24.03.1926
Efri deild: 36. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (1900)
24. mál, bæjarstjórn á Norðfirði
Frsm. (Eggert Pálsson):
Háttv. flm. þessa frv. (IP) byrjaði ræðu sína á því, að láta í ljós hneykslun sína yfir því, að nefndin skyldi játa í upphafi nál., að það gæti orðið til aukinna þæginda og jafnframt nokkurra hagsmuna fyrir Norðfjörð, að fá sjerstök kaupstaðarrjettindi. En jeg sje enga ástæðu til að hneykslast yfir því, þó að nefndin sje sanngjörn, því að það er vitanlegt, að það væru óneitanlega aukin þægindi fyrir mörg kauptún fleiri en Norðfjörð, ef ríkisstjórnin vildi leggja þeim til launaðan lögreglustjóra. En jeg verð að taka það fram, eins og gert er í nál. og háttv. flm. hefði átt að lesa, að þessi auknu þægindi og hagsmunir eru skilyrðisbundin, nfl. því skilyrði, að sá maður, sem fengist, yrði til einhvers gagns. Því að ef þeir yrðu óhepnir með manninn, gæti svo farið, að slík rjettarbót yrði þeim aðeins til ógagns. Gæti þá svo farið, að ekki liði á löngu áður en þeir færu að telja eftir það fje, sem þeir yrðu að leggja fram til þess að launa honum, því að ógagn það, sem af slíkum manni leiddi, væri hann óheppilega valinn, gæti verið margvíslegt, því að sennilega myndi starf hans verða meira bæjarstjórastarf en lögreglustjóra.
Þá benti hv. flm. (IP) á, að móti þessu frv. mætti ekki hafa sakir þess, að hjá Neshreppsbúum væri svo brýn þörf fyrir sjerstakan bæjarfógeta. Hann viðurkendi jafnframt, að víðar gæti verið þörf fyrir slíkan mann, og þá ætti Alþingi umsvifalaust að ganga inn á allar slíkar kröfur. En yrði það ofan á, þá verð jeg að segja, að töluvert væri farið að víkja frá þeirri stefnu, sem verið hefir í þessum málum, því að ekki er langt síðan, að því var haldið fram, að fækka sýslumönnum ekki svo all-lítið, og meðal annars að slengja saman Suður-Múlasýslu og Austur-Skaftafellssýslu.
Þungamiðjan í öllum röksemdum háttv. flm. með frv. var sú, að á Norðfjörð væri svo mikil skipakoma, og þar af leiðandi svo mikil gjöld að innkalla, að óviðkunnanlegt væri að láta ábyrgðarlausan hreppstjóra innkalla þau öll, og því væri nauðsyn á að fá sjerstakan bæjarfógeta þangað. En hinsvegar viðurkendi hann, að engin óregla hefði átt sjer stað á innköllun gjaldanna, og það er ríkissjóði altaf fyrir mestu. Og úr því nú svo er, að engin óregla hefir átt sjer stað að þessu leyti, þá er mjer alveg sama, hvort gjöldin eru innkölluð af hreppstjórum eða sýslumönnum, hvort heldur er þarna eða annarsstaðar. Og nú hefir ekki legið fyrir, að ekki fengjust góðir menn til að vera hreppstjórar á Norðfirði, heldur hið gagnstæða, og jafnframt hefir það verið upplýst, að þeir fái sjerstakar aukatekjur fyrir að fara út í hvert skip. Sýnist því engin ástæða vera til að breyta til um þetta nú.
Þá mintist hv. flm. á Seyðisfjörð og hvernig hann hefði fengið kaupstaðarrjettindi, og hefði hann þó síst verið meiri kaupstaður þá en Norðfjörður er nú. En hann athugaði ekki, hvernig þá var ástatt þar. Sýslumaðurinn var þá búsettur þar, og því var það ekki nema 500 kr. kostnaðarauki fyrir ríkissjóð að veita kauptúninu þessi rjettindi. Auk þess var þá uppgangs og blómatími Seyðisfjarðar. En hefði hann ekki fengið þessi rjettindi þá, og færi fram á að fá þau nú, myndi hin sama mótstaða vera gegn því að veita honum þau og nú eru gegn því að veita Norðfirði þau.
Annars er það tilfellið með þessi kauptún, að þau blómgast um tíma, en svo fer þeim aftur, þegar minstum vonum varir. Þannig má vel vera, að uppgangur Norðfjarðar verði svo mikill, að jeg gæti verið með því, að veita honum sjerstaka bæjarstjórn. En hitt getur eins orðið, að uppgangstími hans sje nú á enda, og því sje það misstigið spor að veita honum þessi rjettindi nú. Þessvegna er það, að nefndinni finst rjett að láta þetta bíða og sjá hvernig fer.
Finn jeg svo ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta. Jeg hefi gert glögga grein fyrir aðstöðu nefndarinnar til þessa máls, og ætti því öllum að skiljast, að það getur verið varhugavert að hlaupa eftir öllum slíkum tilmælum sem þessum.