23.04.1926
Efri deild: 57. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (2088)
97. mál, kvennaskólinn í Reykjavík
Frsm. minni hl. (Jónas Jónsson):
Hæstv. forsrh. (JM), sem hefir borið fram þetta frv., hefir nú flutt langa ræðu fyrir málinu, en hefir nú ekki ástæður til að vera við, og er það bagalegt, því að ýmislegt þarf jeg að hrekja, af því sem hann. sagði.
Jeg hjelt því fram, að eigi væri sanngjarnt að bera þetta fram aftur núna, þar sem það var felt hjer í þinginu í fyrra. Það má nú heita, að hæstv. stjórn hafi viðurkent þetta, því að hún sá sjer eigi fært að bera fram frv. með öðru móti en því, að snúast gersamlega í einu höfuðatriði, sem sje að taka upp skóla, sem bæði hún og hv. 4. landsk. (IHB) voru hamröm á móti í fyrra. Þau eru að reyna að afsaka þennan snúning, en það er vitanlega alveg ómögulegt. Enda er sannleikurinn sá, að Blönduósskólinn á aðeins að vera flotholt til að fleyta kvennaskólanum í Reykjavík gegnum þingið. Blönduósskólinn er alveg sá sami og í fyrra: á sama stað, það sama kent, og sama stjórn á skólanum. (IHB: Aukin reynsla!) Já, aukin reynsla í einum snúning hjá hv. íhaldsþm. og engu öðru. Bæði hnattstaða og öll önnur aðstaða skólans er sú sama þann dag í dag, sem hún var í fyrra.
Það gladdi mig að heyra, að hæstv. forsrh. (JM) játaði, þó aðeins óbeinlínis, að af þessu hlyti að leiða þær umbætur, sem jeg hefi stungið upp á í skólamálum. það sama er þegar fram komið um Flensborgarskólann. Hann þykist alllengi hafa fengið styrk úr ríkissjóði og heimtar nú að vera tekinn alveg. Það kemur að því fyr en varir, að allir einkaskólar koma og segja: Við erum vanræktir af aðstandendum okkar. Ríkissjóður verður að taka okkur að sjer, eins og hann tók Blönduósskólann og kvennaskólann í Reykjavík. Hæstv. ráðh. þykist ekki sjá neinn mun á þessum tveim skólum. Mjer virðist, að hann taki sjer þar til fyrirmyndar hinn fræga sjóliðsforingja Nelson, sem var blindur á öðru auga. Er hann vildi eigi sjá skipanir foringja síns, setti hann kíkinn fyrir blinda augað og sagðist ekkert sjá. Eins fer hæstv. ráðh. (JM), þegar honum kemur betur að sjá ekki, því að í þessu máli hafa einmitt komið fram gögn frá þeim hv. þm., sem þekkja þetta best. Í fyrsta lagði hefir því verið lýst yfir hjer í hv. deild, af forstöðukonu kvennaskólans, háttv. 4. landsk. (IHB), að í kvennaskólanum hjer væri skipulagið þannig, að ekki yrðu mikil vandræði að útskrifa þaðan gagnfræðinga, þ. e. skólinn er einskonar gagnfræðaskóli. Hinsvegar hefir á þessu þingi verið sagt frá því í hv. Nd., af þeim þm., sem þessu máli er kunnugastur, að Blönduósskóli sje ótvíræður húsmæðraskóli. Nú er gagnfræðamentun almenn mentun og þess eðlis, að hún getur verið báðum kynjum sameiginleg, og er því sannað, að hæstv. forsrh. hefir alrangt fyrir sjer í þessu máli.
Hæstv. ráðh. (JM) segir, að það muni ekki þurfa að skapa fordæmi, þótt þessi skóli, sje tekinn á landið, þar sem þegar sje til einn þessháttar skóli, Eiðaskólinn. Enda þótt þessi skóli sje nú algerlega á ríkissjóði, vil jeg leyfa mjer að benda á, að alt öðruvísi er ástatt um hann. Því að hann átti allverulegar eignir, þegar landið tók hann að sjer. Þær eignir fjekk það á móti, og var hjer því um einskonar kaup að ræða. Auk þess geri jeg ráð fyrir, að hæstv. ráðh. (JM) hafi orðið þess var, að Jón Ófeigsson hefir átt afarörðugt með að koma Eiðaskóla inn í það kerfi, sem hann vill flokka skólana í. Og það stafar einmitt af því, að þessi unglingaskóli er kominn á landssjóð, þótt hann sje almennur alþýðuskóli.
