01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 721 í B-deild Alþingistíðinda. (184)

1. mál, fjárlög 1927

Björn Kristjánsson:

Jeg hefi nú leyft mjer að bera fram ósk um eftirgjöf á viðlagasjóðsláni Gerðahrepps. Ber jeg þessa till. ekki eingöngu fram vegna eftirgjafa slíkra lána annara hreppa, heldur af fullkominni og sannarlegri þörf.

Jeg fylgi hæstv. fjrh. (JÞ) í því að vera á móti því, að þingið án tillagna frá stjórninni gefi eftir lán þriggja hreppa. Og jeg var samþykkur því, sem hæstv. fjrh. hjelt fram, að hreppsfjelögin ættu að snúa sjer fyrst til stjórnarinnar, er í fjárhagslegt óefni væri komið. Og jeg er sammála honum um það, að ekki sje rjett að fara inn á þá braut að snúa sjer ekki til hæstv. stjórnar með þetta, heldur til þingsins. En úr því að svo er komið, að dýrtíðarlán þriggja hreppa eru nú eftir gefin, ætti öll sanngirni að mæla með því, að fjórða og síðasta hreppnum, sem skuldar ríkissjóði dýrtíðarlán, Gerðahreppi, verði einnig gefnir eftir 2/3 hlutar af dýrtíðarlánum þess hrepps. Jeg hefi fullvissað mig um, að fleiri hreppar en fjórir skulda ekki ríkissjóði slík lán; þeir þrír, sem fengið hafa eftirgjöfina, og svo Gerðahreppur, sem sannarlega er verst stæður þeirra allra. En auðvitað skulda kaupstaðirnir sennilega eitthvað af slíkum lánum.

Þegar búið var að ákveða að gefa þrem hreppum eftir dýrtíðarlán í Nd., brá hreppsnefnd Gerðahrepps við, og skrifar oddviti hreppsnefndar okkur þm. G.-K. brjef, dags. 17. þ. m., og leyfi jeg mjer, með leyfi hæstv. forseta, að lesa upp kafla úr því, sem svo hljóðar:

„Þar sem jeg sje nú af blöðunum, að þingið hefir til meðferðar beiðnir frá ýmsum hreppum um uppgjöf á viðlagasjóðslánum frá dýrtíðarárunum, leyfi jeg mjer að biðja ykkur að sækja um uppgjöf á lánum Gerðahrepps við sjóð þennan. Ástæður fyrir beiðni þessari eru sem hjer segir: 1. Skuld hreppsins við viðlagasjóð er nú:

a. Lán vegna dýrtíðar .... kr. 37000,00 b.

Lán til skólabyggingar ... — 2833,33

Lausaskuldir hreppsins í ýmsum stöðum eru ......... — 8400,00

eða alls skuldir hreppsins kr. 48233,33

2. Þar sem nú er orðið svo áliðið vertíðina, er fyrirsjáanlegt, að hún hefir brugðist svo hörmulega, að ekki aflast einu sinni fyrir útgerðarkostnaði, hvað þá meira. 3. Síðastliðið haust jöfnuðum við niður kr. 20500,00, sem er það minsta, sem hægt er að komast af með til þess að geta staðist þarfirnar ásamt vöxtum og afborgunum. Gjalddagi á útsvörunum var um áramót, en þó að altaf sje verið að reyna að innheimta, þá er nú aðeins búið að borga kr. 2800,00 af útsvörunum, og eftir útlitinu að dæma er fyrirsjáanlegt, þegar vertíðin fer svona, að ófáanlegt verður alt að helmingi útsvaranna í þetta sinn.“

Jeg ætla ekki að lesa lengra, en alt brjefið gefur glögga hugmynd um fjárhag hreppsins.

Þessi tvö dýrtíðarlán, 20 þús. kr. hvort, sem tekin voru 1923 til þess að borga gamla víxla frá stríðsárunum, er teknir voru upphaflega til að kaupa landsverslunarvörur, eru nú samkvæmt vottorði ríkisfjehirðis 37 þús. kr., og er því farið fram á eftirgjöf á 2/3 þessarar upphæðar, eða eins og till. mín segir.

Til þess nú að bera ekki þessa tillögu fram aðeins af þeim ástæðum, að aðrir hreppar höfðu fengið slík lán eftir gefin, heldur af skýlausri þörf, þá fjekk jeg hreppsreikning þessa hrepps fyrir árið 1924–1925, sem í fyrradag lá fyrir sýslunefnd til samþyktar. Þessi reikningur sýnir, að eignir voru þessar:

Eftirstöðvar frá fyrra ári . . kr. 11205,78

Útistandandi lán .......... — 1323,48

Grundarbær .............. — 400,00

Barnaskóli ............... — 8400,00

Hreppavegast. í hreppssj. .. — 436,25

Samtals kr. 21365,51

Ekki er hægt að sjá, hversu mikils virði er yfirfærslan frá fyrra ári, sennilega liggur hún í ógreiddum útsvörum, og er því mjög óviss eign á þessum stað. Barnaskólinn gefur og engan arð, sem heldur er ekki að vænta. Og þetta 400 kr. kot getur ekki gefið mikið af sjer. Þá eru líka útistandandi lánin ávalt mjög óviss.

Þá kemur skuldahliðin:

Lán á skólahúsi .......... kr. 2833,33

Lán t.il landvarna ........ — 1200,00

Viðlagasjóðslán ........... — 19000,00

do. ........... — 20000.00

Samtals kr. 43033,33

Við þessi lán hefir svo þurft að bæta, svo að 17. þ. m. eru öll lán hreppsins kr. 48233,33.

Sveitarstyrkur veittur er talinn í byrjun reikningsársins kr. 75106,18, en við hefir bæst á reikningsárinu kr. 10256,92. — Gjaldendur í hreppnum eru 163 að tölu, flestir fátækir og margir bláfátækir.

Þegar nú þessar tölur eru athugaðar, þá virðast þær tala fyrir því, að þessum hreppi sje eftir gefin sú fjárhæð, sem farið er fram á, því að þó sú eftirgjöf sje dregin frá, á hreppurinn ekki nærri fyrir skuldum sínum. — Jeg orðlengi svo þetta ekki meir, en dreg það ekki í efa, að hv. deild láti þennan hrepp njóta jafnrjettis við þá hreppa, sem fá eftirgjöf á dýrtíðarlánum sínum.

Þá á jeg aðra brtt. á þskj. 463. Svo er mál með vexti, að til mín kom maður í gærkvöldi seint, — þess vegna er till. svo seint fram borin, — er hann fornvinur Einars Jónssonar myndhöggvara og hefir styrkt hann mikið og hjálpað. Hann tjáði mjer, að Einar væri mjög áhyggjufullur út af því, hvernig umhorfs er í kringum hús hans, því að þar ægir saman allskonar skrani og óhreinindum, krökkum og hænsnum. Er það ástand sannarlega til minkunar, sjerstaklega ef útlendinga ber að garði. Einar finnur sáran til þess að geta ekki þrifað til í kringum hús sitt og skreytt garðinn, en meðan ekki er girt, er honum það ómögulegt. Bað vinur hans mig því að bera fram þessa till. Hefir Einar látið gera áætlun um girðinguna. Gerðu hana trjesmiður og steinsteypumaður og áætluðu þeir kostnaðinn um 2400–2500 kr. Þar sem upphæðin er nú svona lítil, vona jeg, að hv. deild geti fallist á till. Enda gerir hún hvorki til nje frá um hallann á fjárlögunum.