27.04.1926
Neðri deild: 63. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 113 í C-deild Alþingistíðinda. (1990)
57. mál, einkasala á tilbúnum áburði
Tryggvi Þórhallsson:
Hæstv. atvrh. (MG) greip tækifærið við 2. umr. til þess að beina nokkrum orðum til mín sem formanns Búnaðarfjelags Íslands, og lagði fyrir mig spurningar um rekstur þessa máls árið sem leið. Þá hafði jeg ekki aðstöðu til þess að koma með „data“ í málinu og gat ekki náð í nein plögg. En nú hefi jeg þau við höndina og get gefið hjer nánari skýrslu.
Hæstv. atvrh. (MG) spurði mig, hvað jeg hefði gert í þessu máli, frá því Búnaðarþingið samþ. ályktunina og þangað til þetta kom fyrir, að Búnaðarfjelagið misti umboðið.
Ályktun þessi var samþykt seint í febrúar, þ. 24., en ekki 21., eins og hæstv. atvrh. (MG) sagði. En af gögnum, sem jeg hefi í höndunum, er ljóst, að Búnaðarfjelagið misti umboðið 5. febrúar. Í skýrslu, sem einn ráðunautur fjelagsins hefir samið, sá, er hefir rannsakað þetta mál, segir meðal annars: „Norsk hydro hefir á árunum 1923, 1924, og fram til 5/2 1925 skoðað Búnaðarfjelag Íslands sem einksala sinn á Íslandi. Engir bindandi samningar finnast þó um þetta atriði ritaðir í brjefasafni fjelagsins, sem undirritaðir sjeu af beggja aðilja hálfu, nje neitt tekið fram, sem beint er um þessi atriði, hvorki áður eða eftir að viðskiftin komu í gang.“
Þetta kemur enn skýrar fram síðar í skýrslunni og í plöggum ráðunautsins, þar sem fjelagið gerir grein fyrir málinu í heild sinni. Segir þar, að Búnaðarfjelag Íslands hafi með brjefi dagsettu 29. jan. 1925 sagt, að maður frá firmanu Nathan & Olsen mundi koma til tals við Norsk hydro. Jeg var ekki formaður um það leyti, en átti þá sæti í stjórninni. En jeg hafði enga hugmynd um þetta brjef, og jeg þori að fullyrða, að þáverandi formaður fjelagsins, Guðjón Guðlaugsson, hafði heldur enga hugmynd um, að það hefði nokkurntíma verið sent.
Þar segir svo: „Med brev av 29/1 1925 bebudes Bunadarfjelag Islands besöket av direktör Olsen í firmaet Nathan & Olsen, der opgis at ha været Bunadarfjelaget behjælpelig med salg av Norgesaltpeter og anden kunstgödning. — Vi blev í denne forbindelse anmodet om at vente noget med afgörelsen vedrörende et evenjuelt kjöp av bebudede 200 tons. Denne konference med konsul Carl Olsen í firmaet Nathan og Olsen fandt sted den 5/2 1925, hvorunder vi, under visse vilkaar indrömmet dette firma enesalget av Norge-saltpeter paa det islandske marked í sæsongen 1925–1926, likesom vi fra konferances dato til utgangen av februar 1926 forpliktet til ikke at sælge Norge-saltpeter paa Island direkte eller indirekte gjennem andre end Nathan og Olsen, likesom vi bekræftet at vi heller ikke vil træffe nogen avtale med andet firma for 1926–'27, för vi har havt anledning til mundtlig eller skriftlig at overveie med Nathan og Olsen en lignende forretning for denne sæsong.“
Á þessu sjá menn, að þetta er afgert þegar 5. febrúar 1925. En svo bæta þeir við: „. . . . alt under forudsætning av, at Bunaðarfjelag Islands, resp. dette landbruksselskabs daværende præsident, herr Sigurðsson, ikke har noget at indvende mot en saadan ordning.“ En stjórn Búnaðarfjelagsins barst ekkert um þetta mál, og eins og menn sjá, stendur Norsk hydro enn í þeirri meiningu, að Sigurður Sigurðsson sje „præsident“ fjelagsins.
Þetta gerðist 5. febrúar, en Búnaðarþingið kom saman 21. sama mánaðar. En samkvæmt gerðabók Búnaðarfjelgsins er það ekki fyr en 10. mars, að jeg er kosinn formaður þess. Það getur því ekki komið til nokkurra mála, að jeg hafi vanrækt nokkuð í þessu efni. Og jeg fullyrði, að Guðjón Guðlaugsson hefir hjer heldur ekkert vanrækt.
