27.02.1926
Neðri deild: 16. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 383 í C-deild Alþingistíðinda. (2126)

23. mál, fátækralög

Atvinnumálaráðherra (MG):

Jeg skal lýsa því yfir, að þótt þessi rökstudda dagskrá verði samþ., þá mun jeg ekki skilja það svo, að þar með sje sagt, að þessi hv. deild vilji ekki hallast að þessu ákvæði, því að það getur verið önnur ástæða til þess, að hv. þdm. greiði atkvæði með dagskránni, sem sje sú, að nú er verið að endurskoða þennan lagabálk, sem þetta ákvæði á heima í.