10.05.1926
Efri deild: 71. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 252 í C-deild Alþingistíðinda. (2061)
59. mál, gróðaskattur
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Jeg býst við því, úr því að áliðið er dags, þá óski menn helst, að umr. verði ekki lengdar mikið. Jeg ætla því í stuttu máli að drepa á fáein atriði í síðustu ræðu hv. frsm. meiri hl. (JJós). Hann virtist ekki taka það sem oflof um frv., að það væri djúptækt ráð til þess að hjálpa sveitunum. Það er nú svo, að fyrir breyttar kringumstæður vill fólk ekki sætta sig við það að eyða aldri sínum sem vinnufólk. Það leitar því til sjávarins, þar sem það getur lifað fjölskyldulífi. Það er breyting á sálarlífi fólksins, sem veldur því, að ekki er hægt að fá það til að vinna í sveitunum eins og áður, enda þótt lífið í kaupstöðunum sje verra að mörgu leyti. Eina ráðið, sem dugir við þessu, er að fjölga heimilum í sveitum, en þeim getur ekki fjölgað nema með hjálp. Sú er reynslan alstaðar annarsstaðar, að það verður að hjálpa mönnum til að eignast eigið heimili í sveit, ef um nýbýli er að ræða. Og hjer er ekki farið fram á annað en að hafa sama ráðið, er aðrir hafa notað, að fjölga býlum. Jeg hefi flutt þessa hugmynd hingað til lands frá útlöndum og lagað hana eftir okkar staðháttum.
Þá var hv. frsm. meiri hl. (JJós) eitthvað að tala um það, að jeg væri ekki trúr Framsóknarflokknum. En þegar jeg bað hann um nánari skýrslu, þá gat hann ekki annað en endurtekið þetta sama, alveg eins og heimskur krakki. En út af þessum margendurteknu fullyrðingum sumra íhaldsmanna, að jeg vilji byltingu í landinu, vil jeg gera hv. þm. (JJós) greiða, með því að benda honum á, hvernig fór fyrir fjelaga hans, hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ), sem varð sjer til skammar nyrðra, á Sveinstaðafundinum í sumar, þegar hann fór að vaða elginn um erlenda pólitík, sem hann bar ekkert skyn á, í því skyni að sanna byltingahug framsóknarmanna. Verð jeg nú að efna það, sem jeg hjet hv. þm. Vestm. (JJós), að lýsa hann ósannindamann að því, að jeg hafi í nokkru fylgt kommúnistastefnu.
Þetta, sem hjer liggur fyrir, að fjölga sveitabýlunum, er einmitt sterkasta móteitrið gegn öllum byltingahug. Þeir, sem mest vinna að byltingu hjer á landi, eru þeir, sem taka með ósanngirni í rjettmætar kröfur verkamanna, eins og t. d. hv. þm. Vestm. (JJós), enda rekur þar hver verkstöðvunin aðra í vetur.
Hv. þm. (JJós) þótti það nokkuð hart, að jeg sagðist ekki hafa orðið var við eina einustu lífvænlega hugmynd í nokkru stórmáli hjá hinum íhaldssömu fjelögum hans. En það er svo um annan nefndar- og flokksbróður hans, að hann hefir verið á móti þrem stærstu málum, sem til umræðu hafa verið á síðustu árum. Hann barðist á móti ritsímanum, sem allir viðurkenna nú, að hefir orðið til hins mesta gagns hjer á landi; hann hefir hamast móti járnbraut, sem er þó áreiðanlega lífvænleg hugmynd; nú síðast hefir hann varið ekki óverulegum tíma til að vinna á móti samvinnufjelagsskapnum í landinu, sem er ein hin lífvænlegasta stefna í landinu. Hann veit þó, að íhaldsstefnan er hvergi hið skapandi afl, heldur veldur alstaðar kyrstöðu. Hin „órólega þrá“ þessara manna er í því fólgin að leggja fram krafta sína til að auðga sjálfa sig á kostnað annara.
Þá talaði hv. þm. (JJós) um verkföll, og hjelt, að jeg hefði miklar mætur á þeim. En jeg get lýst yfir því, að jeg hefi aldrei verið í nokkurri trúnaðarstöðu fyrir verkamenn, hvorki hjer á landi nje erlendis. Háttv. þm. Snæf. (HSteins) er eini verkamannaforinginn í þessari deild, en samt hafa íhaldsmenn látið sjer sæma að kjósa hann forseta í deildinni. Hv. þm. Vestm. (JJós) er víst að tala um gamlar íhaldsslefsögur í sambandi við verkfallið í Reykjavík 1916. Hann var nú ekki betur að sjer en svo, að hann færði það til um tvö ár. En jeg átti ekki meiri þátt í þessu verkfalli en hv. þm. Vestm. (JJós), því að hvorugur okkar mun hafa vitað um það fyr en það var skollið á. Því eru allar dylgjur um, að jeg hafi átt þátt í undirbúningi þess verkfalls, hrein ósannindi. En hitt er kunnugt, að jeg áleit, að verkamenn væru ranglæti beittir í þeirri deilu, er ekki átti að gjalda þeim fult verð fyrir þá lifur, sem þeir þó áttu samkvæmt samningum. En þeim, sem vildu svíkja verkamenn, hafa eflaust líkað málalokin. Þegar vinnumaður í sveit hefir á fóðri hjá bóndanum, hefi jeg aldrei heyrt, að bóndi færi fram á að mega versla með kindur vinnumanns og gjalda það verð fyrir, er honum sjálfum sýndist. En það var það, sem vinnuveitendur fóru fram á við verkamenn 1916. Hv. þm. Vestm. (JJós) hefir að líkindum verið með því að svíkja verkamenn, en jeg ekki. Sá er munurinn á stefnu okkar gagnvart verkamönnum.
