08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2330 í B-deild Alþingistíðinda. (1833)

15. mál, útsvör

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg er þakklátur hv. meiri hl. allshn. fyrir afgreiðslu þessa frv. Jeg get líka að vissu leyti verið ánægður með brtt. hv. þm. A.-Húnv. (GuðmÓ), því þær snerta ekki mjög mikið kjarna málsins, eins og jeg kem að síðar. En ummæli hans, sem fylgdu, og þau, sem í nál. standa, er jeg mjög óánægður með. Minni hl. kvartar yfir því, að lítill tími hafi gefist til að athuga málið. En þó að frv. væri ekki vísað til nefndar í þessari deild fyr en 19. apríl, þá hefir frv. legið fyrir þinginu frá því í þingbyrjun, og jeg hygg, að hv. þm. (GuðmÓ) hafi ekki verið þess óvitandi, að það mundi koma fyrir þessa deild. Hann hafði því fulla ástæðu til að setja sig inn í efni þess framan af þingtímanum, meðan lítið var að gera. Það er ekki hægt að álasa mjer fyrir það, þó frv. væri lengi í Nd. Það tafðist þar af því, að fjárlögin voru á dagskrá um sama leyti, og var þá þetta mál látið sitja á hakanum. Annars verð jeg að segja, að málið hefir grætt talsvert við að vera svona lengi í Nd. Frv. var athugað þar vandlega. Margar brtt. komu fram, en voru flestar feldur. En þegar 28 menn víðsvegar af landinu leggja sig í bleyti um þetta mál og bera fram brtt. sínar, sem svo eru flestar feldar, þá er ekki líklegt, að meiri hluti almennings sje á bak við þær brtt. Það er öllum ljóst, og hefir verið játað í umræðunum, að ekki sje lítill vandi að semja löggjöf um þetta efni, og skattamál yfirleitt, svo öllum líki. Af beinum sköttum eru útsvörin þyngsti skatturinn og verða jafnan deiluefni, þó hugmyndin, sem á bak við liggur, að jafna niður eftir efnum og ástæðum, sje sanngjörn. En reynslan mundi verða sú, að þó allir þingmennirnir 42 að tölu kæmu með sitt frv. hver um þetta efni og ætta kost á að bera sig saman, þá myndu engar tvær skoðanir falla saman að öllu leyti. Út af því, sem hjer hefir verið minst á, að vafasamt væri, hvort rjett væri að láta gilda sömu reglur um þetta efni á öllu landinu, vil jeg benda á, að útsvarslöggjöfin er skattalöggjöf, en ein tekjuskattslög gilda fyrir alt land, og ætti þá hið sama að geta gilt um útsvörin. Háttv. frsm. minni hl. hjelt, að best færi á, að ein lög giltu fyrir kaupstaði og þau kauptún, sem eru sjerstakir hreppar, en önnur fyrir aðra hreppa. En þegar hv. 1. þm. Eyf. (EA) mintist á þetta atriði, hjelt hann fram, að aðstaðan í kaupstöðunum væri mjög mismunandi og varla gætu gilt sömu reglur í öllum kaupstöðum. Svona eru skoðanirnar skiptar. Það er áreiðanlegt, að það verður aldrei hægt að ganga frá frv. um þetta efni svo, að allir þingmenn geti skrifað undir hvert einasta ákvæði. Það hefir verið talað um, að óheppilegt mundi vera að breyta reikningsárinu. Þó liggur engin brtt. fyrir í þá átt, og virðist því tilgangslítið að vera að ræða um það. Jeg skal taka fram, að leitað var álits hreppsnefnda landsins um þetta atriði, og voru einar átta á móti því að breyta til af þeim, sem svarað hafa. Mjer finst heldur ekki vera hjer um mikla breytingu að ræða. Mjer er kunnugt um, að haldið er áfram að taka á móti tekjum og greiða gjöld síðasta fardagaárs langt fram yfir gjalddaga, og oft er hreppsreikningurinn ekki fullgerður fyr en í nóvember. Þó sá siður væri tekinn að gera upp um nýár, munaði það ekki miklu. Í nál. minni hl. segir, að óheppilegur gjalddagi á útsvörunum sje ákveðinn í frv. Því er til að svara, að það ákvæði var sett í Nd., og þar eru líka sveitamenn ekki síður en hjer, svo jeg