31.03.1926
Efri deild: 42. fundur, 38. löggjafarþing.
Sjá dálk 449 í C-deild Alþingistíðinda. (2173)
40. mál, yfirsetukvennalög
Sigurður Eggerz:
Jeg ætla að minnast örfáum orðum á þetta mál frá einni hlið, sem ekki hefir verið rædd hjer. En það er sú hlið, sem að þjóðfjelaginu snýr. Það skiftir miklu máli fyrir þjóðfjelagið að hafa sem bestar yfirsetukonur og að ekki sjeu mörg umdæmi óskipuð. En eins og jeg drap á við 2. umræðu um þetta mál hjer á dögunum, þá vantar yfirsetukonur í sum umdæmin, og er hreinasta hneyksli, að slíkt skuli geta átt sjer stað. En af hverju stafar þetta? Af því að starfið er svo illa borgað, að það er ómögulegt að fá duglega konu í það. En það er hvergi meiri þörf en hjer að eiga völ á duglegum og vel mentuðum yfirsetukonum. Læknafæðin gerir það að verkum hjer, að oft er örðugt að ná til lækna, en það er nú svo með yfirsetukonur, að það er ekki aðeins, að þær hjálpi konum í barnsnauð, heldur bera þær og öðrum fremur skyn á ýms önnur læknisfræðileg efni og hjálpa oft á þessum sviðum, þegar ekki næst til læknis. Jeg álít, að ekki megi hugsa um, þó að hækkunin sje nokkuð mikil, tvöföld, þreföld eða fjórföld, undirstöðulaunin geta verið svo lág, að það sje rjett. Hvað eiga nú yfirsetukonur að fá í laun eftir þessu frv.? 300 kr. á ári, hækkandi 3ja hvert ár um 50 kr. upp í 500 kr., svo og dýrtíðaruppbót. Hún verður um 60%, svo launin verða þá samtals 800 kr. Er það ofmikið að bjóða slíkt konu, sem hefir lagt á sig töluvert nám og á að leysa af hendi þýðingarmikið starf? Jeg fæ ekki sjeð, að launin megi minni vera en farið er fram á í frv. því hefir verið haldið fram, að með þessu kæmi fram misrjetti; menn, sem taka laun samkvæmt launalögunum, kynnu að verða óánægðir. En jeg hygg, að ekki væru margir, sem hefðu ástæðu til þess að kvarta, er þeir færu að bera sig saman við yfirsetukonurnar. Jeg vil taka það fram í þessu sambandi, að mjer finst, að launalögin sjeu einhver vitlausustu lög, sem hjer hafa verið sett. Þetta eru sterk orð, en sönn. Það hafa engin lög farið ver með embættismannastjett þessa lands en launalögin. Meginregla þeirra er sú að gera öll laun jöfn. Það er svo um sýslumannaembættin, að þau erfiðustu eru minst launuð, sem minst eru eftirsótt og þyrftu duglegasta menn. Launalögin eru engin fyrirmynd, þau eru bygð á skökkum grundvelli. Jeg get vel skilið hv. 1. þm. Rang, (EP), að sýslunefndunum veiti þungt að leggja á sig nýjar byrðar; þær, sem fyrir eru, eru fullþungar. Mjer hefði fundist eðlilegast að launa yfirsetukonur algerlega úr ríkissjóði, bæði í kaupstöðum og sveitum. Þetta er mjög þýðingarmikið starf, og það má ekki láta smámuni valda því, að í starfið veljist lakari konur, eða umdæmin standi auð. Þjóðfjelaginu er nauðsyn á því, að fólkinu sje ekki stefnt í þann voða, að hvorki sje hægt að ná í lækni nje yfirsetukonu. Það er ósæmilegt siðuðu þjóðfjelagi, og slíkt hlýtur að hefna sín fyr eða síða. Það er búið að sýna þessari stjett svo lengi ósanngirni, að nú er tími til kominn að fara að opna augum fyrir sjálfsögðum rjettlætiskröfum. Hjer er sannarlega ekki um annað en rjettlætiskröfur að ræða. Skemra en þetta má ekki fara. Jeg vænti þess því, að hv. deild standi fast um mál þetta og leyfi því fram að ganga.