29.03.1926
Efri deild: 40. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 410 í C-deild Alþingistíðinda. (2156)
40. mál, yfirsetukvennalög
Halldór Steinsson:
Jeg get verið hv. nefnd þakklátur fyrir þá alúð, sem hún hefir lagt við að kynna sjer þetta mál, og að hún hefir sýnt lit á að bæta kjör yfirsetukvenna. Jeg er þó ekki allskostar ánægður með brtt. hennar, því að jeg lít svo á, að kjör þessara kvenna megi ekki vera verri en farið er fram á í frv. mínu.
Mjer þykir leitt, að nefndin hefir ekki sjeð sjer fært að taka upp ákvæðin í 2. gr. Öllum þingmönnum ætti að vera ljóst, að þó nú sje heimild fyrir því að veita eftirlaun úr sýslu- og bæjarsjóðum, þá kemur sú heimild að litlum notum. En það má ekki verða regla, að yfirsetukonur fái eftirlaun aðeins í fáum tilfellum og af mjög skornum skamti. Eins og jeg tók fram við 1. umr. taldi jeg heppilegast, að um leið og laun yfirsetukvenna væru bætt, væri þeim gert að skyldu að leggja fje í lífeyrissjóð, og fengju síðan styrk þaðan, að loknu starfi, eins og aðrir embættismenn. Nefndin hefir ekki viljað leggja þetta til, en jeg hygg, að þó það komist ekki fram nú, verði þess ekki langt að biða, að sú tilhögun verði tekin upp.
Brtt. nefndarinnar, um að greiðsla á launum yfirsetukvenna fari eins fram í sveitum og kaupstöðum, finst mjer sanngjörn, og felli mig vel við hana. Yfirleitt gengur frv. með breytingum nefndarinnar verulega í þá átt, að bæta kjör yfirsetukvenna frá því, sem nú er. Maður verður að una því, þótt ekki nái fram að ganga fylstu kröfur við fyrstu sókn, þegar ekki fæst það allra besta, verður að láta sjer nægja það næst besta. Jeg get lýst því yfir fyrir hönd yfirsetukvennanna, að þær muni verða nefndinni þakklátar fyrir tillögur hennar í þessu máli yfirleitt.