15.04.1926
Neðri deild: 54. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 400 í C-deild Alþingistíðinda. (2147)
30. mál, vegalög
Bernharð Stefánsson:
Jeg vil ekki vekja deilur um þetta mál, enda býst jeg ekki við, að það hafi neina þýðingu. En jeg verð að segja það, að mjer kom það mjög á óvart, sem hv. frsm. samgmn. (JAJ) sagði, að nefndin — að því er mjer skildist óskift — legði móti því, að frv. yrði samþykt. Áður hafði þó minni hl. lagt með málinu. Og jeg varð enn meira undrandi, þegar jeg heyrði ástæðuna fyrir þessari afstöðu nefndarinnar, sem sje, að nú er búið að samþ. hjer í hv. deild fjárveitingu til vegar heim að Kristnesi, að ríkið borgi stofnkostnað þess vegar. Mjer finst jeg verði að líta svo á, að hv. deild hafi með þessari samþykt fallist á það, að fyrst og fremst þessi partur af Eyjafjarðarbrautinni og heim að Kristnesi eigi að vera þjóðvegur, úr því að hún samþykkir að borga stofnkostnaðinn við að leggja hann. Jeg þykist nú sjá fyrir um forlög þessa frv. á því, hver umskifti hafa orðið í nefndinni. En þrátt fyrir það hefi jeg ekki geð til þess að fara að taka það aftur, og verður að fara eins og fara vill um það í atkvæðagreiðslunni.
Út af þeim tveimur brtt., sem fyrir liggja við frv., vil jeg segja það, að þó þær kunni að vera sanngjarnar, þá er sjálfsagt víða á landinu eins mikil ástæða til að taka upp nýja þjóðvegi. Og þar sem mitt frv. er borið fram af alveg sjerstakri ástæðu, nefnilega vegna heilsuhælisins, þá álít jeg, að það hefði ekki átt að blanda öðrum vegum þarna inn í. Það hefði þá verið rjettara fyrir þá hv. þm., sem vilja breyta vegalögunum í ýmsum atriðum, að koma með sjerstakt frv. um það. Eins og jeg gat um við 1. umr., þá eru í raun og veru fleiri kröfur, sem jeg hefi fyrir mitt kjördæmi í þessu efni, en jeg hefi þó fallið frá þeim að sinni, af því að jeg vildi ekki blanda öðru inn í frv.
Hv. þm. Ísaf. (SigurjJ) kvað mig hafa haft í hótunum um það, að Eyfirðingar mundu ekki halda við veginum frá Akureyri að Kristnesi, ef þeir ættu sjálfir að sjá um hann, og fór að hæla sjer af því, að hann hefði engar hótanir í frammi fyrir hönd Ísfirðinga. Jeg man ekki eftir, að jeg hafi haft neinar hótanir um þetta, það, sem jeg sagði um þetta atriði, var einungis, að ríkið hefði ekki trygt það á nokkurn hátt, að veginum yrði haldið við, svo að fullnægjandi væri. Jeg sagði ekkert um það, hvað Eyfirðingar mundu gera í þessu efni, en benti aðeins á það, að sýslan hefir enga lagaskyldu til að sjá um veginn. Það stendur öðruvísi á með Eyjafjarðarbrautina en veginn, sem hv. þm. talaði um. Sá vegur er sýsluvegur, en Eyjafjarðarbrautin alls ekki, því þegar vegalögin voru samþykt í hitteðfyrra, þá voru flutningabrautir lagðar niður, sem sjerstakur flokkur vega, og brautin hefir ekki verið tekin upp sem sýsluvegur.
Það þýðir auðvitað ekki að fara um þetta fleiri orðum. En jeg ætla að mælast til þess við hæstv. forseta, að hann láti fram fara nafnakall um frv. sjálft, að lokinni umr., svo að það komi í ljós, hverjir standa stöðugir í fylgi sínu við málið. Þeir voru 17 seinast.