23.03.1926
Neðri deild: 38. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 394 í C-deild Alþingistíðinda. (2139)
30. mál, vegalög
Atvinnumálaráðherra (MG):
Jeg játa, að jeg er þessu máli lítið kunnugur, en mér skilst, að hjer sje ekki um mikla upphæð að ræða. Í nál. er gert ráð fyrir, að kostnaður við að leggja þennan vegarkafla muni verða um 10 þús. krónur. Jeg geri ráð fyrir, að ekki sje hægt að komast hjá að leggja þennan veg, og verði þá kostnaðurinn við hann talinn með kostnaði við hælisbygginguna.
Nú tekur ríkið þátt í þeim kostnaði að minsta kosti til helminga, svo að hjer er ekki um stóra upphæð að ræða. Mjer finst sanngjarnt, að ríkissjóður kosti vegalagninguna að hælinu og viðhald þess vegar. En til þess ætti ekki að þurfa lagabreytingu. Sjerstök fjárveiting kæmi að sama gagni. Jeg held, að hv. flm. (BSt) ætti að bíða með þetta frv. þar til sjeð verður, hvort ekki tekst að fá sjerstaka fjárveitingu í fjárlögum í þessu skyni. Mjer skilst, að ríkinu beri að greiða helming þessa kostnaðar eins og annan kostnað við hælisbygginguna.