Hæstv. atvrh. (MG) hjelt því fram, að við stjórnarnefndarmenn hefðum gengið slælega fram í ráðstöfunum út af þessu máli. Á þessum sama búnaðarþingsfundi og jeg nefndi áðan var Oddur Hermannsson skrifstofustjóri kosinn meðstjórnandi í fjelaginu. En það var ekki hægt að halda stjórnarnefndarfund þegar, sökum þess að hann var veikur. Samt sem áður hjeldum við þó tveir fund út af þessu máli. Þetta var 5. mars, og hjeldum við, jeg og Valtýr Stefánsson ritstjóri, þann dag tvo fundi til þess að ráðstafa málinu. Vil jeg með leyfi hæstv. forseta, lesa upp úr gerðabók fyrri fundarins: „Rætt allmikið um ráðstöfun á sölu á Noregssaltpjetri frá Norsk hydro. Kom á fundinn Carl Olsen, stórkaupm., frá firmanu Nathan & Olsen, til viðræðu um málið, og ennfremur Eyjólfur Jóhannsson, framkvæmdastjóri Mjólkurfjelags Reykjavíkur, og Magnús Þorláksson á Blikastöðum. Engin ákvörðun tekin.“
Þessi fundur var haldinn fyrri part dagsins, og voru þarna saman komnir báðir aðiljar, sem reyndu að koma sjer saman um, hvernig skipa skyldi máli þessu. Og jeg veit, að þeir munu bera það, að í þessu máli lagði jeg aðaláhersluna á, að það fengist fram, sem Mjólkurfjelagið gat við unað.
Þá var aftur haldinn stjórnarfundur k1. 8 um kvöldið, og skal jeg, með leyfi hæstv. forseta, einnig lesa upp þá fundargerð. Þar stendur: „Oddur Hermannsson var fjarstaddur sökum veikinda. Á fundi voru staddir aftur: Carl Olsen stórkaupm., Magnús bóndi Þorláksson á Blikastöðum og Eyjólfur Jóhannsson framkvæmdastjóri Mjólkurfjelagsins. — Rætt aftur um áburðarmálið. Hafði orðið samkomulag milli Olsens og Mjólkurfjelagsins um ráðstöfun málsins á þessum grundvelli: Búnaðarfjelag Íslands geri ráðstöfun til þess, að af þeim 200 smálestum, sem það á kost á að fá frá Norsk hydro, verði 140 smálestir sendar til Nathan & Olsen, til sölu og ráðstöfunar, en 60 til Mjólkurfjelags Reykjavíkur. Skuldbundu báðir sig til að selja áburðinn á hafnarbakkanum fyrir 36 kr. pr. 100 kg. þeim, sem panta hann og borga fyrirfram og taka við skipshlið. Fyrir aðra hjer á staðnum verði útsöluverðið 38 kr. gegn staðgreiðslu á vori komanda. Loks skuldbinda Nathan & Olsen sig til að hafa áburðinn til sölu á Seyðisfirði, Akureyri og Ísafirði, með sömu skilmálum, í viðlíka stórum mæli og seldist þar í fyrra. — Báðir skuldbinda sig til þess að greiða verð áburðarins til Norsk hydro, gegn farmskírteini, samkvæmt gerðum samningi við Norsk hydro“.
Með öðrum orðum, á fyrsta fundi stjórnarinnar, jafnvel áður en einn meðlimur hennar getur sótt fund, er þetta gert. Mjer finst því langt frá því, að hægt sje að ásaka okkur um deyfð í þessu máli. Jeg vil breyta því við, að þegar maður skoðar dýpra, þá er þessari ásökun ekki beint til okkar, sem í stjórnarnefndinni sitjum, heldur er þetta árás á búnaðarmálastjóra, ásökun um, að við hefðum ekki sýnt honum nógu mikla tortrygni. En jeg vil halda því fram, að þá hafi engin ástæða verið til tortrygni. En úr því að fjekst nú sú ráðstöfun í þessu máli, sem Mjólkurfjelagið sætti sig við, ætla jeg ekki að ræða meira um þetta. Jeg vil þó geta þess, út af umtali, að þó að jeg áliti, að búnaðarmálastjóri hafi ekki hegðað sjer hjer eins og vera bar, vil jeg samt ekki láta líta svo út, sem þetta sje hið eina, er um hann verði sagt. Því enda þótt honum hafi yfirsjest hjer, hefir hann þó unnið svo stórt og ágætt verk í þarfir hins íslenska landbúnaðar, að því má ekki gleyma við hliðina á þessu.