Hæstv. ráðh. (JM) talaði um, að skiftingin væri ekki ljós í almennaskóla og sjerskóla, og talaði hann í því sambandi um verslunarskólann. Sagði hann, að engin krafa hefði fram komið um, að hann væri tekinn á landið. Það heitir ekki! Ef trúa má nokkru orði, sem Morgunblaðið segir, þá er aldrei haldinn hjer kaupmannafundur, svo að ekki komi fram kröfur um það. En þetta hefir aðeins strandað á því, að í framkvæmdinni þurfti ríkið þá einnig að taka að sjer annan skóla, sem kaupmönnum og íhaldsmönnum er heldur í nöp við.
Þá lítur ekki heldur út fyrir, að hæstv. forsrh. (JM) sje of vel að sjer um skifting kostnaðarins við barnaskóla í nágrannalöndum vorum, Noregi og Danmörku. Því að þar leggja sveitarfjelögin og landið hvert fram sinn skerf. Það vakti t. d. mikið umtal í fyrra, að kenslumálaráðherra Dana, sem er kvenmaður, taldi barnaskólana fyrst, en háskólann síðast í fjárlögunum. Af því má sjá, að styrkur er veittur til barnaskóla þar í landi. Það er alveg rjett, að þetta var svo, sem hæstv. ráðh. (JM) talaði um, þegar hann var ungur. Þá var barnafræðslan sumpart einkafyrirtæki, sumpart á höndum sveitarfjelaganna. En síðan hefir mörgu farið fram.
Hæstv. ráðh. (JM) sagði, að búnaðarskólarnir væru að sumu leyti almennir skólar. Þetta er að sumu leyti rjett; sú sjermentun, sem þeir veita, er eigi nógu mikil. En þó er það svo, að enginn maður, sem er viss um, að hann verði kaupstaðarbúi, fer á þá skóla. Því er rangt, að Hóla- og Hvanneyrarskólar sjeu sambærilegir við kvennaskólann. Því að eins og þegar er sannað, er kvennaskólinn þannig, að vel gæti helmingur nemenda hans verið karlmenn. Þeir þyrftu aðeins að hafa smíðar í þeim tímum, sem konur sauma og baldíra.
Þá var það og rangt, sem hæstv. ráðh. sagði um Eiðaskólann. Lögunum um hann frá 1917 hefir enn verið fylgt, og engar líkur eru til, að þeim verði breytt í nánustu framtíð. Annars virðist hæstv. ráðh. (JM) þarna einna helst vera að ásaka sjálfan sig, því að hann hefir verið kenslumálaráðh. mestan tímann síðan þau lög gengu í gildi.
Þegar hæstv. ráðh. (JM) talar um Blönduósskólann sem samskonar skóla og skólann hjer, þá kemur fram í því tortrygni við hv. þm. V.-Húnv. (ÞórJ), sem virðist illa verðskulduð úr þeirri átt. En sá háttv. þm. (ÞórJ) hefir lýst ótvírætt yfir því, að Blönduósskóli væri húsmæðraskóli, en eigi gagnfræðaskóli.
