08.05.1926
Efri deild: 70. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 183 í C-deild Alþingistíðinda. (2014)

57. mál, einkasala á tilbúnum áburði

Sigurður Eggerz:

Jeg stend aðeins upp til þess að gera grein fyrir atkvæði mínu.

Jeg hefi altaf verið á móti einkasölu, á hvaða vörutegund sem er, og hefi lýst því svo oft yfir hjer í hv. deild, að óþarfi ætti að vera að endurtaka það enn einu sinni.

Því hefir verið haldið fram, að hjer sjeu alveg sjerstakar ástæður fyrir hendi, en hv. 1. þm. G.-K. (BK) hefir nú lýst yfir því, að firmað Nathan & Olsen muni fúst til þess að ákveða verð á áburðinum í samráði við Búnaðarfjelag Íslands. Jeg hefði getað skilið þessa einkasölukröfu, að hún er komin fram, ef það hefði sýnt sig, að firmað Nathan & Olsen hefði sýnt bændum ósanngirni og áleitni í viðskiftum. Þá hefði málið horft alt öðru vísi við. En hjer liggur ekkert fyrir um það, og jeg lít svo á, að þessi einkasala sje þessi sami barnasjúkdómur, sem altaf hefir þjáð Íhaldsflokkinn og kemur í ljós aftur og aftur. Þó það virtist svo í fyrra, að kveða ætti niður alla einkasölu, sbr. afnám tóbaks- og steinolíuverslunar, sýnist nú sem einkasölufarganið sje að byrja af nýjum krafti og að hæstv. stjórn fylgi því nú sem fastast.

Jeg mun greiða atkvæði á móti þessum barnasjúkdómi, sem altaf er að koma fram.