10.05.1926
Efri deild: 71. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 259 í C-deild Alþingistíðinda. (2063)

59. mál, gróðaskattur

Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):

Jeg skil ekki, hvað það getur verið, sem fer svona ónotalega í taugar hv. þm. Vestm. (JJós). Honum líður líkt og væri hann allur stunginn nálum. En þetta er af því, að hann finnur til, að hann er að berjast við mál, sem hann ræður ekki við. Honum er ljóst, að hans „órólega þrá“ endar með því, að hann finnur með sjálfum sjer, að gróðamennirnir verða eitthvað að borga, geta ekki lengur verið sem beiningarmenn. Hann missir sálarjafnvægið, af því að hann veit, að aðstaða þeirra getur ekki haldist til lengdar og að hún hlýtur jafnan að verða honum til minkunnar.

Hann reynir ekki að verja fjandskap hv. 1. þm. G.-K. (BK) gegn símanum. Jeg býst ekki við, að það hafi verið fjarska frjósamt sumt, er þá var mælt og lesa má í þingtíðindunum. T. d. að símastaurarnir mundu fara með landið á hausinn.

Eða járnbrautin. Ætli formaður íhaldsflokksins, hæstv. fjrh. (JÞ) telji ákaflega mikla frjósemi baráttuna til að eyðileggja það mál. (JJós: Þetta er níð). Er það níð að flytja rök? Bitur vitundin um hið heimska starf íhaldsins svona á háttv. þm.?

Þá át hv. þm. niður í sig dylgjurnar um verkföllin. Um svikin er það að segja, að jeg benti aðeins á, hvort ætti að neyða hásetana til þess að selja sína lifur fyrir minna verð en þeir geta fengið fyrir hana. þá spurði háttv. þm., hvort hann hefði svikið nokkurn verkamanna sinna. Það væri reynandi fyrir hann að fara í mál. (JJós: Er það siður í Reykjavík að fara í meiðyrðamál?) Hæstv. fjrh. (JÞ) ætlaði fyrir skemstu að fara í mál við þingskrifara. En það er rjett að geta þess, að lögreglustjóri lætur bera sjer skammir á brýn, hv. þm. Seyðf. (JóhJóh) liggur undir þungum ákærum, svo og forsrh., einn er stimplaður landráðamaður, en enginn þeirra fer í mál. En hv. þm. ætti að fara í mál. (JJós: Hvað segir 3. landsk.? Hversvegna fer hann ekki í mál?). Jeg fer ekki í mál við landráðamenn. Býst við að þeir hafi nóg á sinni könnu fyrir því, enda hefir landstjórn og þingstjórn fordæmt málaferlaleiðina, nema fyrir hæstv. fjrh. (JÞ) gagnvart skrifurum þingsins. (Forseti: Eftir ein mínúta). Já, jeg ætla líka að nota hana vel. Hv. þm. Vestm. (JJós) mintist á það, sem Morgunblaðið sagði um mig í vetur og tæpti á því, að árásir væru gerðar á mig. Hann á líklega við, að Morgunblaðið, sem annars er nú ekki neitt sjerlega siðgott blað, stimplaði hv. þm. Vestm. og meiri hl. hv. deildar svo sem ekki eigandi sinn líka í nokkru siðuðu landi. Undir dómi þessa blaðs og undir dómi allra heiðarlegra manna í landinu mun hann liggja til efsta dags.