08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2342 í B-deild Alþingistíðinda. (1834)

15. mál, útsvör

Frsm. minni hl. (Guðmundur Ólafsson):

Hv. 1. þm. Eyf. (EÁ) og hv. 1. þm. G.-K. (BK) taka í líkan streng hvað frv. snertir og jeg, að það sje ekki eins gallalaust og þeir vilja láta líta út, hæstv. atvrh. og hv. frsm. meiri hl. Hv. 1. þm. G.-K. tók það beinlínis fram, að úr hans kjördæmi hefðu komið fram allmiklar umkvartanir yfir frv. og óskað eftir, að það næði ekki fram að ganga í því formi, sem það er.

Þá verð jeg að snúa máli mínu til hæstv. atvrh. Mjer kom nú ekki óvart, þótt hann reyndi að andmæla mjer, en hitt þótti mjer undarlegt, að hann er ekki jafnsleipur skrifari og jeg hafði búist við. Það kom fyrir — og það nokkrum sinnum, — að hann tilfærði í ræðu sinni orð, sem hann kvaðst hafa ritað niður eftir mjer, en sem jeg hefi aldrei sagt.

Hæstv. atvrh. hóf mál sitt á því að flytja meiri hl. þakkir fyrir, hve vel hann hefði tekið í frv. Þetta er ekki nema vonum framar ánægjulegt, þegar maður er með jafngallað frv., að fá 2 nefndarmenn — háttvirta vildi jeg sagt hafa — af þremur til þess að samþykkja frumvarpið óbreytt. Honum þykir þetta mikilsvert og finst það litlu skifta, hvort jeg er með eða móti, enda skildist mjer, að hann vilja láta það skína í gegn, að jeg hefði lítið vit á þessu máli.

Hann sagði, að frv. hefði legið í allan vetur fyrir þinginu, og átti víst að skilja það sem svo að nógur tími hafi verið til að athuga það. En jeg veit ekki til, að frv. hafi tafist lengur en þörf gerist — og ef til vill tæplega það — hjer í þessari háttv. deild. Enda hefi jeg haft nóg að gera að athuga þau frv., sem vísað hefir verið til þeirra nefnda, sem jeg á sæti í, þó að jeg færi ekki sjerstaklega að bæta á mig að athuga frv., sem liggja fyrir hv. Nd. Annars þykja mjer þessar skoðanir undarlegar því eftir þeim að dæma ætti að hætta við að vísa málum til nefnda hjer, sem koma úr hv. Nd., og líklega þá, að sama eigi að gilda um frv., sem hjeðan fara, að engin þörf sje á að vísa þeim til nefnda í hv. Nd., nema það eigi að skiljast svo, að háttv. Nd. sje svo óskeikul í sínum athugunum, að Ed. sje skyldug til að gleypa við öllu, sem þaðan kemur.

Þá sagði hæstv. atvrh., að dregist hefði að taka málið á dagskrá hjer. Það kannast jeg nú ekki við, þegar litið er á þann tíma, sem hv. Nd. þurfti til að athuga það. En það er vitanlega satt, að það þarf ekki langan tíma til athugunar, ef svo er farið að, eins og hv. meiri hl. lýsir yfir, því helst er svo að skilja, að meiri hl. hafi verið ráðinn í því að ganga að frv. áður en það kom til deildarinnar. Hann sagði líka hæstv. ráðh., að 28 menn í Nd. hefðu lagt sig í bleyti að athuga málið og komið með brtt., sem flestar hafi verið feldar, og átti það að vera sönnun þess, að þeirra hefði ekki verið nein þörf. En hafi nú 28 hv. þm. þurft að leggja sig í bleyti til að athuga frv., þá virðist mjer það bending um, að eitthvað hafi nú verið athugavert við það. En jeg held þeir hafi nú aldrei verið svo margir, svo þetta er víst eitthvað orðum aukið. (Atvrh. MG: Þetta er víst ekki útúrsnúningur!) — Sje það útúrsnúningur, þá var komið svo mikið af slíku í minn garð, að jeg þykist ekki þurfa að biðja neinnar afsökunar. — Hann sagði líka erfitt að bera fram frv., þegar skoðanir 42 manna væru svo skiftar, að engir tveir ættu samleið um, hvað rjettast og best væri í þessu efni. Þess vegna væri ómögulegt að vera alla ánægða. Jeg ætlaði nú samt að sætta mín við frv. í bili, þó að allar breytingar kæmust ekki fram að þessu sinni, sem jeg hinsvegar tel, að hefði þó verið full þörf á. Annars vona jeg að verða ekki borinn því af hæstv. ráðh., að koma með útúrsnúning þó jeg hafi eftir honum, að það sje ótrúlegt, að jeg viti ekkert í sveitarstjórnarlögum. Hæstv. atvrh. sagði ágætt og nauðsynlegt að hafa ein útsvarslög um land alt, og tók þar dæmi af skattalögunum. En það er alt annað að hafa ein skattalög. Þar gefa allir upp sínar tekjur og eignir, hvort heldur er um kaupstað eða sveit að ræða, svo þessu tvennu er ekki hægt að jafna saman.

