07.05.1926
Neðri deild: 73. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 819 í B-deild Alþingistíðinda. (217)

1. mál, fjárlög 1927

Forseti (BSv):

Útbýtt hefir verið brtt. frá hv. 2. þm. Reykv. (JBald) á þskj. 529. Þar sem þær eru of seint fram komnar, þarf að leita afbrigða frá þingsköpum, svo að þær megi koma til umr. og atkv. (KlJ: Ætlar hv. þm. ekki að taka brtt. aftur? — JBald: Ha? Taka till. aftur? Til hvers ætti jeg þá að bera þær fram?). — Mjer virðist rjettmætt, að hv. þm. fái að tala fyrir brtt. sínum, enda getur hann hvort sem er talað um fjárlögin alment, og er eigi víst, að það spari hv. deild nokkurn tíma.