07.04.1926
Efri deild: 44. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 67 í C-deild Alþingistíðinda. (1944)

27. mál, verslunarbækur

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Út af því, sem þessir tveir hv. deildarmenn hafa tekið fram, vil jeg taka það fram, að nefndin lítur svo á, að þetta eigi ekki að vera tvíritunarbækur, heldur samskonar bækur og gömlu „kontrabækurnar“ voru. Náttúrlega er ekki hægt að neita því, að þetta þýðir aukna fyrirhöfn fyrir verslanir. En því síður er hægt að neita hinu, að það sje tryggilegra gagnvart viðskiftamönnunum og betra en nú er.

Viðvíkjandi því, sem hv. 1. þm. G.-K. (BK) spurði um, hvort þetta ætti aðeins að gilda fyrir verslanir, en ekki kaupfjelög, þá lítur nefndin svo á, að þetta gildi að sjálfsögðu fyrir kaupfjelög líka. Því að þau eru líka verslanir, ef þau hafa opna sölubúð (BK: Hvort sem er). Já, að vísu, en það er þó nokkuð annað. En sannast að segja töluðum við ekki um þetta sjerstaklega í nefndinni. En þetta er mín skoðun, og tel jeg alveg víst, að nefndin geri ekki ráð fyrir öðru en að telja það sjálfsagt, að lögin nái einnig til kaupfjelaga.

Þó að þetta sje nú dálítil fyrirhöfn, held jeg, að ekki sje sjerstök ástæða til að setja það fyrir sig. Og þeir, sem eru ánægðir með það fyrirkomulag, sem er, gera að öllum líkindum ekki verslunum þeim, sem þeir skifta við, neina erfiðleika með þessu.

Það verður ekki hægt að neita því, að þegar menn fá þessi samrit á mörgum lausum blöðum, sem verða mesti fjöldi yfir árið, þá eru menn yfirleitt ekki svo reglusamir að hafa alt víst, þegar reikningurinn kemur. Og fyrir mitt leyti held jeg, að lögin frá 1911 hafi verið síður en svo framför í þessum efnum.