10.03.1926
Efri deild: 24. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 222 í C-deild Alþingistíðinda. (2052)

59. mál, gróðaskattur

Fjármálaráðherra (JÞ):

Út af þessu frv., sem hjer liggur fyrir á þskj. 101, um gróðaskatt, skal jeg taka það fram, að jeg tel það alls ekki tímabært nú, að ætla að auka með nýjum skattaálögum tekjur ríkissjóðs. Þegar af þeirri ástæðu er jeg á móti þessu frv. Og þar sem sú ástæða ein er nógu gild, þá finn jeg ekki ástæðu til þess að gera grein fyrir því, sem jeg kann að hafa á móti frv. í einstökum atriðum, ef á annað borð gæti verið um það að ræða að lögleiða nýja skatta. En það álít jeg, að ekki geti legið fyrir eins og nú er ástatt, og það hygg jeg líka, að hv. þdm. sje ljóst. Sje jeg því ekki ástæðu til þess að orðlengja frekar um frv. þetta.