Hv. þm. var reiður út af því, að jeg hefði nefnt sjávarútveginn spekúlations fyrirtæki, en jeg hefi ekki heyrt betur en að hann sjálfur væri að tala um, hve óttaleg áhætta fylgdi honum.
Þá vildi háttv. þm, (JJós) reyna að verja, að gróðaskattur væri lagður á í Englandi, þótt hann væri ekki hjer. Sagði hann, að bæði væri auðurinn þar meiri og hvíldi auk þess á gömlum grundvelli. Zöllner, danski kaupmaðurinn í New-Castle, sagði mjer fyrir nokkru, að hann yrði að borga 80% af tekjum sínum í allskonar skatta. Þetta leggja Englendingar á sig til að lagfæra fjárhaginn eftir styrjöldina. Háttv. þm. veit eflaust, að nú er aðallinn í Englandi að selja jarðeignir sínar, sakir þess að hann hefir ekki efni á að greiða þá skatta, sem þarf til að geta haft þær fyrir óræktuð veiðilönd. Ef farið er út í, hvað gerist í Danmörku, þá er þessi „ránstefna“ einnig áberandi þar. Hinir gömlu stórgóssaeigendur neyðast til að selja jarðir sínar, svo að þær geti komið þjóðinni allri að betri notum, með því að skifta þeim í smábýli.
Hv. þm. (JJós) talaði um, að taka ætti síðasta eyririnn. En gróðaskattur kemur ekki nema um gróða sje að ræða, og segi jeg það nú í 20. sinn. Vona jeg, að hv. þm. (JJós) hætti því að japla á þeirri firru.
Hv. þm. Vestm. (JJós) vildi gera samanburð á mjer og þeim manni, sem mest hefir barist fyrir nýbýla-fjölgun í Englandi. Jeg vil nú ekki fara að jafna mjer við slíkan mann, en jeg held þó, að annað eins nafn og Lloyd George vegi fyllilega upp á móti þeim staðhæfingum, að nýbýlamálið sje vitleysa. Ísland er að vísu annað en England, en það, sem er svo viturlegt í Englandi, getur ekki verið nein dómadagsvitleysa hjer.
Þá talaði hv. þm. (JJós) um, að menn þektu hina órólegu þrá athafnamannanna. Það eru víst þeir menn, sem geta fengið að láni fje annara, velta sjer síðan í því og fara flestir á hausinn, þótt einum og einum takist að safna til sín seðlunum í bili. En það er til annað nafn á þessari „órólegu þrá“, og það er ágirnd. Hún hefir altaf verið til, og er óþarfi að „idealisera“ hana með öðrum nöfnum, þótt hún komi fram í smábáta og mótorbáta-útgerð, eða jafnvel þótt þessir menn geti eignast togara. Það er rjett, að hún hefir átt þátt í að ummynda jörðina, og þótt þessa menn langi mikið til að græða, verða þeir þó að borga nokkra skatta. Mjer dettur í hug út af þessum mönnum með hina „órólegu þrá“, að jeg sá einu sinni mynd af norskum stórgróðamanni, sem er dáinn fyrir 30–40 árum. þegar hann lá banaleguna, ljet hann sækja dall með spesíum og setja við rúmstokkinn hjá sjer. Hrærði hann síðan í þessu með báðum höndum fram í andlátið. Svo vænt þótti honum um þetta takmark lífs síns. En jeg held, að frá þjóðfjelagslegu sjónarmiði sjeu peningarnir tæki, en ekki takmark. En það virðist svo með þessar órólegu gróðasálir, sem þær eigi afarörðugt með að láta frá sjer fara nokkurn skilding, sem þær hafa á annað borð klófest. Jeg vil því benda hv. þm. Vestm. (JJós) á Zöllner gamla til fyrirmyndar. Hann er hinn mesti gróðamaður, en telur þó ekki eftir sjer að borga þá skatta, sem á hann eru lagðir. Jeg býst við, að það færi að fara um hv. þm. Vestm. (JJós), ef hann ætti að leggja eins mikið á sig fyrir þetta land, eins og Zöllner borgaði til Englands.