Þá sagði hann, að jeg væri óánægður með að breyta til um fardagaárið, og jafnvel fleiri, en fanst þó, að við hefðum átt að bera fram brtt. um að breyta því. Jeg tók það fram, að vegna tímaleysis hefði jeg ekki sjeð mjer fært við þessa umr. að breyta því, enda leiddi sú breyting til töluvert margra annara breytinga. Hinsvegar hefi jeg lýst því yfir, að jeg mundi lofa frv. að ganga fram, þó að alt fengist ekki, sem jeg vildi. En það kalla jeg fullmikla nýjungagirni, að vilja ekki lofa fardagaárinu að gilda fyrir sveitirnar, þó að upp sje tekið almanaksár fyrir kaupstaðina.

Þá sagði hann, að leitað hefði verið álits hreppanna um þetta efni, og aðeins 8 hefðu verið á móti almanaksári. Jeg hefi hvorki haft tíma nje tækifæri til þess að kynna mjer þessi svör, en býst við, að þetta sje rjett, en líklega vantar þá svör úr allmörgum hreppum. Annars þykir mjer ekkert undarlegt, þó að nokkrar hreppsnefndir glæpist á þessu, þar sem hæstv. ráðh. gerir það. En það er ekki frambærileg ástæða, sem hann færði fyrir því, að almanaksárið sje hentugra sveitunum, þar sem hann hjelt því fram, að hreppsreikningurinn væri gerður í nóvember og allar tekjur og gjöld taldar til þess tíma. Jeg þekki ekki þetta, enda er þarna gert ráð fyrir, að reikningarnir sjeu gerðir á ólöglegum tíma. Þar, sem jeg þekki til, eru tekjur og gjöld miðuð við fardaga, þó að reikningurinn sje sjaldnast gerður fyr en í nóvember. Hjer virðist því um óþarfa hótfyndni að ræða, að ákveða með lagasetningu það, sem gert er ráð fyrir, að ekki verði farið eftir í neinu.

Þá sagði hæstv. atvrh., að gjalddaginn, 15. júlí, hefði verið settur inn í frv. í hv. Nd., og mun það rjett vera, en þú að það sje sett inn þar, verð jeg, að álíta það jafnóheppilegt. Hann sagði líka, að greiðslur hreppanna væru sjaldnast intar af höndum á rjettum gjalddaga. Þetta kannast jeg nú ekki við, að sje rjett að öllu leyti, því þar, sem jeg þekki til, er reynt að standa í skilum með þessi gjöld á manntalsþinginu, þó eitthvað standi eftir, svo það er engin bót, að gjalddaginn sje mánuði seinna. Enda þarf ekki að gera ráð fyrir því eftir þessu frv., að gjöldin greiðist á þinginu, því lítil líkindi eru til, að neinn eyrir sje í kassanum, sje gjalddaginn miðaður við 15. júlí. Þetta stríðir því algerlega á móti þeim kenningum hæstv. ráðh., að hentugra sje, að gjaldárið sje almanaksárið. Eftir þessu þarf þá að leggja á þá gjaldendur útsvar, sem flytja inn í sveitina fyrri hluta ársins, þó að búið væri að leggja á hann fyrir alt árið í þeirri sveit, er hann flytur sig úr. Ef t. d. jafnað er niður í febrúar, vita menn lítið, hvort bóndi fer úr sveitinni með vorinu eða ekki. (Atvrh. MG: Þá kemur skiftingin til greina). Jú, mikið rjett, en jeg er ekki hrifinn af henni. Jeg álít heppilegra að leggja sem oftast á gjaldendur í einum og sama stað. Sama er að segja um þurfamenn, að þeim er ráðstafað frá fardögum til fardaga, og geta því verið á tveim stöðum um reikningsárið eftir frv. Nei, hvernig sem jeg athuga rök hæstv. ráðh. og velti þeim fyrir mjer, þá get jeg ekki fundið neitt í þeim, sem mæli með því, að almanaksárið sje heppilegra fyrir sveitirnar en fardagaárið.

