11.05.1926
Efri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2383 í B-deild Alþingistíðinda. (1849)

15. mál, útsvör

Frsm. minni hl. (Guðmundur Ólafsson:

) Jeg verð að vera þakklátur hæstv. atvrh. fyrir það, hve liðlega hann tók í brtt. mínar, mun betur en í till. þær, sem jeg flutti við 2. umr. (Atvrh. MG: Jeg svaraði í sama dúr og háttv. þm.). En jeg talaði þó ekki kuldalega til hæstv. atvrh., heldur aðeins um málið sjálft. Og fyrst málið er athugavert, get jeg ekki hælt því, hver svo sem að því stendur.

Hæstv. atvrh. sagðist ekkert hafa á móti því, að 1. brtt. mín verði samþ. Þá er hann nú kominn á þá skoðun, að frumvarpið megi fara til háttv. Nd. En við 2. umr. mátti engu breyta, eins og meiri hl. allshn. hjelt einnig fram. En það hefir nú reynst svo, t. d. í gær, þegar frv. um kosningar í málefnum sveita og kaupstaða var til einnar umr. í hv. Nd., að hún er ekki eins hættuleg og Ed. hefir verið talin trú um, enda gekk hún þegar að breytingu Ed.

Hæstv. atvrh. var mótfallinn því að breyta til um reikningsárið. En hann færði þó enga frambærilega ástæðu fyrir því, að hentugra væri fyrir sveitirnar að hafa almanaksárið fyrir reikningsár. Hann var yfirleitt á móti þeim breytingum, sem mjer eru aðalkappsmál. Jeg hygg, að engum hafi getað annað en skilist það við 2. umr., að jeg lagði aðaláhersluna á það að fá 12. gr. út. Og nú er það reikningsárið. En jeg get ekki verið hlyntur málinu, þó að þær till., er minstu máli skifta, verði samþ., en aðaltill. feldar, aðeins af ótta við Nd.

Viðvíkjandi brtt. á þskj. 558 hefir hæstv. ráðh. skift um skoðun, eftir atkvgr. í Nd. í gær. (Atvrh. MG: Jeg sagði ekkert um hana við 2. umr.). Mig minti það nú samt, og fyrir tilmæli hæstv. atvrh. tók jeg hana aftur, en háttv. l. landsk. (SE) tók hana upp, og var hún þá feld.

Kem jeg þá að 3. brtt. minni, er ráðherrann er ekki mótfallinn. Jeg tel í rauninni óþarft að hafa þetta lágmark, þar sem altaf mun lagt á útsvar, ef niðurjöfnunarnefndin álítur, að gjaldþegn sje á annað borð fær um að greiða nokkuð. En annars skiftir þetta ekki miklu máli. En jeg er sammála hæstv. atvrh. um það, að sjaldan muni lagt á minna en 5 kr. nú orðið, en reyndar getur það breyst aftur

Jeg hefi líklegast tekið skakt eftir, er mig minti, að hæstv. atvrh. hefði talað á móti 6. brtt. (Atvrh. MG: Hún er afleiðing af 5. brtt.). Að nokkru leyti, en þar fer jeg fram á, að þessi 10% falli niður. Hann ætlar þá að vera með henni, ef það væri hættulaust að því er snertir Nd. (Atvrh., MG: Til samkomulags ætla jeg að vera með henni).

Jeg get ekki fallist á það, sem hæstv. atvrh. sagði um úrskurði yfirskattanefnda og ráðuneytis. En jeg fellst hinsvegar á, að öll útsvarsálagning sje mat. En þá á líka að fara eftir því mati, en ekki að draga 10% frá því, eða bæta þeim við.

Nú er hæstv. atvrh. farinn, en þá verð jeg bara að láta deildina hafa svör mín í staðinn.

Jeg vildi mótmæla því, sem hann sagði um gjalddagana. Það er auðvitað rjett, að 15. júní er liðugri viku eftir fardaga. Það ætti ekki að gera svo mikið til, eins og jeg hefi áður tekið fram. Er óþarft að hafa þau orð um, að reikningnum þurfi þess vegna að halda opnum í svo og svo langan tíma. Það er ekki rjett, að þetta ákvæði hafi verið sett inn í frv. af bændum í hv. Nd., því að það var upphaflega í stjfrv. Því var haldið fram, að þetta væri hentugur tími. Bændur hefðu frekar peninga um 15. júlí og 15. október en ella. En þessu þarf enginn að halda fram við mig hvað fyrri gjalddagann snertir, því að enda þótt bændur selji t. d. ullina í júlí, eru þeir oftast búnir að taka út á hana og fá því lítið eða ekkert útborgað í peningum. Allar þessar mótbárur eru í rauninni einskis virði. Hæstv. atvrh. færði ekki minstu rök fyrir því, að þetta væri alment hentugra, sem ætlast er til í frumvarpinu.

Nú er máli þessu svo komið, eftir ráðleggingum hæstv. atvrh., að jeg get alls ekki verið með því, þótt brtt. mínar, er minstu máli skifta, yrðu samþ. Ef brtt. mínar við 2. umr. hefðu verið samþyktar mundi öðruvísi hafa farið. En málið kemst nú líklega í gegn, hvað sem atkv. mínu líður. En jeg á bágt með að trúa öðru en að lög þessi sæti almennri óánægju, er til framkvæmda kemur, og verði jafnvel þinginu til minkunar.