður útsvörum á, reiknist frá 1. mars til 15. apríl. Það, sem fyrir mjer vakir með því að stytta aftan frá, er það, að ekki lendi það í vorönnum að svara kærum, því nóg er vinnan samt, sem þetta hefir í för með sjer, að ástæða sje til að auka mönnum meiri óþægindi en þörf gerist. Enda finst mjer, að þessi tími sje nógu langur til niðurjöfnunar, einkum þó með tilliti til þess, að síðar í greininni er heimilað, að niðurjöfnun megi fara fram síðar á árinu, ef sjerstakar ástæður eru fyrir hendi, en um það verður að sækja til atvinnumálaráðuneytisins.

Jeg fer nú líklega að stytta mál mitt úr þessu, enda held jeg, að hv. þdm. þurfi ekki að hlusta á aðfinslur mínar, ef þegar er ráðið, að frv. skuli ná fram að ganga, hversu ilt sem það er. Vona jeg þó, að ýmsir skilji, að það margir gallar sjeu á frv., þó að hv. meiri hl. skilji það ekki, eða vilji ekki skilja það, og þeir svo stórir og varhugaverðir, að varlegt sje, að slíkt festist í löggjöf okkar.