01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 748 í B-deild Alþingistíðinda. (190)

1. mál, fjárlög 1927

Atvinnumálaráðherra (MG):

Það eru aðeins fá orð til hv. 1. þm. G.-K. (BK) út af brtt. hans um eftirgjöf á láni til Gerðahrepps. Jeg er sammála hv. þm. um það, að heppilegast væri, að slíkar málaleitanir sem þessi kæmu til þingsins frá ríkisstjórninni. Það er enginn mælikvarði á fjárhag hreppsins, þótt þingmaður kjördæmisins hafi tekið að sjer að flytja brtt. við fjárlögin um eftirgjöf á láni, og það er heldur enginn mælikvarði um slæman fjárhag hreppsins, þótt hann sje í skuld við viðlagasjóð. Jeg skal taka það fram, að ef þessi brtt. verður feld, er jeg fús til að taka efnahag þessa hrepps og annara, sem líkt er ástatt um, til athugunar, ef þeir vilja snúa sjer þessu viðvíkjandi til stjórnarinnar, og mun þá verða leitast við að gera tillögur um að greiða fram úr vandræðum þeirra, og ef það reynist ekki hægt á venjulegan hátt, þá mun stjórnin bera fram tillögur um þetta við fjárlögin á næsta þingi. Það getur og vel átt sjer stað, að hreppar sjeu hjálparþurfar án þess að þeir sjeu þegar komnir í skuld við viðlagasjóð. Nýlega hafa verið samþykt lög um breyting á fyrirkomulagi bjarðráðasjóðs, svo hann mun nú geta veitt nokkra hjálp illa stæðum hreppsfjelögum. Sjóðurinn er nú um 600–700 þús. kr. og getur veitt hagkvæm lán til alt að því 20 ára. Vextir af lánunum fara ekki fram úr 5%. Þó geta sveitarfjelög verið svo illa stæð, að þau þoli heldur ekki að taka lán og sjeu beinlínis gjafaþurfar.

Jeg skal leyfa mjer að benda á, að þegar jeg fyrir liðlega tveimur árum síðan átti sæti í fjvn. Nd., komu þar fram beiðnir frá ýmsum hreppum um styrk og eftirgjafir. Þá þótti ekki fært að verða við þeim beiðnum, en hitt ráðið var heldur tekið, að gera ráðstafanir til, að bjargráðasjóðurinn gæti greitt úr þessum málum. Sjóðurinn er nú geymdur í Landsbankanum, og það er sanngjarnara að hreppar, sem eru illa stæðir, fái lán úr sjóðnum með vægum kjörum heldur en að hafa það þarna inni á lágum vöxtum. Þess vegna tel jeg rjettast, að hreppsfjelög, sem telja sig styrksþurfa, snúi sjer fyrst til stjórnarinnar, sem þá lætur rannsaka hag þeirra og allar kringumstæður, og verði ekki hægt að bjarga þeim við á annan hátt, mun stjórnin þá snúa sjer til þingsins fyrir þeirra hönd.

Út af orðum hv. 3. landsk. (JJ) um fjárveitingu til sendiherrans í Kaupmannahöfn vildi jeg aðeins segja það, að grundvöllurinn undan till. hans hverfur, þegar það er upplýst, að maður sá, sem gegnir starfinu nú, getur ekki gegnt því lengur. Jón Krabbe hefir tilkynt stjórninni, að hann treysti sjer ekki til að hafa starfa þennan lengur á hendi. Þetta er ekki nema eðlilegt. Maður þessi hefir verið og er enn mjög störfum hlaðinn, og er því orðinn þreyttur, enda þótt hann sje ekki eldri en ca. 50 ára gamall. Vill hann því ljetta af sjer einhverju af þessum mörgu störfum.

Þar sem nú það er margviðurkent, að við þurfum að hafa góðan mann í Kaupmannahöfn, er ekki unt annað að ræða en að senda hann hjeðan, þegar þessi ágæti maður. Jón Krabbe, sem mun eiga fáa sína líka, hefir ofboðið svo kröftum sínum, að ekki er um að ræða að fá hann til þess að gegna þessu starfi lengur.