get ekki gert mikið úr því, sem hv. minni hl. segir um þetta. Mjer er kunnugt um það frá eldri tímum, að sýslusjóðsgjöldin voru ekki altaf borguð í júnímánuði, og jeg held, að ekkert hafi verið kvartað undan því, þó það væri ekki gert fyr en á síðari hluta sumarsins. Um þurfamannaframfærið er það að segja, að það er ekki frekar borgað í fardögum heldur en á öðrum tímum. Það mun oft koma upp í útsvör og greiðist, þá með reikningsjöfnuði. Minni hl. segir, að lítið tillit sje tekið til sveitanna í þessu frv., en hann nefnir ekki nein dæmi. Mjer sýnist brtt., sem fram eru komnar, vera á báða bóga, snerta bæði kaupstaði og sveitir. Ummæli hv. frsm. minni hl. um höfunda frv. læt jeg mig litlu skifta. Þeir eru kunnugir í sveitunum. ekki ósvipað því, sem hann sjálfur. Hv. l. þm. Eyf. sagðist ekki hafa komið með brtt. um reikningsárið af því, að hann byggist ekki við, að hún hefði fylgi í þinginu. En hvaða ástæða er þá til að vera móti frv. þess vegna? Hver á að afgera þessi mál, ef ekki þingið, eftir óskum hreppsnefnda? Minni hl. þykir meira dreginn taumur kaupstaða, eins og jeg drap á, en það er ekki rjett, enda kemur hv. 1. þm. Eyf. með brtt., sem sýnir óánægju fyrir hönd kaupstaða og er veigameiri en nokkur brtt. hv. frsm. minni hl. Hv. frsm. minni hl. hjelt, að jeg hefði lítið komið nærri frv. og gaf í skyn, að það mundi þá hafa verið betra. Jeg á nú ekki þessi rósa ,,kompliment“ skilið. (GuðmÓ: Það er víst ný sort). Já, gefin undir rós. Það kemur oft ýmislegt undir rós hjá þessum hv. þm. Því, sem hann segir um orðalag frv., að það sje ósmekklegt, neita jeg algerlega. Það er mikill smekkmaður á íslenskt mál, sem setti frv. í stílinn, og hv. frsm. minni hl. kemst áreiðanlega ekki með tærnar þangað, sem hann hefir hælana í því efni. Hv. þm. vildi gera veður út af orðalaginu á 3. málslið 4. gr., þar sem stendur: „Ástæður aðilja að öðru leyti, svo sem fjölskylda hans, heilsufar hans og þeirra, sem á vegum hans eru, höpp eða óhöpp, sem hann hefir orðið fyrir, svo sem slys“ o. s. frv. Hv. þm. skilst, að slys vera talin hjer með höppum og læst ekki sjá orðið „óhöpp“ rjett á undan. Þó hjer sjeu ekki talin dæmi upp á höpp, býst jeg ekki við, að neinn villist á því, og finst mjer hv. þm. hafa verið fremur óheppinn í þessu happdrætti sínu. Þá hefir þessi hv. þm. fundið tvær prentvillur í frv. Jeg hefi ekki athugað, hvort þær eru í upprunalega frv., enda skifta þær litlu máli. Annars er ekkert ótítt, að prentvillur komi fyrir og ritvillur líka. Má mikið vera, ef hv. þm. hefir aldrei gert sig sekan í slíku. Hv. þm. sagði um frv. yfirleitt, að það væri óglögt þvælingslegt. Það er ekki undarlegt, þó honum finnist það. fyrst hann hefir gefist upp við að skilja á því málið. Hann talaði um að ekki mundi vera rjett að flytja úrskurðarvarvaldið um útsvarskærur frá sýslunefndum yfir til yfirskattanefnda. Hann áleit þó víst, að málunum væri ekki ver komið þar, heldur yrði þetta fyrirkomulag dýrara. En kostar þá ekkert að láta sýslunefndir úrskurða kærur, láta 15–16 menn sitja yfir þeim úrskurði? Allir vita, að útsvarsmál eru hitamál og tefja stundum sýslunefndir dögum saman. Það mundi einmitt verða sparnaður fyrir sýsluþjóðina að losna við þetta. Þá hneykslast hv. þm. á 26. gr. frv., þar sem gert er ráð fyrir, að ekki megi breyta útsvari, ef skekkjan er álitin nema minna en 10%. Þetta snertir ekki grundvöll frv. En það kemur oft fyrir, að þrætugjarnir menn gera rekistefnu út af smáupphæðum, og getur orðið löng deila út af 5–10 kr. kæru. Þetta vill stjórnin fyrirbyggja með 26. gr.