Þá áttu það víst að vera mikil meðmæli með frv., að höfundar frv. væru jafnkunnugir í sveitum eins og jeg. Frv. hefir nú ekki verið feðrað, svo jeg viti með vissu, hverjir að því standa, en þó finst mjer ýmislegt benda til, að þeir muni þó tæplega eins kunnugir, hvernig hagar til úti í sveitum, eins og jeg. Hann sagðist líka sjálfur hafa komið nærri frv., og efast jeg ekki um það; að minsta kosti hefir hann látið sjer ant um það í þinginu. En fátt finst mjer bera vott um það, að hann hafi verið með í ráðum um að semja það, enda tók hann það fram um höf., að hann væri makalaus smekkmaður á mál. Þau orð á jeg bágt með að trúa, að hann hefði haft um sjálfan sig.

Þá þótti hæstv. atvrh. óþarft hjá mjer að kunna illa við orðalag 3. liðs 4. gr., þar sem verið er að skýra fyrir gjaldendum að telja fram höpp og óhöpp og byrjað svo á slysum og haldið áfram. Jeg held, að það sje rjett hjá mjer að þykja skrítið, þegar byrjað er að telja upp höpp, að fara þá að nefna slys og halda áfram að telja upp eintóm óhöpp. Eftir því að dæma gæti það talist slys, ef frv. slampaðist í gegnum þingið. Og máli sínu um þetta atriði lýkur hæstv. ráðh. með því að segja, að minni hl. hafi skilið svo við frv., að hann hafi ekki skilið það. Jeg verð nú að telja það lítil meðmæli með stjfrv., að það sje svo úr garði búið, að jeg hafi ekki botnað upp nje niður í því. Jeg hefi þó átt nokkur ár sæti í hreppsnefnd, verið oddviti, sýslunefndarmaður og gegnt ýmsum fleiri sveitarstörfum. Og þessum störfum held jeg, að mjer hefði ekki verið trúað fyrir, ef jeg hefði ekkert skilið í þeim. En hinu held jeg að sje óhætt að slá föstu, að fleirum en mjer mundi reynast stirt að nota 12. gr. eins og hún er nú í frv.

Þá kom hæstv. atvrh. með það, að jeg væri því mótfallinn, að yfirskattanefndir úrskurði um útsvör manna, í stað sýslunefnda. Þó að það sje rjett hjá honum, að sýslunefnd skipi fleiri menn en að jafnaði eiga sæti í yfirskattanefnd, þá getur samt svo farið, að dýrara reynist að fela skattanefnd að úrskurða um útsvarskærur heldur en að leggja það fyrir sýslufund, sem þarf að halda hvort sem er, vegna svo margra mála, sem fyrir hann eru lögð. En það gæti verið, að halda þyrfti fleiri fundi í yfirskattanefnd, og það kostaði jafnvel meira, þó að nefndarmennirnir sjeu ekki nema þrír.

Þá kunni hæstv. ráðherra illa aðfinslum mínum um 10% skekkjuna og sagði, að það breytti ekki grundvelli frv. Um það skal jeg ekkert deila, en viðvíkjandi því, að jeg hefði ekki komið með brtt. við þetta, þá er því að svara, að jeg játa, að það var yfirsjón af mjer, en þó ekki meiri en það, að úr því má bæta enn. Ef þessum fáu brtt. mínum verður tekið vel, hefi jeg hugsað mjer að bera fleiri fram við 3. umr. frv. Hinsvegar vona jeg, að hæstv. ráðh. geti fallist á, að frv. versni ekki, þó að þessari 10% skekkju verði slept, sem hann vill löghelga með samþykt frv.

Jeg vil með leyfi hæstv. forseta, lesa hjer upp 26. gr. Hún er stutt, ekki nema 3 línur, og hljóðar á þessa leið:

„Kærum, sem koma eftir kærufrest, verður ekki sint. Ekki má yfirskattanefnd eða atvinnumálaráðuneyti heldur breyta útsvari, nema svo reynist, að það hafi verið að minsta kosti 10% of hátt eða of lágt.“

Þá spurði hæstv. ráðh., hvort heppilegra væri að samþ. frv. nú eða geyma alt til næsta þings, en ljet þess þó jafnframt getið, að mikið hefði það kostað að koma því þetta á leið, sem orðið er. Það mátti þó skilja á honum, að hann hefði nokkuð unnið að því sjálfur, svo það hefir ekki kostað ríkissjóð sjerstaklega. En hefir hann reiknað út, hvað kosta muni að breyta jafngölluðum lögum á næstu þingum og gera þau svo, að sem flestir megi við þau una?

Þá vjek hæstv. ráðh. að brtt. mínum og kvaðst vera á móti þeim öllum, nema einni.

