23.02.1926
Neðri deild: 13. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 17 í C-deild Alþingistíðinda. (1877)

21. mál, lokunartími sölubúða

Björn Líndal:

Hv. flm. frv. (JakM) vildi fá skynsamlega ástæðu fyrir því, að þessum mönnum, sem hjer er um að ræða, sje leyft að vinna lengur en öðrum. Til þess er fyrst og fremst sú skynsamlega ástæða, sem ætti að vera öllum ljós, að öllum á að vera leyfilegt að vinna heiðarlega vinnu eins lengi daglega og þeim sjálfum sýnist, án þess að þeir, sem latari eru og áhugaminni, geti bannað það. Slíkt má aðeins banna, þegar færð eru óhrekjandi rök fyrir því, að almenningsheill krefjist þess. Sumir menn verða að leggja meira á sig en aðrir, til þess að geta sjeð fyrir sjer og sínum, og væri hróplegt ranglæti, að meina þeim það, þegar almenningi er það hvorki til tjóns nje óþæginda. Og hjer er ekki um neitt slíkt að ræða.

Hvað snertir tryggingu gegn því, að börn sje látin vinna of lengi, þá mætti vitanlega setja lög um slíkt. En það er ekki rjetta leiðin til þess að tryggja börn gegn oflangri vinnu, að banna fullorðnu og fullhraustu fólki að vinna. Þeir háttv. þm., sem bera það mest fyrir brjóstinu, að vernda börn og unglinga fyrir oflangri vinnu, ættu að flytja sjerstakt frumv. um það efni. Að minsta kosti ættu þeir að fá þetta mál tekið út af dagskrá í dag til þess að flytja við það brtt. í þá átt að banna börnum og unglingum að vinna í rakarastofum lengur en góðu hófi gegnir.