27.03.1926
Neðri deild: 42. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í C-deild Alþingistíðinda. (1912)

52. mál, hafnarlög fyrir Reykjavíkurkaupstað

Sigurjón Jónsson:

Jeg vil aðeins benda á, að um leið og við göngum inn á þessa braut, að veita Reykjavík þessi rjettindi, þá getum við ekki neitað öðrum kaupstöðum, sem hafa hafnarreglugerðir og hafnargjöld, um þenna sama rjett til sjóveðs í skipum. Slík tilmæli mundu áreiðanlega koma fyrir næsta þing. Vil jeg biðja hv. þdm. að athuga þetta.