11.05.1926
Efri deild: 72. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 2386 í B-deild Alþingistíðinda. (1852)

15. mál, útsvör

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg hefi aldrei sagt, að jeg teldi brtt. til bóta. En jeg vildi ganga að sumum þeirra til samkomulags, þar eð þær eru þannig vaxnar, að þær raska ekki grundvelli frv., svo að málið þarf ekki að daga uppi af þeim sökum.