09.03.1926
Neðri deild: 26. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 200 í C-deild Alþingistíðinda. (2028)

22. mál, skipting Gullbringu- og Kjósarsýslu í tvö kjördæmi

Bernharð Stefánsson:

Háttv. frsm. minni hl. (JBald) lagði þá spurningu fyrir okkur, sem fórum að greiða atkv. um þetta mál, hvort okkur fyndist ekki sanngjarnt, að Hafnfirðingar fengju sjerstakan þingmann. þessari spurningu get jeg fyrir mitt leyti ekki annað en svarað játandi. Mjer finst það sanngirnismál, úr því ekki liggur fyrir gagngerð breyting á kjördæmaskipun landsins. En það er annað, sem ekki er sanngjarnt, ef frv. er samþ. óbreytt, nefnilega það, að Gullbringu- og Kjósarsýsla hefðu þá aðeins einn þingmann eftir.

Jeg minnist á þetta af því, að það stendur hjer nákvæmlega eins á og í mínu kjördæmi. Þar er líka kaupstaður, sem ekki er sjerstakt kjördæmi, og það mælir vitanlega alt það sama með því, að sá kaupstaður fái sjerstakan þingmann eins og Hafnarfjörður. Nú yrðu þessar sýslur, Eyjafjarðarsýsla og Gullbringu- og Kjósarsýsla, með stærri og fjölmennari tvímenningskjördæmum, þó að kaupstaðirnir yrðu skildir frá. Jeg sje ekki, að það sje sanngjarnt, samanborið við ýms önnur kjördæmi, að þegar Hafnarfjörður er skilinn frá, kjósi Gullbringu- og Kjósarsýsla aðeins einn þingmann, en t. d. Rangárvallasýsla tvo. Einu leiðina út úr þessu, til þess að koma fram rjettlæti, álít jeg vera það, að þessir 2 kaupstaðir, Hafnarfjörður og Siglufjörður, fái hvor sinn þingmann. Og til þess sje jeg ekki aðra leið en þá, að fjölga þingmönnum um tvo. En þá leið, að gerbreyta allri kjördæmaskipun landsins, ætla jeg ekki að ræða um nú. Það er stórt mál, og sú skipun verður ekki gerð fyr en eftir mjög mikinn undirbúning.

Ef hv. flm. (JBald) hefði flutt málið á þeim grundvelli að gera Hafnarfjörð að sjerstöku kjördæmi, án þess að taka með því annan þingmanninn af Gullbringu- og Kjósarsýslu, þá hefði jeg hiklaust rjett honum hönd, og vona jeg, að hann hefði þá jafnframt gengið að því, að Siglufjörður yrði sama rjettar aðnjótandi. Jeg skal að vísu játa það, að þingstarfanna vegna mun engin þörf vera á fjölgun þingmanna. En eins var það, þegar þingmönnum var fjölgað fyrir Reykjavík. Og það var þó ekki gert með því að taka neina menn frá öðrum kjördæmum. En til þess að Hafnfirðingar og Siglfirðingar fái sama rjett og íbúar annara kaupstaða, sje jeg ekki annað betra ráð en að fjölga þingmönnum um tvo.

Jeg vildi mælast til, að hv. flm. (JBald) óskaði þess, að málið væri tekið út af dagskrá, og að hann athugi þá leið, sem jeg hefi bent á.