23.02.1926
Neðri deild: 13. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 18 í C-deild Alþingistíðinda. (1879)

21. mál, lokunartími sölubúða

Magnús Torfason:

Jeg get látið mig litlu skifta, hverju fram fer í þessu máli og skal því ekki víkja neitt að einstökum atriðum þess. En þó er eitt atriði, sem telja má þó nokkurs um vert og hv. flm. (JakM) benti á, er hann bar frv. fram fyrst. En það er þetta: Ef þingið fellir þetta mál, sem aðeins er heimild til bæjarstjórnar að setja reglugerð um þessi efni, þá er þingið þar með að ganga á sjálfsákvörðunarrjett bæja og sveitastjórna yfirleitt. En hvað snertir málið sjálft, þá virðist mjer það vera of lítið til þess, að Alþingi sje hjer að keppa um völd við bæjarstjórn. Enda virðist mjer, að með því að fella þetta frv., þá sje þingið beinlínis að svívirða bæjarstjórn Reykjavíkur. En það virðist mjer ástæðulaust og rangt að fara svo með bæjarstjórn höfuðstaðarins, þar sem eiga sæti aðrir eins menn eins og Pjetur Magnússon, Ólafur Friðriksson, Jón Ásbjörnsson og Haraldur Guðmundsson — svo jeg nefni aðeins nokkra. Jeg verð að segja það, að jeg er talsvert hlessa á því, ef slíkum mönnum er ekki treyst til þess að ráða fram úr slíku smámáli sem þessu, og það því fremur sem í frv. er verið að setja inn ákvæði, sem bæjarstjórn er best treystandi til að bera skyn á, sem sje um vinnustofur, sem menn reka sjálfir án aðkeyptrar þjónustu. Jeg verð að telja það miklu rjettara og sæmilegra að vísa deilunum um slíkt mál niður á bæjarstjórn, en tefja ekki þingið á slíkum umr.