Hv. þm. A.-Húnv. sagði, að það væri sjálfsagt meiningin að láta samþ. frv. nú til þess að fá sjer atvinnu við að breyta því á næsta þingi. (GuðmÓ: Þetta er ekki rjett tekið eftir; hæstv. ráðh. má ekki rangsnúa mínu máli). Nei, ekki vil jeg gera það. — en hvort heldur hv. þm. að sje hyggilegra upp á vinnubrögðin, að samþ. frv. nú eftir að búið er að leggja þá miklu vinnu í það, sem gert hefir verið, eða geyma alt til næsta þings, þótt svo kynni að fara, að breyta þyrfti einhverju, sem jeg ekki býst við?

Jeg skal þá koma að brtt. hv. minni hl. það er fyrst við 3. gr., þar sem hann vill láta koma „sýslumaður“ í staðinn fyrir „sýslunefnd.“ Eftir því sem hv. frsm. mælti fyrir till., er þetta eintómur misskilningur. Það er einmitt tilgangurinn, að sýslumaður útkljái málið upp á væntanlegt samþykki sýslunefndar á næsta sýslufundi. Þetta er alveg eins og í gildandi sveitarstjórnarlögum; þar er víða til tekið, að þetta og þetta eigi sýslunefnd að gera. Hefir það verið „,praktiserað“ þannig að oddviti afgerir málin til bráðabirgða og leggur síðan fyrir sýslunefnd til samþykkis. Eitt dæmi mjög glögt er samþykki til lántöku ábyrgðar eða slíks. Þetta hefir 20 ára „praksis“ á bak við sig. Þessi brtt. er því alóþörf sjálfsagt bygð á þeim misskilningi, að kalla þurfi sýslunefnd saman í hvert skifti, enda mælti hv. frsm. þannig fyrir henni. Get jeg, ef hann vill, sýnt honum í sveitarstjórnarlögunum fjölmörg dæmi um þetta. (GuðmÓ: Jeg kannast við þau). jeg veit þá ekki, hvers vegna hv. þm. misskilur þau svo.

Hv. frsm. breiddi sig talsvert yfir breytinguna við 4. gr. og sagði, að ekki mundi vera til svo heimsk hreppsnefnd á þessu landi, að hún gæti ekki dregið skuldir frá eignum til þess að sjá, hvað mikið er eftir. Jeg viðurkenni, að þetta er rjett. En hv. þm. hefir ekki fundið það, sem liggur bak við þetta, sem sje, að það er ekki einungis að finna, hvað mikið er afgangs skuldum, heldur þarf að taka tillit til þess, þegar jafnað er niður, hvaða hlutfall er á milli eigna og skulda. Það er oft svo, að þeir, sem skulda mikið, eiga erfiðara að öðru jöfnu; því að skuldirnar bera háa rentu án þess að víst sje, að tilsvarandi fje sje upp úr eigninni að hafa. Þetta hefir hv. þm. ekki athugað, að það er alveg sjálfstætt atriði, hlutfallið milli skuldlausra eigna og skulda annarsvegar og eigna hinsvegar.

Jeg skal bæta því við um 2. brtt., að þótt þetta væri ekki, sem jeg sagði, að þetta lægi sjerstaklega á bak við, þá sje jeg ekki ástæðu til að breyta frv. bara vegna þess. Það getur ekkert gert til, þó að þetta standi.

Þá er brtt. við 9. gr. Það er gamall kunningi úr Nd. og náði ekki samþykki þar. Jeg var satt að segja ekki á móti þessari brtt., en meiri hlutinn var á móti henni. Gæti jeg í raun og veru gengið inn á hana nú, ef jeg vildi annars ganga inn á að breyta frv. hjer.

