01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 793 í B-deild Alþingistíðinda. (203)
1. mál, fjárlög 1927
Ingibjörg H. Bjarnason:
Jeg ætla að svara með örfáum orðum þeim athugasemdum, sem fram hafa komið gegn brtt. hv. 3. landsk. (JJ) og mín. Hv. þm. Snæf. (HSteins) fann ástæðu til að fara um hana mjög hörðum orðum. Hann notaði orð eins og fálm út í loftið, fljótfærni, fáviska o. s. frv. Við 2. umr. talaði jeg fyrir þessari brtt. og gat þess þá, að jeg teldi nauðsynlegt, að þessi umræddi styrkur yrði veittur Skúla Guðjónssyni, til þess að hann gæti haldið áfram bætiefnarannsóknum sínum erlendis. Þá mintist jeg á fjöruskjögur, og að því loknu benti jeg á, að Skúli Guðjónsson hefði einnig lagt fyrir sig heilbrigðismál. Ekkert af þessu mintist hv. þm. Snæf. á. og virðist hv. þm. því hafa lokað hlustunum fyrir aðalatriðunum í till. þeirri, sem hjer um ræðir, og mætti því vísa einhverju af „fálminu“ heim til föðurhúsanna. Þó að jeg sje ekki læknir og hafi ekki þá sjerþekkingu til brunns að bera, sem geti sannfært hv. þm. Snæf., vil jeg taka það fram, að það er ekki fálm út í loftið, að við hv. 3. landsk. berum fram þessa tillögu. Við vissum vel, hvað við vorum að fara fram á. Hjer er um tvent að ræða, að Skúli Guðjónsson geti haldið áfram rannsóknum sínum í Danmörku, því að hjer eru sem stendur engin tök á að fást við slíkar rannsóknir, og að hann geti að því búnu horfið heim og helgað krafta sína heilbrigðismálunum. Hv. þm. Snæf. sagði, að það væri alveg útilokað, að við gætum fengið bætiefnarannsóknir á okkar fæðutegundum, ef ætti að fara að káka með þetta hjer heima. Þetta nær engri átt. Í fyrsta lagi höfum við aldrei haldið því fram, að þessar rannsóknir ættu að fara fram hjer heima, og í öðru lagi hygg jeg ekki, að búið sje að senda út mikið af þeim fæðutegundum sem á að rannsaka. Þetta vildi jeg biðja hv. deildarmenn að athuga, og þá einkum hv. þm. Snæf. Og enda þótt hann tilfæri að Thoroddsen. Claessen og Þórður Sveinsson sjeu á sinni skoðun, þá sannfærir það mig ekki um, að einmitt á þessu sviði þurfi ekki að gera meira en gert hefir verið hingað til, og síst er vanþörf á að miðla almenningi þekkingu á heilbrigðismálum og hollustuháttum.