23.03.1926
Neðri deild: 38. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 395 í C-deild Alþingistíðinda. (2140)

30. mál, vegalög

Frsm. meiri hl. (Jón Auðunn Jónsson):

Jeg vil leyfa mjer að benda hæstv. atvrh. (MG) á, að hann hlýtur að misskilja frv. Í frv. er farið fram á, að vegurinn frá Akureyri að Kristnesi verði tekinn í tölu þjóðvega og að ríkið kosti viðhald hans framvegis, en þetta er 1/3 af Eyjafjarðarbrautinni. Meiri hl. nefndarinnar álítur, að ekki beri að taka þennan veg í tölu þjóðvega, heldur eigi ríkið aðeins að kosta vegarspottann af aðalveginum heim að hælinu. Þetta er einnig álit vegamálastjóra.