01.05.1926
Efri deild: 64. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 813 í B-deild Alþingistíðinda. (209)

1. mál, fjárlög 1927

Sigurður Eggerz:

Jeg vildi leyfa mjer að leiðrjetta það, sem hv. frsm. (EP) sagði í sambandi við Nínu Sæmundsson. Hann gaf í skyn, að jeg hefði talið listaverk hennar keypt í gustukaskyni. Jeg hjelt einmitt fram því gagnstæða. Jeg sagði, að Nína Sæmundsson hefði kastað ljóma yfir þjóð sína með þessu ágæta listaverki. Jeg benti á hana til fyrirmyndar því, að Páli Ísólfssyni yrði veitttur styrkur. Ef hv. frsm. hefir lesið ummæli þau, sem Páll hefir fengið í síðustu utanför sinni, þá veit hann, að mjög fast er að orði kveðið um list hans og hæfileika. Það er óhugsandi fyrir hv. þm. að friða samvisku sína með því, að jeg hafi komist í mótsögn. Það er öllum kunnugt, að það tekur nokkurn tíma að afla sjer fjár, þótt viðurkenning sje fengin, og ekki síst hjer á Íslandi.

Menn mega ekki halda, að erlendir listdómarar færu þeim orðum um Pál, sem þeir hafa gert, ef hann hefði ekki sýnt ákveðin meistaratök. Jeg þarf heldur ekki að vitna í neina erlenda dóma. Jeg hefi sjálfur hlustað á Pál, og jeg vildi óska, að hv. frsm. hefði líka hlustað á hann. (EP: Jeg hefi oft hlustað á hann). Hv. frsm. segist hafa hlustað á hann og er samt á móti þessum styrk. Jeg verð að játa, að mjer þykir þetta ákaflega kynlegt. Hv. þm. (EP) hlýtur að vanta mjög tilfinnanlega skilning á listinni. (EP: Páll vex ekki af meðmælum hv. 1. landsk.). Getur verið, en hann vex þó frekar af meðmælum manns, sem ber eitthvert skynbragð á list, heldur en manns, sem komist hefir fyrir flokksfylgi í fjárveitinganefnd.

Jeg skal ekki fara mörgum orðum um styrkinn til Landnáms. En þar kemur einmitt glögt fram munurinn á íhaldi og frjálslyndi. Íhaldið vill setjast á það, sem búið er að skapa, og getur ekki hugsað til þess, að neitt nýtt skjóti upp höfðinu. Jeg hefi sýnt fram á, hve ómetanlega mikla þýðingu nýbýlaræktin gæti haft fyrir kaupstaðina. En þetta má ekki taka til greina, af því að nýbýlaræktin getur ekki orðið að gagni í Rangárvallasýslu. Hjer er það hið gamla og þröngsýna íhald, sem reynir að þvergirða götuna fyrir frjálslyndari hluta þjóðarinnar, sem nú er að ryðja sjer til landa. Það mun ekki takast lengi að halda þessu máli niðri, því öll sannsýni mælir með því, að kaupstaðirnir sjeu studdir til þess að rækta land sitt. Ræktunarstörf kaupstaðarbúa skapa samúð með sveitunum. Hver einasti fulltrúi þjóðarinnar á hinu háa Alþingi verður að muna eftir því, að um fleira verður að hugsa en eitt kjördæmi, sem af tilviljun hefir kosið þingmann á þing — og kýs hann kannske aldrei aftur.