11.05.1926
Efri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2375 í B-deild Alþingistíðinda. (1844)

15. mál, útsvör

Jóhann Jósefsson:

Jeg hafði ætlað mjer að tala um þetta mál við 2. umr., en þá var svo liðið á nótt, að jeg vildi ekki halda því til streitu að lengja umr.

Síðan hefi jeg komið fram með brtt. við frv., á þskj. 566, og hefir þeim verið útbýtt hjer í háttv. deild. Þær miða að því að færa frv. frekar í þá átt, er stjórnin hafði upphaflega útbúið það.

Þótt hjer í þinginu hafi verið tekin upp sú leið að gera helst ekki hægt að leggja á menn í atvinnusveit — enda þótt þeir hafi dvalið þar svo lengi, sem núgildandi lög mæla fyrir til þess að heimila útsvarsálagningu — þá er það ekki ætlun mín með 1. brtt. að brjóta þá meginreglu. Það er heldur ekki meining mín með 2. brtt. að brjóta bág við þessar reglur, heldur að færa þær nær sanni, þannig að atvinnusveit fái eitthvað í sveitarsjóð frá þeim mönnum, er stunda þar atvinnu í 4–5 mánuði á árinu. Stjfrv. tiltekur, að menn skuli útsvarsskyldir í atvinnusveit, ef þeir hafa dvalið þar 3 mánuði og haft að launum 2000 kr. Þessi upphæð er það allra mesta, sem tiltækilegt er að setja, ef ákvæðið á að ná til vermanna. En við meðferð frv. í háttv. Nd. breyttu menn þessu svo, að ákvæðið skyldi gilda um þá, sem ráðnir eru á báta, og setti inn 5000 kr. lágmark fyrir þá og 3000 kr. fyrir aðra. Með þessu er útilokað, að útsvar náist hjá einum einasta manni.

Það virðist á stjfrv., að með því hafi verið reynt að stilla svo í hóf, að vel hefði mátt við una, en upphæð þessi var þó of há. Og það er svo með marga sjómenn, er flytja sig eftir vertíðum, að í mörgum tilfellum er erfitt að vita, hvar þeir eiga lögheimili. Og jeg er ekki viss um það, þó atvinnusveit missi rjett sinn til þess að leggja á þessa menn, að þeir greiði allir útsvar jafnvel í heimilissveit. En þótt sú stefna sje nú ef til vill ofan á í þinginu, að ekki skuli leggja á menn í atvinnusveit, þá finst mjer þó mikið mæla með því, að menn komist þar ekki undan útsvari, ef þeir dvelja í sama stað ¼–1/3 úr ári, eða jafnvel lengur. Og sjerstaklega verða stærri verstöðvar hart leiknar, ef þær missa tilkall til þess að leggja á slíka menn. Í þessu atriði mætti sýna meiri sanngirni, ef kaupupphæðin væri færð niður í þær tölur, sem jeg hefi lagt til í brtt. mínum á þskj. 566. Jeg hefi ekki viljað breyta skiftingu útsvara milli heimasveitar og atvinnusveitar, til þess að brjóta ekki í bág við meginreglu frv., en jeg hefi reynt að færa ákvæði þess í sanngirnisáttina að því er stærri verstöðvar snertir. Mjer finst, að þeir menn, sem flytja í verstöð til þess að reka þar kaup á fiski, síld eða öðrum afurðum, eigi að sjálfsögðu að vera útsvarsskyldir þar. En jeg get ekki sjeð, að það verði með frv. eins og það nú er. Þess vegna hefi jeg flutt brtt. mína, sem er lík brtt. hv. l. þm. Eyf. (EÁ). er borin var fram við 2. umr., en þó nokkuð fyllri á sumum sviðum og ekki að öllu leyti eins. Mjer finst, að með frv., eins og það er þú, sje of lítillar sanngirni gætt gagnvart þeim verstöðvum, þar sem þessi ákvæði skifta máli, eins og jeg hefi fyr drepið á, og það er áberandi, hvað frv. hefir verið fært til verri vegar síðan það kom frá stjórninni.

Jeg skal svo ekki orðlengja meira um brtt. mínar. Þær eru sanngirniskrafa af hálfu atvinnusveita, og jeg vona, að hv. þingdeild taki þær til greina.