23.03.1926
Neðri deild: 38. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 389 í C-deild Alþingistíðinda. (2136)
30. mál, vegalög
Klemens Jónsson:
Eins og nál, ber með sjer, gat öll nefndin ekki orðið á einu máli um þetta frv., því að við vorum tveir í nefndinni þeirrar skoðunar, að það væri sanngjarnt, að sú breyting á vegalögunum, sem frv. fer fram á, næði að ganga fram, og töldum því rjett að samþykkja frv.
Jeg skal taka það fram, að það var eiginlega fyrst árið 1894, sem veruleg skipun komst á vegamálin. Þá voru fyrst settar í lög reglur um aðalflutningabrautir út frá helstu kauptúnum landsins. þetta var mikill hagnaður ýmsum hjeruðum, að eiga von á að fá slíkar akbrautir, og Eyjafjarðarbrautin var með þeim allra fyrstu, sem lagðar voru eftir þessum lögum. Þegar tímar liðu fram, fór mönnum að vaxa í augum kostnaður landssjóðs af þessum vegum, og um 1907 voru ný lög sett, sem breyttu fyrirkomulaginu og lögðu viðhald veganna að mestu á sýslusjóðina. þetta var ekki rjett gert; sýslusjóðirnir áttu margir erfitt með að standast þennan kostnað, og sumum var það nær ókleift, á jeg þar sjerstaklega við Árness- og Rangárvallasýslur. Eyjafjarðarsýsla var þá betur fær um þetta. Þegar frá leið, komu hvaðanæva fram kvartanir yfir því, að sýslurnar gætu ekki risið undir þessum kostnaði, enda sýndi og reynslan það, því viðhaldi veganna var mjög áfátt. Þó að gera hefði mátt við vegina á kostnað sýslufjelaganna, kom það fyrir ekki, því þær gátu ekkert greitt fyrir það, því var það, að skorað var á stjórnina að láta semja ný vegalög, og var það gert árið 1924. Jeg var þá ráðherra, er stjórnin lagði frv. fram, og var það samið af eða gert í samráði við vegamálastjóra. Jeg sá mjer ekki fært að ganga í berhögg við tillögur hans í því máli, en þær hnigu allar í þá átt, að meðal annars varð að fella úr þjóðvegatölu tvær akbrautir, sem gerðar voru að sýsluvegum; en það voru Borgarfjarðar og Eyjafjarðarbrautirnar. — Mig tók þetta sjerstaklega sárt, einkum að því er snerti Eyjafjarðarbrautina, sem jeg taldi alls ekki rjettilega farið með, heldur væri hún hliðstæð vegum víða annarsstaðar, sem væru í tölu þjóðavega, svo sem Hvammstangabrautin, Skagafjarðarbrautin og fleiri. Jeg taldi það alls ekki rjett, að Eyjafjarðarbrautin væri ekki talin meðal þjóðvega, og tók það sjerstaklega fram í umræðunum þá í Nd., eftir að ný stjórn hafði tekið við. Jeg tek þetta fram nú, ef einhverjum kynni að þykja kenna ósamræmis hjá mjer í því, að hafa áður verið í þeirri stjórn, sem svifti þennan veg umsjá ríkissjóðs, en nú vilji jeg láta taka hann upp á arma ríkissjóðs, En hjer er ekki verið að fara fram á slíkt. Frv. ræðir aðeins um að taka upp í þjóðvega tölu vegarkaflann frá vegamótum fyrir framan Akureyri að Kristnesi. Þessi vegarspotti, sem farið er fram á að gera að þjóðvegi, held jeg að sje ca. 1/3, eða tæplega þó, af allri Eyjafjarðarbrautinni fram að Saurbæ. Þetta er máske ekki nákvæmlega rjett, en þó munar það aldrei mjög miklu.
Jeg get ekki betur sjeð, en að þessi krafa um veg þennan sje í fullu samræmi við reglur þær, sem farið hefir verið eftir, þegar um önnur hliðstæð heilsuhæli hefir verið að ræða. Það er því ekki nóg að taka upp í þjóðvega tölu aðeins veginn frá akbrautinni heim að heilsuhælinu, brautin þaðan til Akureyrar verður að fylgja með. Háttv. meiri hl. nefndarinnar segir, að umferðin muni ekki aukast að neinu ráði, þegar heilsuhælið er komið upp. En það liggur í augum uppi, að umferðin hlýtur að aukast að miklum mun, því þarna verður altaf sífeldur erill fram og aftur, milli Kristness og Akureyrar, og þessi aukna umferð hlýtur að spilla veginum og baka sýslusjóði aukin útgjöld. Ennfremur verður þetta ljósara af því, að nokkur kafli þessa vegar liggur yfir mýri, og var aldrei í upphafi vel traustur þar; vegurinn sígur og gengur úr sjer af sjálfum sjer. En ef bílaumferðin eykst á þessum kafla vegarins, er enginn vafi á því, að hann gengur fyr úr sjer og þarf tíðari og meiri viðgerðir en ella. Jeg held því, að það sje mjög sanngjarnt að veita þetta, sem frv. fer fram á, enda er hjer aðeins að ræða um 1/3 þess, sem áður hvíldi á ríkissjóði að sjá um, og jeg vænti þessvegna, að hv. deild sýni þessu máli þá sanngirni að samþykkja þetta frv.
Það ber og að líta á það, að Norðlendingar hafa sýnt mikinn áhuga og fórnfýsi í því að komið verði upp þessu heilsuhæli, og þar sem jeg veit, að hið háa Alþingi telur ekki eftir styrk til heilsuhælis Norðurlands, þá mun það heldur ekki telja eftir að styrkja það á þennan hátt, sem hjer er farið fram á, og munar ríkissjóð svo sáralitlu.