Þá reyndi hæstv. forsrh. (JM) að verja það nýmæli, að skólastjórarnir við þessa skóla skyldu hafa frítt fæði. Jeg skal viðurkenna, að hjer er um merka nýung að ræða, en bæði hæstv. ráðh. og hv. 4. landsk. (IHB) hafa viljað reyna að komast framhjá fordæminu, sem þetta hlýtur að skapa. Þau hafa viljað láta í veðri vaka, að þetta væri gert vegna nemendanna. Skal jeg játa, að rjett er að kenna nemdunum mannasiði í sem flestum greinum, en jeg fæ ekki sjeð, að meiri ástæða sje til þess í kvennaskólum en í öðrum skólum, t. d. að Eiðum og öllum hinum hjeraðsskólunum. Flm. þessa hafa því eigi dregið af þessu rjettar afleiðingar, því að eftir sem áður eiga skólastjórar að borða sjer og nemendur sjer í öllum öðrum skólum, Nú er það alls eigi óhugsandi, að forstöðukonurnar við þessa skóla giftist. Eiga þá menn þeirra einnig að hafa frítt fæði? Þetta er spurnig, sem þarf að fá svarað. Annaðhvort verður forstöðukonan að koma í matinn með manninn sinn eða þá að hætta að borða með nemendum. Mjer skilst, að hvorttveggja muni vera lagabrot. En um aðra kosti er ekki að gera. Því þyrfti meiri hl. mentmn. að undirbúa brtt. um þetta fyrir næstu umræðu málsins. Væri gott, að hún væri ekki eins staðbundin og aðaltillagan, sem á við hv. 4. landsk.
Hæstv. forsrh. sagði, að Vesturland hefði engan ríkisskóla: Víst er það satt, að eins og nú er ástatt hefir það engan, en eftir viðbótartill. mínum á það að fá tvo, að Núpi og Staðarfelli. Jeg vona, að hæstv. ráðh. (JM) muni þessi ummæli sín, þegar til atkvgr. kemur. Sömuleiðis vona jeg, að hæstv. forseti þessarar hv. deildar (HSteins) minnist þess, að hann er fulltrúi fyrir kjördæmi í Vestfirðingafjórðungi.
Hæstv. ráðh. (JM) sagði, að það gæti orðið óþægilegt fyrir hjeraðsskólana, ef barnafræðslan yrði lögð niður og menn kæmu ólæsir í skólana. Mjer fyndist, að hæstv. ráðh. ætti að athuga sitt frv. um barnafræðslu, sem hann hefir lagt fyrir þingið, þar sem það er heimtað, að börnin komi læs í skóla 10 ára. Ef hann les það frv., fer sú röksemd að verða lítils virði.
Hæstv. forsrh. (JM) sagði, að ekki væri rjett að fara að samþykkja nýja ríkisskóla fyr en norðlenski skólinn væri kominn, þetta er alveg rjett. Í þessari setningu liggja rjettmæt mótmæli gegn hans frv. nú. Því að svo virðist sem honum sje nær að halda áfram að fylla út sinn eigin ramma frá 1917 heldur en að fara að trana fram nýjum skóla.
Hæstv. ráðh. (JM) talaði um, að áhuginn vildi minka fyrir ýmsum fyrirtækjum, þegar fram í sækti, þótt hann væri mikill í fyrstu. þetta hefir nú máske virst svo stundum, eins og t. d. með Vífilsstaði. En þar kemur nú það til greina, að landið hafði altaf alla stjórn á rekstri hælisins, og getur e. t. v. orkað tvímælis, hve vel það hefir verið rekið. Og jeg get bent hæstv. ráðh. á það, að víða erlendis leggja ýmsir íhaldsmenn fram allháar fjárhæðir í skóla og spítala, því að þeir láta oft talsvert af hendi rakna af frjálsum vilja, þótt þeir tími ekki að borga skatta.
Það kom fram hjá hv. 4. landsk. (IHB), að styrkurinn frá bænum til kvennaskólans væri lítill, og ekki virðist hún mjög glöð yfir síldarstyrknum. Jeg vil benda á, að þar er misrjetti gagnvart Blönduósskólanum, því að hann hefir engan síldarstyrk fengið. Það stafar kannske af því, að sumir stuðningsmenn skólans hafa verið svo duglegir í síldarkaupum og láta hann líklega njóta þess „privat“. En jeg vil vekja eftirtekt á því, að bærinn virðist ekki meta mikils 50 ára starf þessa skóla, sem fyrst og fremst er hjeraðsskóli Reykjavíkur. (IHB: þetta er ekki rjett, sveitastúlkur ganga altaf fyrir). Jeg hugsa, að háttv. skólastjóri kvennaskólans, 4. landsk. (IHB), þurfi ekki annað en að líta í skólaskýrsluna til að sjá, að mestur hluti skólameyja er úr Reykjavík. Það virðist svo um kvennaskólann, sem segja megi: „án er ills gengi nema heiman hafi,“ og ekki virðist það neitt „kompliment“ fyrir skólann, að Reykvíkingar vilja ekki styðja hann meira.