Þá kem jeg að 12. gr., sem hv. þm. A.-Hún. var allharðorður um. Hann sagði, að hún væri della og vitleysa. (GuðmÓ: Tæplega sagði jeg svona mikið). Ennfremur sagðist hann alls ekki hafa getað skilið hana, svo flókin væri hún. Ástæðan til þessarar greinar er sú, að þegar skifta á útsvari milli tveggja sveita, eru allar líkur til, að þær sjeu misþungar. Getur það munað alt að 100%. Þá sje jeg ekki annað en það sje rjettlætiskrafa, að sú sveit, sem meiri sveitarþyngsli hefir, eigi að fá að öðru jöfnu meira af útsvarinu heldur en hin. Það er sem sje einn af ókostum þeim, sem gjaldendur eiga við að búa, að þurfa að borga þyngra útsvar þar sem útsvör eru tiltölulega hærri. En það verður að ganga jafnt yfir, hvort sem maðurinn aðeins rekur atvinnu í þeirri sveit eða á þar heima. Þetta er það, sem liggur til grundvallar fyrir greininni, og er hún þess vegna ekkert annað en bein tilraun til að láta heimasveitina og atvinnusveitina bera sem rjettlátast hlutfall úr býtum þegar útsvari er skift.

Hv. þm. A.-Húnv. sagði, að komið hefði fram till. í Nd. um að breyta þeirri tölu, sem nefnd er í niðurlagi 12. gr., úr 10 og niður í 7. Þar hefir hann misskilið eitthvað. Það sem rætt var um í Nd., var það, að hafa yfirleitt þá reglu við útsvarsálagningu, að leggja 1 á móti 7 á eignir og tekjur, eða 1 á eignir þegar 7 væri á tekjum. En það er alt annað en það, sem um er að ræða í þessari grein. Jeg sje ekki, að hv. þm. hafi að neinu leyti sýnt fram á, að þessi grein sje ósanngjörn. Jeg tel hana mikla rjettarbót og nauðsynlegra. En jeg viðurkenni, að hún er ný; og það er það, sem ýmsir hnjóta um. Þeir vilja ekki breyta neitt frá því, sem nú er, þótt í rjettlætisáttina sje.

Næst er brtt. við 16. gr., um það, að ekki sje nein heimild til að borga fyrir niðurjöfnun útsvara. Þetta ákvæði var sett inn í Nd., og jeg verð að segja, að jeg get ekki fundið neitt athugavert við að lofa sýslunefnd að ákveða þetta. Þetta er aðeins heimild. Jeg get gjarnan sagt, að jeg geri ekki ráð fyrir, að hún verði notuð nema þar, sem niðurjöfnunin er tals vert mikið verk. Það er hart, að menn þurfi að sitja við þessi störf kannske viku, eins og er á hinum stærri stöðum, og ætla þeim enga borgun.

Um brtt. við 17. gr. þarf jeg ekki að ræða, þar sem hv. þm. A.-Húnv. hefir gengið inn á að taka hana aftur til 3. umr.

Þá er brtt. við 21. gr., sem hv. þm. var mjög svo harðorður um eins og fleiri greinar. Honum fanst það svo ákaflega heimskulegt að leyfa niðurjöfnun frá l. febrúar til maíloka, vegna þess, að skattaskýrslurnar á að hafa til hliðsjónar, en þær komi ekki fyr en í febrúarlok. Jeg skaut því þá fram í fyrir honum, að þetta væri ekki þannig í Reykjavík, heldur væru menn skyldaðir til að láta sínar skýrslur af hendi fyrir janúarlok, en þá ærðist hv. þm. ennþá meir og kvað þetta vera svo ágæta sönnun fyrir því, að hjer væri eingöngu verið að hugsa um kaupstaðina. En jeg er viss um, að það skilur hver maður, að hjer í Reykjavík þar sem þarf að jafna niður á fleiri þúsund gjaldendur, er nauðsynlegt að geta byrjað á því svo fljótt á árinu og unt er. Hjer í Reykjavík er byrjað síðast í janúar og ekki lokið fyr en í apríllok. Nú segir í 21. gr., að sýslunefnd geti ákveðið, hvenær eigi að jafna niður útsvörum á tímabilinu frá l. febr. til 31. maí. Og jeg er alls ekki hræddur um, að nokkur sýslunefnd á landinu sje svo skyni skroppin, að hún fari að fyrirskipa niðurjöfnun í febrúar, þegar annarsstaðar í frv. er fyrirskipað að hafa skattaskýrslur til hliðsjónar, sem koma ekki fyr en í febrúarlok. En þetta er afleiðing af því, að lögin eiga að gilda fyrir alt landið. Sá tími sem hv. þm. A.-Húnv. tiltekur, er alt of stuttur, að minsta kosti fyrir Reykjavík. Getur verið, að það sje eina undantekningin; en þess ber vissulega að gæta, að lögin eiga líka að gilda fyrir Reykjavík.