Jeg ætla þá, með leyfi hæstv. forseta, að víkja að öðru máli hliðstæðu þessu, einkum þar sem við 3. umr. er leyfilegt að tala nokkuð alment um málin.
Hæst. atvrh. (MG) spurði mig við 2. umr. málsins. Nú ætla jeg að leggja nokkrar spurningar fyrir hæstv. atvrh. (MG). Vil jeg fyrst rekja nokkuð drög til þessara fyrirspurna. Það er upphaf þessa máls, að áður en núverandi landsverkfræðingur tók við embætti sínu, var hjer annar maður landsverkfræðingur um all-langan tíma. En nokkru síðar, ætla jeg, setti hann upp stóra verslun með þau efni, er þarf til húsa- og brúagerða, t. d. sement, annað byggingarefni, járnpípur og fleira. Jeg vil nú spyrja hæstv. atvrh. (MG) og vona að hann svari: Getur hæstv. atvrh. (MG) frætt um það, hvort þessi maður hefir byrjað nokkuð á þessari verslun meðan hann var landsverkfræðingur? Þar sem hann stofnaði verslunina stuttu eftir, gæti einhverjum dottið í hug, að hann hefði verið byrjaður eitthvað áður. Hvern dóm myndi hæstv. atvrh. (MG) leggja á, ef svo hefði verið? Þar sem hann, sem landsverkfræðingur, annaðist innkaup til opinberra framkvæmda, hefði það þá verið heppilegt, að verslað væri þannig. Þar sem gera má ráð fyrir, að slík verslun sje rekin sem hver önnur, telur hæstv. ráðh. (MG) heppilegt, að slík verslun sje rekin?
Jeg fæ einmitt í þessu upp í hendurnar plögg, sem jeg var að bíða eftir. Það er símskeyti til skrifstofustjóra í stjórnarráðinu og hljóðar svo: „Kun Bunadarfjelag Islands indehadde vor eneforhandling indtil Nathan & Olsen overtok agenturen í februar 1925.“ En jeg varð ekki formaður fyr en 10. mars 1925.
Nú horfir þetta við nokkuð á annan veg. Nú er landsverkfræðingurinn orðinn fjármálaráðherra, og enn rekur hann, að því er jeg best veit, stóra verslun með byggingarefni. Er sagt, að það sje blómleg verslun. Jeg vil enn spyrja hæstv. atvrh. (MG), hvort hæstv. fjrh. (JÞ), sem er eigandi verslunarinnar, að minni ætlan, selji hinu opnbera byggingarefni? Ef slík verslun fer fram milli þessa firma og ríkisins, þá verður mjer að spyrja, hvort er það þá heldur firmað Jón Þorláksson og Norðmann, sem hefir hag af því, eða fjármálaráðuneytið fyrir hönd ríkissjóðs eða hvorttveggja?
Jeg hefi reynt að gera mjer grein fyrir því, um hvað mikið er að ræða í þessu efni, og jeg tek nú t. d. aðeins einn lið þessarar verslunar, vörutegund, sem nefnt firma verslar einna mest með, það er sementið. Jeg hefi fengið upplýsingar frá ábyggilegum mönnum, í fyrsta lagi um, hve mörg prósent sementsverðið sje af venjulegum byggingarkostnaði, í öðru lagi um það, hver sje venjuleg álagning á þessa vöru, þ. e. sementið, og í þriðja lagi dreg jeg þetta saman til að fá betra yfirlit, þannig að jeg hugsa mjer, að einn og sami sementskaupmaður selji þessa vöru til allra opinberra bygginga, sem bygðar hafa verið, og geri ágiskun um, hvaða hag hann muni hafa haft af því.
