12.04.1926
Efri deild: 48. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 265 í C-deild Alþingistíðinda. (2069)

97. mál, kvennaskólinn í Reykjavík

Forsætisráðherra (JM):

Hv. 3. landsk. (JJ) vill nú átelja það, að frv. þetta sje of seint fram komið. Jeg tek ekki á móti neinum átölum fyrir stjórnarinnar hönd í því efni, því að það er alstaðar í þingræðislöndum og hefir verið venja hjer líka, að stjórn megi átölulaust bera fram ný frv. á hvaða tíma þings sem er, jafnvel á allra síðustu stundu.

Jeg skal ekki að þessu sinni orðlengja um málið. Hv. frsm. meiri hl. mentam. (IHB) hefir tekið fram alt það, er segja þarf í bili, enda var málið og fullvel rannsakað og athugað í fyrra í þessari hv. deild af nálega sömu hv. þdm. og nú eiga sæti í þessari hv. deild, og um þá, sem nýir eru hjer, veit jeg, að þeir hafa þegar kynt sjer málið, svo að óþarfi er að vísa málinu að nýju til nefndar.

Jeg vil geta þess, að það er rangt hjá hv. 3. landsk. (JJ), að þótt þetta frv. næði fram að ganga, væri skapað með því hættulegt fordæmi í kenslumálunum. Ef hv. þm. (JJ) hefði rjett fyrir sjer, þá er þetta fordæmi, er hann talar um, skapað fyrir löngu. Vil jeg þar benda á, að ekki væri Eiðaskólinn síður slíkt fordæmi, nema fremur sje.

Hjer er eingöngu verið að ræða um sjerskóla.

Það er alveg rjett hjá hv. þm., að jeg var á móti því í fyrra, að Blönduósskólanum væri blandað inn í frv. Jeg hugði, að það mundi spilla fyrir því, en áleit aftur á móti, að rjettara væri, að hann kæmi þá fram í sjerstöku frv. Jeg hefi nú athugað þetta atriði betur og komist að þeirri niðurstöðu, að rjett væri að hafa báða skólana í sama frv.

Jeg greiddi atkvæði gegn brtt. um Blönduósskólann í fyrra, einkum vegna þess, að jeg taldi hann aðallega sýslu- eða hjeraðsskóla. Nú hafa komið nánari skýrslur um starfsemi skólans, og sýnir það sig, að þangað sækja til náms stúlkur alstaðar af landinu, ekki frekar frá Húnavatnssýslu en annarsstaðar að.

Þá fór háttv. þm. að tala um unglingaskólana. En þeir eru engir sjerskólar, heldur almennir skólar, bæði fyrir konur og karla.