27.02.1926
Neðri deild: 16. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 369 í C-deild Alþingistíðinda. (2112)
23. mál, fátækralög
Frsm. meiri hl. (Pjetur Þórðarson):
Greinargerð meiri hl. í þessu mál er svo ítarleg, að það þarf í raun og veru engu við hana að bæta. Þetta smámál er eitt af þeim, sem hæstv. stjórn á að athuga á næstunni, það er margt fleira, sem er eins þýðingarmikið eða þýðingarmeira en þetta atriði í lögum þessum, sem jeg fyrir mitt leyti gæti fallist á, að yrði breytt, en hinsvegar er varla ástæða til að taka þetta út úr sjerstaklega, einkum þegar tillit er tekið til þess, hvernig frv. er orðað.
Þetta er svo einfalt og fremur þýðingarlítið mál, að meiri hl. komst að þeirri niðurstöðu, að rjettast væri að láta bíða annara breytinga á þessum lögum og þangað til stjórnin hefir tekið þessi mál til athugunar. Vera má, að aðstaða okkar hefði orðið eitthvað á annan veg, ef málið væri þýðingarmikið. En í raun og sannleika munu vera margar heilar sýslur á landinu, þar sem enginn öðlaðist eða hefði gagn af þessum rjettindum, þótt veitt yrðu, þörfin er því langt frá að vera aðkallandi, þar sem rjettarbót þessi nær til svo fárra einstaklinga.
Jeg finn svo ekki ástæðu til að útskýra þetta frekar, þar sem aðal-niðurstaða meiri hl. er sú, að afgreiða málið með rökst. dagskrá