En skyldi ekki þessi mikli ákafi að koma skólanum á landið vera af því, að þreytan, sem um var talað, sje farin að gera vart við sig hjá stuðningsmönnum skólans hjer, og því vilji þeir nú sæta lagi að losna frá honum og skilja landinu hann eftir. Grunur minn er sá, að hæstv. forsrh. (JM) og íhaldsmenn hjer í deild hefðu aldrei tekið í mál að styðja að því að gera kvennaskólann að ríkisskóla, ef forstjóri hans, hv. 4. landsk. (IHB), væri ekki eitt af bestu sverðum íhaldsins hjer á þingi við atkvæðagreiðslur. Jeg held, að það sje best að játa það strax, að þetta mál hefði fallið hjer við 1. umr., ef það hefði ekki átt jafn-lítilþægan málsvara hjer í deildinni sem hv. 4. landsk. er. Hv. 4. landsk. kvað það hart að mega ekki skifta um skoðun. Það er ekki vandi minn að skifta um skoðun, þessvegna er jeg hissa, þegar þm. hafa ekki sömu skoðunina nema part úr ári, án þess að koma með nokkra frambærilega skýringu á því, hversvegna þeir hafa skift um skoðun. Um reglugerðarákvæðið er það að segja, að það er bæði óvenjulegt og óheppilegt, og hæstv. forsrh. hefir ekki getað bent á nema veikt fordæmi, með skólann á Eiðum. Það er hættulegt að fela mismunandi stjórnum vald til þess að breyta með reglugerðum. Hugsum okkur t. d., að hv. 1. landsk. (SE) yrði ráðherra í 4. sinn, og það er ekki óhugsandi, að maður, sem 3 sinnum hefir verið ráðherra, geti orðið það einu sinni enn, og hann fyndi upp á því að breyta alveg reglugerð kvennaskólans, feldi niður gagnfræðanámið og tæki upp grautargerð og fl. þ. h., þá mundi hv. 4. landsk. (IHB), beisklega iðra að hafa ekki gengið betur frá upptalningu námsgreinanna. — þá eru tvær setningar, sem jeg skrifaði eftir hv. 4. landsk. (IHB). Hann sagði, að þá fyrst væri skóli kominn í örugga höfn, er hann væri kominn á ríkissjóðinn, og síðari setningin var: „Jeg hefi aldrei dýft hendi í ríkissjóðinn.“ Hið fyrra atriði, að skólum sje ekki borgið fyr en þeir eru komnir á ríkissjóðinn, er algerlega íslensk reynsla. Hinir ágætu háskólar í Englandi og víðar um heim fá engan styrk frá ríkinu. Það er undarlegt að heyra þá menn tala um öryggi í ríkishöfninni, sem voru með í því að afnema tóbakseinkasöluna, sem var þó ríkisfyrirtæki. Það er ekki fullkomið samræmi í því, að þegar stjórnarflokksmenn sitja sjálfir í launuðum stöðum í þessum stofnunum, þá dreymir þá sæludrauma um hæga púða, sem ríkissjóðsfyrirtækin velta sjer á.
Hvað hinni setningunni viðkemur, að þessi hv. þm. hafi aldrei dýft hendi sinni í ríkissjóðinn, þá geri jeg ráð fyrir því, að það sje rjett. En því má ekki Adam vera lengur í Paradís, því vill þm. ekki geta barið sjer á brjóst eftir svo sem 10 ár og segja með sama rjetti: „Jeg hefi aldrei dýft hendi minni í ríkissjóð.“ En hjer er hann að komast inn á þá hættulegu braut að eyðileggja þessa fögru stefnu.
Hæstv. forsrh. (JM) sagði, að próf. Eiríkur Briem hafi verið með í því að hrinda þessu máli af stað. Jeg held, að það sje að minsta kosti óhætt að bera það af honum, að hann hafi barist fyrir því, að koma kvennaskólanum á Blönduósi á landið. Jeg held, að það sje hjer eins og segir í Alþingistíðindum Kaplaskjóls, að það sjeu þeir, sem drápu málið í fyrra, sem berjast mest fyrir því að koma því fram nú.