Um 1. atriði segja mjer múrsmiðir, að í Reykjavík sje sementsverðið ca. 10%, af verði vandaðra steinhúsa, en upp til sveita, þar sem hús eru að jafnaði eigi eins vönduð og minna borið í þau að ýmsu leyti, er mjer sagt, að andvirði sementsins til bygginga þar geti orðið alt að 15–18% af verði húsanna, og þar sem yfir höfuð sje um stórbyggingar að ræða, fari sementsverðið oftast nær, eða megi búast við því, að það verði um 15% af byggingarkostnaðinum. Um normal-álagningu hjá kaupmönnum á sementið ber mönnum ekki saman, hver muni vera; flestir ætla, að um 8–10% sje að ræða; jeg geri ráð fyrir, að álagningin muni oftast vera um 6–8% af verðinu.
Þá skal jeg nefna nokkrar opinberar byggingar, sem á að reisa á næstunni: Landsspítali, Kleppsspítali og heilsuhælið í Kristnesi. Af skólum skal jeg nefna t. d. Eiðaskólann og þá skóla, sem að nokkru leyti (þ. e. með opinberum styrk) eru bygðir fyrir almannafje, t. d. skólinn að Laugum í Þingeyjarsýslu, hinn fyrirhugaði skóli í Árnessýslu, o. fl. Þá eru ótaldar ýmsar brúargerðir, landtökuvitinn o. fl., sem sement þarf til. En alls hefi jeg talið upp áætlaðan byggingakostnað um 3 milj. og 147 þús. kr. Þá er að finna út, hve mikið af þessum kostnaði er falið í verði sementsins. Ef gert er ráð fyrir, að það sje 15%, verður þetta 470 þús. kr., og ef kaupmaðurinn selur með 6% álagningu, verður hagnaðurinn um 28. þús. kr., en ef miðað er við 8%, verður það um 38 þús. kr., en við 10% álagningu verður þetta ca. 47 þús. kr., og jeg geri ráð fyrir, að hver sæmilega góður og duglegur kaupmaður mundi vilja ná í 10% af þessu, ef hann gæti, og er auðvitað ekkert við það að athuga. En mjer þykir þetta þó allgóður skildingur, sem þannig er hægt að græða aðeins á þessari einu vörutegund, en þó er ótalið alt annað efni, sem þarf að kaupa til þessara bygginga, svo sem tímabur, saumur, járn og pípur o. fl. Nú hefi jeg það fyrir satt, að hæstv. fjrh. (JÞ) sje meðeigandi verslunar, sem hefir ýmsar vörur á boðstólum og meðal annars sement. Jeg veit ekkert um, hvort ríkið á kaup við þessa verslun um efni til opinberra bygginga, en jeg spyr, ef það hefði átt sjer stað, hvort það hefði þá verið rjett eða eðlilegt, að ríkið verslaði við firma, sem fjrh. væri meðeigandi í?
Úr því að jeg og hæstv. atvrh. (MG) höfum orðið sammála um, að sjerstök ástæða hafi verið til að vernda bændur gegn þeim atburðum, sem gerst hafa í áburðarversluninni, þá vil jeg spyrja: Er þá ekki líka full ástæða til að vernda þá er byggja og hið opinbera gegn því, að of mikið sje lagt á þær vörur, sem nauðsynlegar eru til bygginga? — Firmað Nathan & Olsen hefir náð í margumtalað umboð, alveg á sama hátt og Jón Þorláksson og Norðmann hafa náð í umboð, t. d. fyrir sement. Jeg get vel skilið það, að firmanu Nathan & Olsen þyki það æði hart, ef þingið fer að þjóta upp til handa og fóta og hindra þessa verslun þess, enda þótt jeg álíti, að það eigi að gerast, og því fremur má þetta þykja hart að gengið, ef firmanu Jón Þorláksson og Norðmann á að haldast uppi að reka verslun með sement, án nokkurrar íhlutunar frá því opinbera, og vænti jeg svars hæstv. atvrh. (MG) um það, hvort verslun eigi sjer stað milli þess og hins opinbera.
Jeg vil svo að lokum endurtaka fyrirspurnir mínar til hæstv. atvrh. (MG): Getur hann sagt mjer, hvort fyrverandi landsverkfræðingur hafi nokkuð byrjað verslun með byggingarefni meðan hann var landsverkfræðingur? Getur hann sagt mjer, hvort nú undanfarið hefir átt sjer stað verslun milli firmans Jón Þorláksson og Norðmann og ríkissjóðs?
Jeg hefi nú gert hæstv. atvrh. sömu skil og hann mjer; hann spurði mig ýmissa spurninga, sem jeg svaraði honum þegar, og nú spyr jeg hann eins og hann spurði mig, og vænti jeg þess, að hann gefi mjer greið svör.