Þá var það ákvæði, að þegar hreppsnefnd þarf að hækka útsvörin fram úr meðaltali síðustu þriggja ára, að viðbættum 1/5, þarf hún að sækja um það til sýslunefndar. Taldi hæstv. atvrh. það kost á þessu ákvæði, að því væri ekki breytt frá núgildandi lögum. Það er nú raunar sjaldsjeður kostur á þessu frv., því að yfirleitt má heita, að í því sje reynt að breyta öllu, sem hugsanlegt er, sem mest frá núverandi skipulagi. — Þetta mun nú vera svo í lögum, og það vissi jeg áður en hæstv. ráðh. tók það fram, en mjer þykir óviðfeldið að sækja um þetta til sýslunefndar, þegar sýslunefndaroddvitinn sker úr því í raun og veru samt. Því að í frv. til laga um kosningar í málefnum sveita og kaupstaða var þetta vald fært yfir á sýslunefndaroddvitann, og man jeg ekki, að hæstv. atvrh. hefði neitt við það að athuga. Veit jeg ekki, hvað á að þýða að skjóta þessu til sýslunefndar, þegar valdið er alt í eins manns hendi.

Um aðra brtt. mína á þskj. 371 fór hæstv. ráðh. nokkrum orðum, þótt mjer væri ekki vel ljóst, hvað hann var að fara. Sagði hann, að þau orð, sem jeg fer fram á, að feld sjeu niður — sem sagt að til greina skuli taka, hve miklar eignir maður eigi umfram skuldir — mættu ómögulega missa sig. Jeg var nú ekki vel heima í rökunum, sem hann færði fyrir því. Hann sagði, að eignir og skuldir væru sjálfstæð atriði. Jeg geri nú ekki ráð fyrir, að það breytist mikið, þótt mín till. verði samþ. En það er nú svona, að þegar á að hafa á móti öllum brtt., er ekki von, að sum rökin verði góð.

Inn á 3. brtt. mína þóttist hæstv. atvrh. geta gengið fyrir sitt leyti, svo að hv. þdm. mega þá kannske samþykkja hana, ef þeir halda, að hún sje til bóta.

Síðan talaði hæstv. ráðh. um 12. gr. Þar ber okkur ekki á milli, af hverju hún er inn komin. En það er eftir að vita, hvort meira rjettlæti næst með henni eða núgildandi skipulagi. Mjer kemur ekki til hugar, að hægt sje að ná fullu rjettlæti, hvort sem hún stendur eða ekki. En jeg álít, að hún sje alt of fyrirhafnarsöm og komist lítið eða ekkert nær markinu. Hitt hefi jeg aldrei sagt, að jeg vissi ekki, að tilgangur þess, sem samdi, var góður. Það virðist ekki heldur altaf vera verið að hugsa svo mikið um rjettlætið í þessu frv. Eins og t. d. þetta, sem jeg nefndi áðan, að ekki má breyta áfrýjuðum útsvarsúrskurði nema skekkjan sje minst 10%. Maður, sem ætti að hafa 1000 kr. útsvar, yrði þá að sætta sig við að borga 99 kr. framyfir, og hefði ekkert nema útlátin, ef hann vildi fá það leiðrjett. Það má ekki einu sinni láta hann njóta rjettar síns.

Þá hafði hæstv. ráðh. á móti 5. brtt. minni. Þótti honum hart, að hreppsnefndir þyrftu að starfa að þessu vikum saman, ef þær fengju ekki túskilding fyrir. — Jeg held nú, að það sje ekki ákaflega víða, sem hreppsnefndir eru margar vikur að jafna niður, og hvorki styttir það setuna nje ljettir álögurnar, ef þær þurfa líka að skrapa saman í kaupið. Það flýtir a. m. h. ekki fyrir.

Út af 7. brtt. minni sagði hæstv. ráðh., að jeg hefði sagt, að það veri „heimskulegt“ að taka febrúar með. Jeg býst nú varla við, að jeg hafi verið svona orðljótur, en hitt mun jeg hafa sagt, að jeg kynni ekki við að hafa febrúar með, því að þá væru engin framtöl komin. En úr því hæstv. atvrh. er nú svona ant um febrúar, get jeg vel gengið að því til samkomulags, að ekki sje ákveðið tímatakmark þeim megin skert, en hinu takmarkinu, 15. apríl, vil jeg halda, svo að útsvarskærur sjeu um garð gengnar, þegar útivinna byrjar til sveita. Vil jeg því spyrja hæstv. forseta, hvort jeg mætti ekki breyta brtt. minni þannig, að hún yrði: febrúar–15. apríl. (Forseti: Það má gera til 3. umr.). Jeg held raunar, að ekki kæmi að sök, þótt brtt. mín væri samþ. eins og hún er nú, því að samkv. frv. má leyfa, að niðurjöfnun fari fram síðar á árinu, ef ríkar ástæður mæla með því. Held jeg þá verði hægurinn hjá fyrir Reykjavík — en hana bar hæstv. ráðh. mest fyrir brjósti — að fá framlengingu út apríl.

Hefi jeg þá ekki fleira að segja að sinni.