Þá kem jeg að hv. 1. þm. Eyf. (EÁ), sem tók undir það, að frv. væri flókið og erfitt að átta sig á. En hann áleit ágætt að fá það sem grunvöll til þess að láta þjóðina segja um það álit sitt. Sje það nú svo flókið og torskilið sem hann vill vera láta, þá held jeg þjóðin skilji það ekki mikið og þurfi því að fá einhvern til að þýða það á betra mál og skiljanlegra. Annars get jeg vísað til þess, sem jeg áður sagði, að jeg er viss um, að það verður ekki hægt að fá nein samstæð svör í heild frá hreppsnefndum og sýslunefndum. Það lítur hver sínum augum á hlutina.

Hann sagði, að það mundi aukast skriffinska út af þessu frv. Nú vil jeg minna á það, að ástæðan til, að farið var að skipa fyrir að endurskoða þessa löggjöf, var sú, að hún þótti ranglát og ekki viðunandi. Ranglætið sögðu menn í fyrra væri í því fólgið, að þegar lagt er á útsvar annarsstaðar en í heimasveit gjaldanda, væri hann beittur rangindum. Það hafa verið nefnd mjög átakanleg dæmi um það. En svo þegar á að fara að lagfæra þetta, þá eru menn alveg búnir að gleyma, að þeir hafa beðið um endurskoðun, og barma sjer út af því, að það þurfi að skrifa nokkur brjef til þess að leiðrjetta þetta. Til hvers er verið að búa til lög? Ætli það sje ekki til þess að koma fram rjettlæti, þó að það kosti örlitla fyrirhöfn.

Brtt. hans miða að því að halda við þessum gömlu lögum um það að láta leggja á menn þar, sem þeir hafa atvinnu, þrátt fyrir það, að einmitt þetta atriði var þess valdandi, að heimtuð var endurskoðun á útsvarslöggjöfinni. Þessi brtt. er svo sem ekki nýr gestur. Hún kom fram í Nd. tvisvar sinnum, að jeg ætla, en þar var ekki litið við henni, því að hún kæmi í veg fyrir, að bót yrði ráðin á misrjettinu. Jeg þarf ekki að fara út í að nefna dæmi til þess að sýna fram á, hvernig farið er með menn, sem lagt er á utan heimilis síns. En það eru dæmi, sem sýna það virkilega, að það er ekki að ástæðulausu verið að firrast þetta nú.

Það er rjett hjá háttv. þm. (EÁ), að það er nýmæli, að heimasveitin jafni niður öllu útsvarinu, þótt hlutaðeigandi stundi atvinnu annarsstaðar svo og svo lengi. En það er einungis gert til meira rjettlætis. Það hefir verið svo, að menn hafa svo að segja varla mátt vinna fyrir eyrisvirði á sumum stöðum hjer á landi til þess að verða ekki útsvarsskyldir. Og þótt þeir hafi meira að segja tapað á atvinnu sinni tugum þúsunda króna, hafa þeir samt orðið að greiða svo þúsundum króna skiftir í útsvar, jeg get vel, — ef hv. 1. þm. Eyf. vill, — nefnt honum dæmi upp á það, en ætla ekki að gera það nema þann gefi sjerstakt tilefni til þess.

Hv. þm. hjelt, að heimasveitin mundi ekki innheimta útsvörin fyrir atvinnusveitina, — myndi verða einhver slóðaskapur með það. Jeg get ekki ímyndað mjer það, þar sem hún á líka sjálf að fá að minsta kosti 1/3 af útsvarinu. Hann viðurkendi það, háttv. 1. þm. Eyf., að það myndi verða sjaldgæft að skifta útvörum þeirra, sem atvinnu stunda annarsstaðar. Það hefir nú verið svo, að þeir hafa verið eltir svo rækilega, að það má ekki lengur ganga. Það hafa t. d. þingmenn Árnessýslu sagt mjer, að menn vildu flytja burt frá Eyrarbakka, sem stunda atvinnu hjer, því að þeir fengju svo hátt útsvar hjer í bænum fyrir sína atvinnustundun.

