10.03.1926
Neðri deild: 27. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 81 í C-deild Alþingistíðinda. (1973)

57. mál, einkasala á tilbúnum áburði

Flm. (Tryggvi Þórhallsson):

Jeg get þakkað hv. 2. þm. Skagf. (JS), hversu vel hann hefir tekið þessu máli nú eins og í fyrra. Það gæti verið ástæða að fara langt út í mál það, sem hann mintist á, en jeg vil ekki að svo stöddu draga það inn í þingið, en mun gefa nefndinni skýrslu um málið.