Annars er það um þessa skiftingu að segja, að þetta er regla, sem hefir verið tekin upp erlendis og þótt gefast vel. Þar hefir líka það sama átt sjer stað og komið var fram hjer, er aðrir leggja á en heimasveitin, að þá urðu menn fyrir svo miklu ranglæti, að það þótti ekki fært annað en taka upp þessa reglu, — að skifta svipað því, sem hjer er farið fram á. Það er regla, sem gefst vel erlendis, og jeg sje ekki ástæðu til að ætla, að hún gefist ekki vel hjer.

Þegar verið var að lögleiða tekjuskattinn, sögðu menn þetta sama um skriffinskuna og að enginn myndi botna í þessu öllu saman, aldrei myndu verða neinar tekjur og ekki neitt, alt færi þetta í vitleysu. Nú kvartar enginn um, að neitt af þessu eigi sjer stað, síðan menn eru komnir á lagið með það.

Hv. þm. sagði, að flutningur milli sveita yrði oft því valdandi, að sveitin tapaði útsvarinu. Þetta mun vera alveg rjett, að menn fara úr einum stað í annan að leita sjer atvinnu, og svo er ekki hægt að ná af þeim útsvari. En úr þessu bætir frv. Það er lagt á manninn þar, sem hann á heimili, síðan skift milli þessara atvinnusveita, svo framarlega, að skifting geti eftir reglum frv. komið til greina, og heimilissveitin stendur skil á hluta atvinnusveitar af útsvarinu. Þá sagði hann, að stefna frv. væri gerólík því, sem nú á sjer stað. Það finst mjer ekki vera. Það eru teknar upp nokkrar nýjar reglur, en meginreglan er sú gamla regla að jafna niður eftir efnum og ástæðum. Grundvöllurinn er sá sami. Þessar nýju reglur ganga sumpart út á það að leggja á gjaldendur sem allra mest í heimasveitinni, og einnig eru þar reglur gefnar í sambandi við að skifta útsvörum milli heimasveitar og atvinnusveitar. Þetta er þungamiðjan í nýbreytninni.

Þessu, sem hv. þm. sagði um kaupstaði og sveitir, hefi jeg áður svarað, þegar jeg sýndi fram á, að þeir væru ekki heldur sammála hv. þm. A.-Húnv. og hv. 1. þm. Eyf. Og eftir því, sem jeg heyri nú á hv. 1. þm. Eyf., þá er hann ekki heldur sammála háttv. þm. A.-Húnv. um allar hans brtt. Svona er þetta sitt á hvað í útsvarsmálunum.

Þá kem jeg að lokum að hv. 1. þm. G.-K. (BK). Hann sagði, að kvartanir hefðu komið úr hans kjördæmi yfir þessu frv. Jeg rengi það ekki. En mjer er kunnugt um, að það hefir einnig komið þakkarávarp þaðan yfir þessari miklu rjettarbót, sem felst í frv. Annars skal jeg segja um hans brtt. eins og um aðrar brtt., að jeg mun ekki fylgja henni. Mjer sýnist fullrækilega hugsað fyrir þessu í frv., því að samvinnufjelög og kaupfjelög eiga að gefa glöggar skýrslur um sína verslun við utanfjelagsmenn. Sjeu þær ekki glöggar, þá er niðurjöfnunarnefnd heimilt að leggja á það, sem hún telur hæfilegt. Að ekki sje hægt að hafa eftirlit með þessu, er ekki rjett. Þessi fjelög eru skyld til að hafa bókfærslu eins og aðrir, sem versla, sem á að sýna þetta. En jeg skal viðurkenna, að það er erfitt þar, sem hönd selur hendi, en þó er það alls ekki ókleift. Það má altaf segja, að grunur sje á um það, að ekki sje rjett með farið; 2 eða 3 hreppsnefndarmenn geta borið því við, að ekki sje rjett frá skýrt, en það dugir ekki að straffa fjelögin fyrir það, það verður að vera á rökum bygt, það sem fram er borið í því efni. Hann sagði, að fyrir lægi kæra. Um það veit jeg ekkert, en sje svo, verður hún að sjálfsögðu tekin til greina, svo framarlega, sem hún er á rökum bygð.

Jeg geri ráð fyrir því, að mjer gefist tækifæri til að taka aftur til máls, og get jeg þá sparað því, sem jeg kynni að hafa gleymt. Að svo stöddu sje jeg ekki ástæðu til að lengja umr. frekar.